Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.1994, Page 5
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 70. árg. 1994
Fyrir greinahöfunda
Stefna
Tímarit hjúkrunarfræðinga er gefið út
fjórum sinnum á ári, að vori, sumri,
hausti og vetri. Það er fyrst og fremst
vettvangur fræðilegrar umræðu um
hjúkrun. Jafnframt er því ætlað að
endurspegla fjölbreyttan starfsvettvang
hjúkrunarfræðinga. í tímaridnu eru
birtar greinar um hjúkrunarstörf,
nýjar rannsóknir í hjúkrun, viðtöl við
fólk um hjúkrun og aðrar faglegar
upplýsingar sem eiga erindi til
hj úkrunarfræðinga.
Tímarit hjúkrunarfræðinga er ekki
vettvangur fyrir félags- og sérhags-
munamál hjúkrunarfræðinga.
Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa
og rekstur blaðsins sé í samræmi við
ritstjórnarstefnu þess.
Ritnefnd ber ábyrgð á faglegu efni
blaðsins, að það sé í samræmi við rit-
stjórnarstefnu þess.
Ritstjóri ásamt ritnefnd leggur metn-
að í að tímaritið sé vandað að því er
varðar málfar, údit og efni. Ahersla er
lögð á að faglegar greinar standist vís-
indalegar kröfur. Þess vegna setur rit-
nefnd reglur um það hvernig höfund-
um ber að skila efni til blaðsins.
Ritnefnd áskilur sér rétt til að birta
greinar eða hafna þeim og til að setja
greinar upp og aðlaga að útliti blaðs-
ins. Ávallt er leitað umsagnar utanað-
komandi aðila um rannsókna- og
fræðigreinar.
Leiðbeiningar
Greinahöfundar eru vinsamlegast
beðnir um að skila greinum til Tíma-
rits hjúkrunarfræðinga, Suðurlands-
braut 22, 108 Reykjavík. Ef um
rannsóknagreinar er að ræða þá tekur
vinnsla þeirra lágmark tvo mánuði
eftir að þær berast til blaðsins. Yfir-
leitt tekur skemmri tíma að ganga frá
öðru efni í blaðið.
Greinum skal skilað í þríriti hverju
sinni. Endanlegri gerð skal skila á
tölvudisklingi. Hafið 4 sentimetra
spássíu á alla vegu. Þannig verður
línulengdin 13 sentimetrar á A4 en
14 á „US letter“ síðustærð. Jafnið
vinstra megin en ekki hægra megin,
nodð tvöfalt línubil og 12 punkta
Times letur. Heimildalisti takmarkast
af tilvísunum í viðkomandi grein.
Vandið málfar og íslenskið erlend orð
ef unnt er. Sé um sjaldgæfa þýðingu
orða að ræða skal setja erlenda orðið
aftan við það íslenska í sviga.
Skammstafanir skulu útskýrðar í
fyrsta skipti sem þær koma fram.
Myndir og teikningar skulu vera
nægilega skýrar til að hægt sé að
prenta eftir þeim.
Uppsetning greinanna skal vera
samkvæmt reglum ameríska sálfræð-
ingafélagsins. Upplýsingar um þær er
að finna í bókinni Publication Manu-
al of the American Psychological
Association og í íslenskri þýðingu í
bókinni Gagnfræðakver handa há-
skólanemum, eftir Friðrik H. Jónsson
og Sigurð J. Grétarsson.
Rannsóknagreinar
Um rannsóknagreinar gildir eftirfar-
andi sérstaklega:
Titilsíða: Þar skal koma fram nafn
greinar og höfunda(r), starfsheiti og
upplýsingar um náms- og starfsferil.
Utdráttur: Utdráttur á að vera stuttur
(hámark 150 orð) og ensk þýðing á
honum skal fylgja. í útdrættinum á
að koma fram: Tilgangur rannsóknar-
innar, aðferð í grundvallaratriðum,
helstu athuganir, niðurstöður og
ályktanir.
Frœðilegur bakgrunnur: f inngangi
þessa kafla á tilgangur rannsóknarinn-
ar að koma skýrt fram. í fræðilegri
umfjöllun skal vísa á nauðsynlegar
heimildir en ekki gera víðtæka fræði-
lega úttekt á viðfangsefninu. Athugið
vel að heimildalistar og tilvísanir séu
rétt og samræmd.
Aðferð: Lýsið úrtaki, rannsóknaraðferð
(tilraun, könnun, magnbundin, gæða-
bundin o.s.frv.), mælitæki/spurninga-
lista og tölfræðiathugunum nægilega
vel til að aðrir geti endurtekið rann-
sóknina. Vísið í heimildir að þeim
aðferðum sem beitt er ef þær eru til.
Getið þess ef leyfi rannsókna- eða
siðanefnda var fengið til að gera
rannsóknina.
Niðurstöður: Niðurstöður skulu settar
skipulega fram með töflum og mynd-
um sem skal vísað skýrt í í texta.
Endurtakið ekki nákvæmlega í textan-
um það sem töflurnar sýna heldur
dragið saman aðalatriði. Stundum
nægir að setja einstaka niðurstöður
fram með fáum orðum í texta.
5
Umrœða: Hér skal leggja áherslu á
þau atriði í rannsókninni sem eru ný
og ályktanir sem draga má af þeim.
Dragið ekki saman niðurstöður úr
næsta kafla á undan. Látið koma
fram hvaða máli niðurstöður rann-
sóknarinnar skipta, takmarkanir þeirra
og tengsl við aðrar rannsóknir. Skoð-
ið niðurstöðurnar út frá tilgangi
rannsóknarinnar en varist alhæfingar
sem ekki eru studdar af niðurstöðum.
Gefið hugmyndir að nýjum rann-
sóknum og tilgátum.
Þakkir: Berið einungis fram þakkir til
fólks sem hefur veitt mikla aðstoð við
verkefnið, og að fengnu leyfi viðkom-
andi.
Heimildir: Fylgið reglum APA eins og
að ofan greinir, og þá sérstaklega ís-
lensku þýðingunni í Gagnfræðakver-
inu. Fylgið þessum reglum nákvæm-
lega og frá byrjun, það sparar mikla
vinnu áður en yfir lýkur. Ljósrit af
reglum þessum er hægt að fá hjá
Tímariti hjúkrunarfræðinga.