Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Blaðsíða 65
dægurs. Ef svar er neikvætt og hafi
blæðingar ekki byrjað viku seinna
þurfið þið að fara með þvagprufu
frá stúlkunni aftur. Ef svarið er hins
vegar jákvætt þarf stúlkan að fara
til læknis og fá frekari staðfestingu
á að hún sé ólétt. Mikilvægt er að
þið ræðið við foreldra ykkar eða
forráðamenn sem fyrst og munið þá
að foreldrar eru í flestum tilfellum
skilningsríkir og hjálpsamir þótt
þeir komist í uppnám fyrst við frétt-
ina. Einnig er nauðsynlegt að þið
tvö ræðið ykkar á milli hvað gera
skuli. Oft er gott að fá utanaðkom-
andi aðstoð við að ræða saman og
velta fyrir sér mögulegum lausnum.
Þegar stúlka er ólétt hefur hún
þrjá valkosti:
1 • Að ganga með barnið og ala það
upp, ein eða með aðstoð.
2. Að fæða barnið og láta það í
fóstur eða til ættleiðingar.
3. Að fara í fóstureyðingu.
Fyrir flesta unglinga er enginn af
þessum kostum góður en engu að
síður þarf að gera upp hug sinn.
Slíka ákvörðun er ekki hægt að
taka í fljótræði en stúlkan hefur
alltaf síðasta orðið. Lítum aðeins
nánar á hvert atriði fyrir sig.
Að eignast barn og ala upp
Það er gott að spyrja sig í hrein-
skilni, langar mig til að eignast
barn? Hafir þú gert einhverj ar áætl-
anir varðandi framtíðina geta þær
breyst.
Að ákveða að eignast barn er ein
mikilvægasta ákvörðun sem maður
tekur á lífsleiðinni. Það getur verið
yndislegt að eiga barn. Það þarfnast
manns. Það er fallegt og hefur
mjúka húð sem gott er að strjúka.
Það er notalegt að halda á því og
hugga. En það er samt ekki alltaf
jafn auðvelt og skemmtilegt. Barn-
ið þarfnast ykkar allan sólarhring-
inn, jafnt að nóttu sem degi. Það
þarfnast ykkar ekki minna þegar
þið eruð þreytt, syfjuð eða þegar
ykkur langar út. Barnið skilur ekki
þarfir ykkar, það hefur ekki þroska
til þess. Sjaldnast eru unglingar
færir um að valda því hlutverki að
ala upp barn og hafa þess vegna
þörf fyrir aðstoð sinna nánustu. En
smám saman þurfa foreldrarnir að
axla ábyrgðina sjálfir.
Að setja barn ífóstur
eða til œttleiðingar
Það er hægt að setja barn í fóstur til
16 ára aldurs eða gefa barnið til ætt-
leiðingar. Við ættleiðingu afsalið
þið ykkur öllum rétti til barnsins.
Það er best fyrir barnið að þið látið
það frá ykkur sem yngst, helst strax
eftir fæðingu. Það er einnig auð-
veldara fyrir ykkur áður en þið
hafið tengst því sterkum böndum.
Fyrir flesta er þetta hins vegar erfið
ákvörðun. En það er þó gott að vita
af barninu hjá fólki sem getur og
vill gjarnan ala það upp.
Fóstureyðing
Þið þurfið að athuga vel fyrrnefnda
valkosti áður en þið ákveðið að
velja fóstureyðingu. Fóstureyðing
er mjög umdeild, þið þurfið því að
velta vandlega fyrir ykkur öllum
þeim þáttum sem mæla með eða á
móti þessari aðgerð áður en þið
takið ákvörðun. Veltið fyrir ykkur
hvað gerist fari stúlkan ekki í fóstur-
eyðingu. Vill hún ganga með barn í
níu mánuði? Vill hún fæða barn?
Eruð þið tilbúin til að verða for-
eldrar? Hvað finnst ykkur um ætt-
leiðingu? Hvaða skoðun hafið þið á
fóstureyðingu? Fari stúlkan ekki í
fóstureyðingu eignast hún barnið.
Um þetta verðið þið að taka ákvörð-
un. Ef niðurstaðan er fóstureyðing
þarf stúlkan að hafa samband við
HJÚKRUN Vw - 65. árgangur 59