Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Side 90

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Side 90
Formaður HFÍ, Sigrþrúður Ingimundardóttir setur ráðstefnu félagsins í Borgartúni 6, 3. nóvember 1989. A myndinni má m.a. sjá Frú Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands og Guðmund Bjarnason heilbrigðisráðherra. 1. tölublað 1990 verður tileinkað 70 ára afmœli HFÍ, á ýmsan hátt. Hjúkrunarfélag íslands 70 ára Þann 3. nóvember 1989 hélt Hjúkr- unarfélag íslaands upp á 70 ára afmæli sitt. Dagurinn hófst með ráðstefnu sem haldin var að Borgartúni 6, frá klukkan 9.00 til 16.00. Var ráð- stefnan mjög vel sótt, enda margir áhugaverðir fyrirlestrar. Eftirtaldir hjúkrunarfræðingar voru heiðraðir: Elísabet Erlings- dóttir, Guðríður Jónsdóttir, Systir María Hildigaardis, Ingibjörg R. Magnúsdóttir, Sigurlín Gunnars- dóttir. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, veitti viðtöku viðurkenningu fyrir störf móður sinnar frú Sigríðar Eiríksdóttur. Að lokum var Guðmundur Bjarna- son ráðherra heiðraður. Mikla og verðskuldaða athygli vakti sýning á brúðum í búningum sem sýndu þróun klæðnaðar hjúkr- unarstarfsliðs í tímans rás. Brúð- urnar ásamt öllu sem þeim til- heyrði, hannaði og útfærði Þóra Grönfeldt hjúkrunarfræðingur. Eru þær listavel gerðar og mjög svo smellnar vísur með hverri brúðu, „Saga búningsins“ eftir Guðrúnu Guðnadóttur hjúkrunarfræðing. Safnið er í eigu HFÍ og er í sýning- arskáp á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 22. Er degi tók að halla var sest að snæðingi að Hótel íslandi, kryddað heimalöguðum skemmtiatriðum. Lauk kvöldinu síðan með dansleik. Veislustjórar voru þar Sigurbjörg Björgvinsdóttir og Edda Hjalte- sted. Sigríður Skúladóttir Frá afmœlishófi félagsins á Hótel Islandi. Reykjavíkurdeild HFÍ sýndi leikþátt sem fjallaði um þróun hjúkrunarstarfsins. Myndin sýnir upphaf þáttarins, táknrœmt atriði um Florence Nightingale. Höfundur texta var Páll Ásmundsson, lœknir. 84 HJÚKRUN - 65. árgangur

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.