Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Blaðsíða 63
Hjördís Guðbjörnsdóttir, heilsugæsluhjúkrunarfræðingur,
María Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur, B.S., SóleyBender, hjúkrunarfræðingur, M.S.
+ fjórir kaflar
UM UISGUMGA
Sýnishorn úr bókinni
Hjördís María Sóley
Þessa fróðlegu smábók gaf
prentsmiðjan ísafold út
árið 1988. Hún er öllum ung-
mennum nauðsynleg. Bókin
er rituð á fallegu, skiljanlegu
máli. Höfundar og útgefandi
eiga þakkir skilið fyrir þetta
góða framlag til að upplýsa
unga fólkið okkar. Bókin fœst
í Bókabúð ísafoldar og verður
dreift á vegum Námsgagna-
stofnunar. Hún kostarkr. 300.
Kynlíf- hvað er það?
A unglingsárunum vakna kynferð-
islegar hugsanir og þrár. Þessar
hugsanir eða ímyndanir geta verið
á ýmsa vegu. Þú lætur þig ef til vill
dreyma um kennarann þinn eða þú
ímyndar þér að þú eigir í áköfu ást-
arsambandi við fræga poppstjörnu.
En þetta eru einungis venjulegir
dagdraumar sem flesta dreymir.
Stundum hjálpa slíkir dagdraumar
þér við að kynnast nánar eigin til-
finningum og löngunum. Hugsanir
sem þessar eru ósköp saklausar og
þó þú látir þig dreyma er alls ekki
víst að þú viljir að það gerist í raun-
veruleikanum.
Á þessum tíma ert þú ef til vill að
velta fyrir þér hvað kynlíf sé.
Mörgum finnst kynlíf eingöngu
vera samfarir en kynlíf er í raun
miklu meira en það. Það getur til
dæmis verið að láta sér líða vel
saman, tala saman í einlægni,
kyssast, strjúka hvort öðru, faðm-
ast og margt fleira. Kynlíf er ekki
endilega meðfætt heldur þarf einnig
að læra það. Enginn lærir í eitt
skipti fyrir öll að lifa kynlífi. Þar er
ekki eitt rétt og annað rangt, heldur
skiptir þar mestu tilfinning hvers og
eins. Það sem einum finnst gott
finnst öðrum jafnvel vont, því er
svo mikilvægt að hver og einn segi
hvað honum finnst gott og hvað
hann vill. Sumir unglingar kvarta
undan því að þeir fái lítið út úr kyn-
lífi. Ástæðurnar geta verið margar,
til dæmis að þeir þora ekki að segja
hvað þeim finnst notalegt eða að
viðkomandi stundar kynlíf vegna
þrýstings frá öðrum án þess að
langa til þess sjálfan. Margar
stelpur halda að þær eigi að láta
HJÚKRUN4fe-65. árgangur 57