Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Side 89
Núverandi riistjórn
HJÚKRUNAR. Frá
vinstri: Rannveig
Sigurbjörnsdóttir,
Ingibjörg Árnadóttir,
Sigríður Skúladóttir
og Ása St. Atladóttir.
Myndin er tekin á
skrifstofu ritstjórnar í
húsnœði HFÍ að
Suðurlandsbraut 22.
- Hvað finnst þér nú eftirminni-
legast þegar litið er til baka?
Ég er nú búin að telja upp heil-
margt af því sem mér er minnisstætt.
Menntunarmál hjúkrunarfræð-
inga og tilkoma Námsbrautar í
hjúkrunarfræði við Háskóla íslands
er að sjálfsögðu ofarlega í huga
mínum. Endanlega skeði allt
snöggt þó búið væri að ræða málið í
stjórn félagsins. Ég var stödd er-
lendis, á fulltrúafundi SSN og hlust-
aði þar opinberlega fyrst á kynn-
ingu um tilurð námsbrautarinnar
við Háskóla íslands. Engin formleg
kynning fyrir hjúkrunarfræðinga
sjálfa hafði farið fram og í rauninni
stóðu flestir í þeirri trú að koma
ætti af stað framhaldsnámi í
hjúkrun við Háskóla íslands en
ekki grunnnámi. Allir þekkja eftir-
málann og þar á meðal að félagið
riðaði vegna þessa máls. Ég er
sannfærð um að ef málið hefði verið
kynnt betur á sínum tíma, hefði
mátt koma í veg fyrir deilur og mis-
skilning.
Fyrsta opinbera kynningin hér
heima var á félagsfundi HFÍ í
Domus Medica fundarsalnum. Frá
þeim fundi er skýrt í 4. tölublaði
HJÚKRUNAR 1983.
Annað minnistætt atriði er nafn-
breyting blaðsins. Blaðið hafði
borið nafnið Tímarit Hjúkrunarfé-
lags íslands um langt skeið. Unnið
var að þessu málið 1977 og fengum
við Önnu M. Hlöðversdóttur
hjúkrunarfræðing til að hanna
blaðhausinn HJÚKRUN sem við
höfum notað síðan. Ég hef verið
mjög ánægð með þessa breytingu.
- Hefur einhver leyst þig af í
þessi 20 ár?
Jú - Anna Sigríður Indriðadóttir
gegndi starfi ritstjóra í tvo mánuði
vorið 1981. Ég hafði hlotið náms-
styrk SSN 1980 og nýtti hann til að
kynna mér starfsemi og tilhögun
danska hjúkrunarblaðsins „Syke-
plejen“.
Einnig leysti Stefanía Sigurjóns-
dóttir mig af í níu mánuði, frá sept-
ember 1987 til maíloka 1989. Þá
stundaði ég stjórnunarnám við
Nýja hjúkrunarskólann. Að öðru
leiti hef ég borið ábyrgð á útgáfu-
starfsemi félagsins þennafi tíma. Á
stundum hefur það verið íþyngj-
andi t.d. ef veikindi hafa borið að
höndum. Þetta blað er t.d. unnið í
veikindaleyfi eftir uppskurð, þrátt
fyrir strangt vinubann frá mínum
ágæta lækni.
- Ingibjörg, lokaorð?
Mig langar til að þakka samstarfs-
fólki við gerð blaðsins fyrr og síðar
fyrir ánægjulegt samstarf. Einnig
langar mig að senda kveðjur til allra
lesendanna, sem eru margir.
Ég er ánægð með það starf sem
ég hef unnið og er líka stolt af því.
Ég vona að blaðið haldi áfram að
dafna og það verði ekki hvikað frá
þeim gæðastaðli sem stjórn félags-
ins okkar og ritstjórn settu 1925.
Ég kveð glöð og ánægð, með það
að markmiði að takast á við ný við-
fangsefni.
□
HJÚKRUN %9- 65. árgangur 83