Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Page 79
Einn hjúkrunarfræðingur var á
morgunvakt á hverri deild spítal-
ans. Morgunvakt stóð frá kl. 7.30-
14.00. Tveir hjúkrunarfræðingar
voru á kvöldvakt frá kl. 13.30-
20.00, annar með gjörgæslu- og
kvennadeild, hinn með karla-/
barnadeild og móttöku. Sömuleiðis
voru tveir hjúkrunarfræðingar á
næturvakt frá 19.30-8.00, með
sömu deildaskipan. Ávallt var einn
hjúkrunarfræðingur á bakvakt með
talstöð. Daglegur rekstur sjúkra-
hússins var í höndum yfirhjúkrun-
arfræðings.
Fjöldi afghansks aðstoðarfólks
vann við aðhlynningu undir okkar
stjórn.
- Hvaða menntun eða þjálfun
hafði innfœtt aðstoðarfólk ykkar?
Það var flest þjálfað af starfsfólki
Rauða krossins en nokkrir höfðu
aðra menntun s.s. dýralæknar eða
efnafræðingar. Ég get nefnt 55 ára
karlmann sem var hjúkrunarfræð-
ingur og hafði verið deildarstjóri á
stóru sjúkrahúsi í Kabul. Hjá
okkur var hann aðstoðarmaður,
þar sem grunnmenntun hans var
mun minni en okkar og nokkuð
langt um liðið síðan hann hlaut
hana.
Aðstandendur dvöldu oft lang-
tímum saman á sjúkrahúsinu hjá
sjúkum og særðum börnum eða
öðrum ættingjum sínum. Þeir unnu
gott starf og áttu drjúgan þátt í bata
sjúklinganna.
- / hverju var þitt starf aðallega
fólgið?
Ég vann á karla- og barnadeild-
inni svo og móttökudeild á kvöld-
og næturvöktum. Mitt starf fólst í
stjórnun, skipulagningu og eftirliti
með störfum aðstoðarfólksins.
Framkvæmd flókinna verkefna,
kennslu, leiðbeiningum og hvatn-
ingu til starfsfólks. Starfið fannst
mér mjög skemmtilegt, gefandi og
sjálfstætt. Það var gott að vinna
með innfæddum. Við unnum eftir
rúlluskema sem var eftirfarandi:
KV-KV-MV-MV-NV-NV-
SVD-FRÍ.
- Var aðstöðumunur milli deilda
sjúkrahússins?
Töluverður aðstöðumunur var
Hvers eiga þeir að gjalda?
Hann brenndist á höndum.
HJÚKRUN - 65. árgangur 73