Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Síða 71

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Síða 71
Minning t Þegar ég var ungur maður, umgekkst ég marga sem voru af hinni svokölluðu alda- mótakynslóð. Það fólk upplifði meiri breytingar en nokkurn hefði órað fyrir. ísland hoppaði á örfáum árum út úr bændasamfélagi og inn í nútíma þjóðfé- lag. Það hlýtur að hafa þurft sterk bein til að þola slíkar breytingar og standast þær. Steinunn Ögmundsdóttir var ein þeirra sem tilheyrðu áðurnefndri aldamótakyn- slóð. Hún mátti þola mikil veikindi sem gjörbreyttu aðstöðu hennar og lífs- viðhorfum. Árið 1950 veiktist hún mikið og gekkst undir nokkrar aðgerðir erlend- is. Leikar fóru svo að hún missti sjónina og varð alblind. Þá fáum árum áður höfðu nokkrir dugmiklar einstaklingar stofnað Blindrafélagið og sett á fót Blindravinnu- stofuna, en megintilgangur hennar er að veita blindu og sjónskertu fólki atvinnu. Þegar Steinunn missti sjónina var enn þá það viðhorf ríkjandi hjá mörgu fólki sem var komið yfir miðjan aldur að blint fólk væri hornrekur sem litla björg gæti sér veitt. Steinunni fannst um tíma að hún væri ein þeirra, blindur aumingi sem eng- inn tæki mark á. Þetta fyllti hana og fjöl- skyldu hennar mikilli örvæntingu og stóðu þau ráðalaus frammi fyrir þessari breyttu aðstöðu Steinunnar. Þá var það að Þórsteinn Bjarnason, sem var for- maður Blindravinafélags fslands, kom og stappaði stálinu í hana, en líklega hefur það ráðið úrslitum að nokkrar ungar blindar konur, sem voru á meðal stofn- enda Blindrafélagsins, hvöttu Steinunni til þess að koma til Blindrafélagsins og taka þátt í því starfi sem þar færi fram. Þau hjónin, Steinunn og Ólafur Pálsson, íhuguðu málið og ályktuðu sem svo að þar sem blinda fólkið væri með sinn félagsskap, þar væri vettvangur fyrir Steinunni. Steinunn hóf störf hjá Blindravinnu- stofunni árið 1952 og má segja að það hafi verið mikið gæfuspor, bæði fyrir hana og fjölskyldu hennar, og ekki síst fyrir Blindr^félagið. Þau Steinunn og Ólafur fóru að taka mikinn þátt í félagslífi og starfi félagsins og Ólafur varð endurskoð- andi þess um áratugi og aðhaldsmaður Steinunn Ögmundsdóttir Fædd 14.8. 1901 Dáin 2.10. 1989 um fjármál þess. Þá tók fjölskylda þeirra mikinn þátt í alls kyns félagsstarfi Blind- rafélagsins og studdi það á margan hátt. Dætur Steinunnar og Ólafs, þær Jóhanna og Helga, voru mikið í tengslum við Blindrafélagið og Helga átti síðar mikinn þátt í mótun Hljóðbókasafns Blindrafé- lagsins og Borgarbókasafns Reykjavíkur sem síðar varð Blindrabókasafn íslands. Það er ríkisrekin stofnun, starfrækt í húsakynnum Blindrafélagsins. Þegar Steinunn hóf störf á Blindra- vinnustofunni, kom með henni hressandi andblær. Þær konur sem þar störfuðu voru margar allnokkuð yngri en Steinunn en það skipti engu máli, mikil og traust vinátta skapaðist þeirra á milli. Steinunn starfaði við að gera bursta og þær vinkonurnar sögðu hver annarri sögur, ræddu um heima og geima og kváðust á. Fastur liður var að eftir kaffið um þrjúleytið arkaði kvennahersingin með þær Margréti Andrésdóttur formann Blindrafélagsins, Steinunni og Rósu Guðmundsdóttur, sem þá var varafor- maður félagsins, fram á gang, læsti að sér á prívatinu og söng hástöfum ættjarðar- söngva af mikilli hjartans lyst. Ég man að sem barn sætti ég færis að koma inn í Hamrahlíð um kaffileytið og heyra þennan skemmtilega söng, það hljómaði svo vel þarna inni. Steinunn var hafsjór af fróðleik. Hún kunni ósköpin öll af vísum og kvæðum og lög við þau. Hún hafði gaman af söng og þegar um löng kvæði var að ræða mátti eins vel búast við að hún kynni þau öll. Þess vegna var hún ásamt manni sínum ómissandi á mannamótum félagsins. Steinunn vann hjá Blindravinnu- stofunni á meðan kraftar entust en eftir það hélt hún áfram að koma dag og dag og aldrei lét hún eða Ólafur maður hennar sig vanta á fundi eða önnur mannamót hjá Blindrafélaginu. Sú sem átti hvað mest við Steinunni að sælda frá Blindrafélaginu var Rósa Guðmunds- dóttir sem síðar varð formaður þess. Rósa sá til þess að Steinunn gat notið sín sem best eftir að aldurinn tók að færast yfir hana. Á 50 ára afmæli Blindrafélagsins, þann 19. ágúst sl., voru þau hjónin, Steinunn og Ólafur, gerð að heiðursfélögum Blind- rafélagsins fyrir það mikla starf sem þau hafa innt af hendi í þágu þess. Má til dæmis nefna að þau hjónin gáfu verulega fjárupphæð sem notuð er til þess að rita sögu Blindrafélagsins. Þegar Steinunn kom til afmælishátíðar Blindrafélagsins, var hún farin að kröftum, en reisn sinni hélt hún. Hún fylgdi fötum alveg þangað til hálfum mán- uði áður en hún dó, þá treysti hún sér ekki lengur á fætur, fannst hún vera eitthvað lélegri en vant var. Hún lést svo þann 2. október síðastliðinn 88 ára að aldri. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast konu eins og Steinunni. Hún lét aldrei deigan síga heldur hélt sínu striki. Hún hlýtur að hafa fengið í vöggugjöf mikinn viljastyrk. Fyrir hönd stjórnar Blindrafélagsins sendi ég eftirlifandi eiginmanni Steinunn- ar, Ólafi Pálssyni, ogfjölskyldu hans inni- legustu samúðarkveðjur. Gísli Helgason HJÚKRUNlto-65. árgangur65
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.