Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Page 84

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Page 84
Ritstjórn Tímarits Hjúkrunarfélags íslands „Hjúkrun" eins og hún var skipuð í ársbyrjun 1970. Frá vinstri: Sigurveig Sigurðardóttir, Alda Halldórsdóttir, Ingibjörg Árnadóttir, Lilja Una Óskarsdóttir. Myndin er tekin íseptember 1989, á heimili Ingibjargar. Tilgamans má geta þess að þœrsitja hér við sama borðstofuborðið og 1970, þó það sé nú í öðru bœjarfélagi. Litið um öxl eftir 20 ára ritstjórastarf Rætt við Ingibjörgu Árnadóttur — Umsjón Ása St. Atladóttir Ingibjörg Arnadóttir hefur ritstýrt útgáfustarfsemi Hjúkrunarfélags íslands undanfarin tuttugu ár. Hún er orðin nátengd blaðinu, sé nafn hennar nefnt kemur blaðið í hugann. Við báðum hana að rabba við okkur um farinn veg. - Þú hófst starfsferilþinn sem rit- stjóri í janúar 1970. Hvernig atvik- aðist það að þú með sérnám í skurð- hjúkrun og móðir þriggja ungra barna tókst þetta að þér? Ingibjörg brosir. Já - það er ekki hægt annað en brosa örlítið að því - þó ekki sé nú nema út í annað munnvikið. Þannig var að ég vann á Barnadeild Hringsins 1968. Á þess- um tíma var lítið farið út að skemmta sér vegna barnanna, og ég tiltölulega nýkomin frá Danmörku eftir tæpra 6 ára dvöl. Hafði því mikla löngun til að sjá samstarfs- fólk og vini. Samstarfskona mín á barnadeildinni Guðrún Eygló Guð- mundsdóttir og ég fengum þá flugu í höfuðið að það væri nú gaman ef Hjúkrunarfélagið héldi árshátíð. Guðrún Eygló hringdi til Maríu Pétursdóttur þáverandi formanns, til að koma hugmyndinni á fram- færi. Hún vildi fá skriflega uppá- stungu til að leggja fyrir stjórnar- fund. Tekið var vel í hugmyndina og ákveðið að framkvæma þetta með því skilyrði að við yrðum í skemmtinefnd. Við vorum til í það og varð úr þessu meiriháttar skemmtun í Súlnasal Hótel Sögu. Ég tel að þessi skemmtun og þátt- taka mín í henni hafi verið hvatinn að því að María Pétursdóttir hafði samband við mig og bað mig að taka að mér ritstjórn blaðsins. Mér fannst hugmyndin fráleit og sagði við hana „ég er með sérnám í skurðhjúkrun, en hvað ritstjórn og blaðamennsku varðar kann ég ekk- ert.“ Ég bað þó um umhugsunar- frest og ræddi þetta við þáverandi eiginmann minn, Jón Ólafsson, sem hvatti mig eindregið til að prófa. „Þú getur alltaf hætt“ sagði 78 HJÚKRUN - 65. árgangur

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.