Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Qupperneq 66

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Qupperneq 66
heimilislækni, félagsráðgjafa eða kvensjúkdómalækni. Þargetur hún fengið nauðsynlegar upplýsingar og leiðbeiningar. í lögum um fóstur- eyðingar (Stj.tíð. A, nr. 25/1975) er tekið fram hverjum er heimilt að fá fóstureyðingu. Það er mjög mikil- vægt að hafa samband við félags- ráðgjafa eða lækni strax og þið vitið að stúlkan er ólétt því fóstureyð- ing er tiltölulega einföld aðgerð ef hún er framkvæmd fyrir 12. viku meðgöngu (reiknað frá 1. degi síð- ustu tíða). Eftir 12 vikna meðgöngu er mjög erfitt að fá fóstureyðingu. Þetta er alvarleg ákvörðun og þarfnast umhugsunar. Því er mikil- vægt að þið ræðið tilfinningarykkar sem fyrst við foreldra, forráða- menn eða einhvern sem þið treyst- ið. Trúlega gerir enginn það með vilja að lenda í þessari aðstöðu, sem fyrir flesta er erfið og veldur andlegu álagi og sársauka. Þið skuluð því hugsa ykkur vel um áður en þið ákveðið hvort þið hafið sam- farir og taka ekki neina áhættu. Hvert átt þú að leita vanti þig upplýsingar eða ráð Þegar margt er að gerast í lífi okkar verðum við óörugg og kvíðin og ýmsar spurningar vakna. Hafir þú einhverjar slíkar spurningar er nærtækast að leita til foreldra þinna eða einhvers sem þú getur treyst og veist að vill þér vel, vill hlusta á þig og leiðbeina þér. Þú getur alltaf leitað til skólahjúkrunarfræðings, skólalæknis, heimilislæknis eða kennara þíns. Einnig getur þú talað við prestinn þinn. Margir hrista höfuðið þegar minnst er á foreldra í þessu sam- bandi. Ef til vill ert þú ein/einn þeirra, ert feimin/n að ræða um til- finningar þínar og spyrja foreldra þína um mál sem þér finnst við- kvæm. Þú heldur ef til vill að þau vilji ekki ræða við þig. Hefur þú hugleitt að hugsanlega finnst for- eldrum þínum jafn erfitt að byrja og eru jafn feimin og þú. Oftast vonast foreldrar til að börn þeirra hafi sömu eða svipaðar skoðanir og þeir sjálfir en þið þurfið ekki að vera sammála um allt. Reyndu að virða skoðanir þeirra og þau munu þá líklega virða þínar. Sýndu þeim traust og þau munu treysta þér. Á flestum skólabókasöfnum eru til bækur um unglingsárin, getnað- arvarnir og fleira. Bæklingar um getnaðarvarnir og kynsjúkdóma eru gefnir út af landlæknisembætt- inu og þá er hægt að fá til dæmis á öllum heilsugæslustöðvum. Starfs- fólkið þar er líka tilbúið að ræða við þig. Kynfræðsludeild Heilsuverndar- stöðvarinnar við Barónsstíg er opin á mánudögum kl. 16:15 til 18:00. Þar getur þú rætt við hjúkrunar- fræðing, ljósmóður og lækni og fengið tilvísun á getnaðarvarnir. Unglingaráðgjöfin er í Garðastræti 16, Reykjavík og unglingadeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkur er að Vesturgötu 17. Neyðarathvarf RKÍ fyrir börn og unglinga er að Tjarnargötu 35 s. 622266. Þangað getur þú einnig leitað með áhyggjur þínar. Á þessu sérðu að þú ert ekki ein/ einn í heiminum. Hafir þú áhyggj- ur, reyndu þá að ræða við einhvern. Mörg vandamál leysast við að ræða þau og þeir sem eldri eru hafa ef til vill einhverjar tillögur um lausn mála sem þér hafa ekki dottið í hug. Ef þú ert að veltafyrir þér að hafa samfarir í fyrsta skipti - staldraðu þá við um stund og spyrðu þig eftir- farandi spurninga: ? Á það við í sambandi okkar núna? ? Höfum við haft góðan tíma til að ræða saman um hvað er mikil- vægt í lífinu? ? Er verið að þrýsta mér út í að hafa samfarir eða er ég að þrýsta á einhvern? ? Er ég hrædd/ur um að „sofi ég ekki hjá“ þá hætti hann/hún við mig? ? Hvernig heldur þú að þér muni líða gagnvart sjálfri/um þér, honum/henni og foreldrum þín- um eftir á? ? Höfum við rætt um hvaða getn- aðarvörn við ætlum að nota ef við höfum samfarir? ? Er ég fær um að takast á við að fæða og ala upp barn verði ég ófrísk? ? Er ég fær um að styrkja og styðja stúlkuna verði hún ófrísk? ? Ætla ég að taka þá áhættu að fá kynsjúkdóm/a við samfarir? Efnisyfirlit bókarinnar er eftirfarandi: 1. Hver ert þú / hvað vilt þú? 2. Líkami þinn þroskast Líkami stráka Líkami stelpna Ýmislegt um stráka og stelpur 3. Náin kynni 4. Kynhlutverk / kynhegðun - ýmis viðhorf 5. Sjálfsfróun 6. Kynlíf- hvað er það? 7. Kvenskoðun 8. Betra er öryggi en áhætta Pillan Smokkurinn Hettan Sæðisdrepandi efni Óæskilegar getnaðarvarni fyrir unglinga 9. Ótímabær þungun Að eignast barn og ala upp Að setja barn í fóstur eða til ættleiðingar Fóstureyðing 10. Hvert átt þú að leita vanti þig upplýsingar eða ráð ??????? Skrá yfir bækur og bæklinga 60 HJÚKRUN %9 - 65. árgangur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.