Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Qupperneq 72
Saga Hjúkrunarskóla íslands
Hjúkrunarskóli íslands
lagði um rúmlega hálfrar
aldar skeið fram drjúgan skerf
til menntunar heilbrigðisstétta
í landinu, sem sést best á því
að hann brautskráði 2010
hjúkrunarfræðinga á starfs-
tíma sínum. Auk þess veitti
skólinn 30 hjúkrunarfræðing-
um framhaldsnám í stjórnun.
Pað starfhans verður aldrei að
fullu metið né þakkað sem vert
vœri. Hins vegar er öllum
kunnugt um hve heilladrjúgt
starf nemenda skólans hefur
reynst fólkinu í landinu, hvort
heldur er á sjúkrahúsunum,
heilsugœslustöðvunum eða í
heimahúsum. Hvarvetna hafa
hlýjar hendur farið nærfœrn-
um höndum um sjúka og þjáða
og hlýtt bros hefur veitt mörg-
um styrk og von.
Nú hefur saga Hjúkrunarskóla
íslands verið skráð og mun koma
fyrir almenningssjónir áður en
langur tími líður. Það er Menning-
arsjóður sem hefur tekið að sér að
gefa verkið út, en útgáfan er ekki
tímasett ennþá. Þetta verður stór
og gerðarleg bók sem hefur að
geyma glögga mynd af því mikla
starfi sem skólinn ynnti af höndum
þessi ár sem hann starfaði. Það var
skólanefnd HSÍ sem hafði frum-
kvæði að ritun sögunnar. Hún
gekkst fyrir því að skipuð var rit-
nefnd til þess að sjá um að saga
skólans skyldi skráð.
í nefndina voru skipuð Sigríður
Jóhannsdóttir síðasti skólastjóri
Hjúkrunarskóla íslands, Svanlaug
Árnadóttir hjúkrunarfræðingur og
fyrrum formaður Hjúkrunarfélags
íslands og Stefán Ólafur Jónsson
deildarstjóri í menntamálaráðu-
neytinu, sem skipaður var for-
maður nefndarinnar.
Menntamálaráðuneytið sam-
þykkti að leggja fram nokkurt fé til
þess að unnt yrði að hefja sögurit-
un. Gerður var samningur milli
ráðuneytisins og Þorbjargar Jóns-
dóttur fyrrverandi skólastjóra 1984
um að hún tæki að sér að safna efni
í söguna. Það var ljóst að þetta var
mikið verk en enginn var jafnkunn-
ugur starfi skólans í gegnum árin og
Þorbjörg. Þess vegna var það mikill
fengur að geta fengið hana til að
vinna að efnissöfnun, sem lauk í lok
september sl. með lokasöfnun
mynda í söguna.
Efnissöfnunin var mjög marg-
þætt, hún tók í reynd til allra starfs-
þátta skólans frá upphafi til starfs-
loka hans. Þorbjörg naut við þessa
söfnun aðstoðar fyrrverandi skóla-
stjóra skólans, þeirra Sigríðar
Jóhannsdóttur og Sigþrúðar Ingi-
mundardóttur og ýmissa kennara
skólans, einkum þeirra sem þar
störfuðu lengi, að ógleymdri Svan-
laugu A Árnadóttur. Þegar efnis-
söfnun var nokkuð á veg komin
réði sögunefnd Lýð Björnsson
sagnfræðing til að rita söguna.
Hann fékk í hendur allt það safn
upplýsinga sem Þorbjörg og
aðstoðarfólk hennar hafði safnað
saman.
Lýður hefur nú lokið þessu verki
sínu og nú bíður handritið þess að
fara í prentun.
í sögunni er fjallað um aðdrag-
anda að stofnun skólans, skipulag
hans og þróun. Greint er frá hverjir
voru frumkvöðlar að stofnun skól-
ans, starfi skólanefnda og stjórn-
enda skólans. Þá er greint ítarlega
frá kennsluskipulagi og sífelldum
breytingum sem urðu á hjúkrunar-
fræðikennslunni frá upphafi og til
starfsloka skólans. Þá er fjallað um
kennslubækur og kennslugögn.
Rakið er hverjir hafa kennt við
skólann, bæði sem fastráðnir og
lausráðnir og sagt er hvaða grein
hver og einn hefur kennt. Margir
hafa þar lagt hönd að verki og er
fróðlegt að kynnast því. Annað
starfsfólk gleymist heldur ekki.
í sögunni er skrá yfir alla sem
brautskráðst hafa frá skólanum og
nefndur fæðingardagur og ár og
hvenær viðkomandi lauk námi og
eru ljósmyndir af öllum árgöngum
og þær nafnsettar. Reynt er að
bregða upp myndum af félagslífi
nemenda og sagt er frá merkisat-
burðum í starfi skólans, s.s. 50 ára
afmælishátíð.
Margt fleira er að finna í sögunni
sem ekki verður nefnt hér, en reynt
er að bregða upp svipmyndum af
því sem gerst hefur í skólanum.
Sögunefndin er afar þakklát
öllum sem stuðlað hfa á einn eða
annan hátt að því að þessu verki
hefur miðað þetta áleiðis.
Sögunefnd hefur óskað eftir því
við stjórn Hjúkrunarfélags íslands
að hún gengist fyrir söfnun áskrif-
enda að sögunni. Söfnun áskrif-
enda myndi flýta mjög fyrir útgáfu
verksins og munu áskrifendur fá
ritið á hagstæðari kjörum en ella.
Með ritun sögu Hjúkrunarskóla
íslands er bætt við einum mikil-
vægum þætti í skráningu skólasögu
íslands.
Stefán Ól. Jónsson
66 HJÚKRUN%»-65. árgangur