Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Side 67

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Side 67
Minning t Við dagsins dýrðarljóma ég daggarperlur sá í bikar ungra blóma, þá brosti lífsins þrá, sem speglar margar myndir á móti sólarbrá, hve margar djúpar lindir hinn litli dropi á. Ólína Andrésdóttir Ulrica Croné er látin eftir langvar- andi og erfið veikindi. Með Ulricu er gengin mikilhæf og virt kona innan raða norrænna hjúkrunar- fræðinga. Við sem til þekktum dáð- umst að henni, hvernig hún eftir hverja aðgerð, hverja lyfjameðferð ávallt tók upp þráðinn að nýju, full lífsvilja, slíkt gerir enginn nema eiga mikið andlegt þrek og styrk. Ulrica Croné var fædd 31. júlí 1932. Hún lauk hjúkrunarprófi árið 1955 frá hjúkrunarskólanum í Eskil- tuna. Árin 1955-1962 starfaði hún sem hjúkrunarfræðingur og deild- arstjóri á hinum ýmsu deildum á sjúkrahúsinu í Eskiltuna. Ulrica lauk námi í hjúkrunarstjórnun árið 1966 og starfaði eftir það sem hjúkrunarforstjóri við sjúkrahúsið í Vásterás til ársins 1972. Varaformaður sænska hjúkrun- arfélagsins varð hún árið 1972 og gengdi þeirri stöðu til ársins 1979 að hún var kosin formaður. Ulrica var valin formaður í Sam- vinnu hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum árið 1983. Formenn hjúkrunarfélaganna sem mynda SSN sitja í stjórn samvinnunnar. Þannig urðu kynni okkar Ulricu Ulrica Croné formaður Samvinnu norrænna hjúkrunarfræðinga og sænska hjúkrunarfélagsins gegnum norrænt samstarf hjúkrun- arfræðinga. í þeim viðskiptum var það ávallt ég er þáði, hvort heldur það voru holl ráð handa formannin- um eða sem einstaklingur. Ulrica var sannkallaður sátta- semjari þegar brúa þurfti ólíkar skoðanir, var vel undirbúin og stjórnaði fundum í stjórn af rögg- semi en gætti þess ávallt að allir gætu komið með sitt álit. Það var lærdómsríkt að sjá hvernig Ulrica hélt utan um hina margslungnu starfsemi innan SSN, hún gerði það á sinn einstaka hátt, hafði sinn einstaka stjórnunarstíl sem ásamt miklum mannkostum gerðu hana að mikilhæfum stjórn- anda. Þau tíu ár sem Ulrica gegndi for- mennsku í sænska hjúkrunarfélag- inu voru tími umróta og breytinga, bæði hvað varðaði menntun sænskra hjúkrunarfræðinga og félagslega stöðu þeirra. Ulrica var ótrauð við að halda á lofti mikilvægi hjúkrunar, að hjúkrun væri sjálf- stæð fræðigrein og hjúkrunarfræð- ingar bæru ábyrgð á henni. Ulrica var góður fyrirlesari, siðfræði starfsins, ábyrgðarskylda hjúkrun- arfræðinga og rannsóknir í hjúkrun voru hennar áhugasvið. Hæst reis hún þó þegar hún hélt fyrirlestra um það hvernig það væri að vera sjúkur með illkynja sjúkdóm, og samóf þekkingu sína í hjúkrun, reynslu sinni af því að vera sjúk- lingur. Það snerti alla er á hlýddu sagði sænskur hjúkrunarfræðingur. Nú er skarð fyrir skildi, hinn litli dropi á margar djúpar lindir segir í kvæði Ólínu Andrésdóttur. Það sama má segja um Ulricu, hún var daggarperla hjá okkur sem þekktum hana og þótti vænt um hana. Fyrir hönd íslenskra hjúkrunar- fræðinga þakka ég störf Ulricu Croné að hjúkrunarmálum og bið eftirlifandi manni hennar Arne Croné og fjölskyldu allrar blessun- ar. Sigþrúður Ingimundardóttir formaður Hjúkrunarfélags íslands HJÚKRUN 'M) - 65. árgangur 61

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.