Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Page 83
Fréttir - Fréttir - Fréttir - Fréttir - Fréttir - Fréttir
Ritkynning
í framhaldi af umfjöllun okkar um
SSN fundinn langar mig að kynna
ykkur bókina High tech - high
touch EDB í sykepleien. Höfundur
bókarinnar er norski hjúkrunarf-
ræðingurinn Einar Areklett. Bókin
fjallar um hvað upplýsingatækni sé
og hvernig nota má þessa tækni á
ýmsum sviðum hjúkrunar s.s. í
hjúkrunarferlinu, við stjórnun,
rannsóknir og við kennslu. Bókin
er grípandi og auðveld aflestrar.
Hún er hentug þeim sem eru að
byrja að kynna sér efnið. Ég mæli
eindregið með henni.
Ingibjörg Elíasdóttir
Einar Areklett 1987
High tech- high touch EDB í sykepleien
Universitetsforlaget
Noregi
118 bls. Verð 130 Nkr. í apríl 1988.
Stuðlum að úrbótum
á málefnum fatlaðra
Fatlað fólk á iðulega í erfiðleikum
með að fá störf við hæfi á vinnu-
markaði og er þar margt sem
veldur. Einnig vill það brenna við,
að fatlað fólk einangrist á vinnustað
og fullyrða talsmenn samtaka fatl-
aðra að úr slíku mætti bæta í mjög
mörgum tilvikum, með góðu sam-
starfi við samtök launafólks.
Þeir sem hafa áhuga á því að
vinna að úrbótum á þessum málum
• sérstökum starfshópi á vegum
BSRB eru beðnir að tilkynna það
skriflega á aðalskrifstofu samtak-
anna. Þau félög sem vilja leggja
þessu málefni lið eru beðin um að
tilnefna fulltrúa.
Ögmundur Jónasson
form. BSRB
Fræðslustarf Hjúkrunarfélags íslands
Námskeið á vegum Hjúkrunarfélags íslands á vorönn 1990.
8.-19. janúar
22. janúar-2. febrúar
5.-16. febrúar
19. febrúar-2. mars
12.-23. mars
26. mars-6. apríl
23. apríl-4. maí
Rannsóknaraðferðir
Stjórnunl
Kennslufræði
Hjúkrun krabbameinssjúklinga,
alnæmissjúklinga o.fl.
Stjórnunll.
Handlæknis- lyflæknis- og
gjörgæsluhjúkrun
Samtalstækni- og ráðgjöf
Athugið breytta dagsetningu á auglýstum námskeiðum í janúar.
Námskeið í stjórnun I, verður endurtekið vegna mikillar aðsóknar.
Námskeið í geðhjúkrun fellur niður. í stað þess verður námskeið í
handlæknis- lyflæknis- og gjörgæsluhjúkrun endurtekið.
HJÚKRUNM»-65. árgangur 77