Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.1994, Síða 31
Tímarit hj úkrunarfræðinga 1. tbl. 70. drg. 1994
Tafla 10.
Starfsánægja þeirra sem hyggjast hætta að starfa við hjnkrun
Hyggjast hætta í hjúkrun Meðaltal Staðalfrávik Fjöldi
Já 3,02 0,50 35
Nei 3,35 0,44 426
Veit ekki 3,09 0,48 145
Heildarmæling 3,26 0,47 606
Ályktanir
Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna glöggt að
íslenskir hjúkrunarfræðingar eru í heildina nokkuð
ánægðir í störfum sínum.
Hjúkrunarfræðingum úr FHH fellur þó starfið
heldur síður en kollegum þeirra úr HFÍ og gildir
það jafnt um óánægju með starfið almennt og þegar
spurt er um ánægju með starf. Þó eru hjúkr-
unarfræðingar, sem bætt hafa við sig framhaldsnámi
á háskólastigi, sáttastir við hjúkrunarstarfið.
Mælitækið Mueller McCloskev Satisfaction
Scale reyndist vera nothæft fyrir íslenska hjúkrun-
arfræðinga og gefur notkun þess tækifæri til sam-
anburðar við bandaríska kollega (Mueller og Mc-
Closkey, 1990). Þegar á heildina er litið eru íslensk-
ir hjúkrunarfræðingar álíka sáttir við störf sín og
þeir bandarísku, en töluverður munur kemur í ljós
þegar skoðaðir eru einstakir þættir. Þar munar
mestu um viðhorf hérlendra til kjara sinna, en
óánægja með laun og önnur hlunnindi er mjög al-
menn meðal hjúkrunarfræðinga og vegur raunar
þyngst þegar spurt er um hvaða starfstengda þætti
þátttakendur eru óánægðastir með.
Athugun á fylgni starfsánægju og ýmissa þátta
leiðir í ljós að hjúkrunarfræðingar meta mikils góð-
an stuðning við starfsfólk á vinnustað, góða sam-
vinnu starfshópa, stjórnun á deild og upplýsinga-
streymi svo nokkur mikilvæg dæmi séu tekin. Þessir
þættir, sem hjúkrunarfræðingum finnst skipta veru-
legu máli, eru allir hluti af samskiptum á vinnustað
og má því oft hafa áhrif á þá með stjórnunarað-
gerðum.
Þegar litið er til mismunandi starfssviða hjúkr-
unar eru þeir sem starfa við stjórnun ánægðastir í
starfi, og þegar skoðuð er fylgni milli stöðuheita og
starfsánægju reynast hjúkrunarstjórar, verkefnastjór-
ar og fræðslustjórar ánægðastir. Athygli vekur að
þeir sem starfa við fæðingarhjúkrun eru afar ósáttir
við störf sín og kemur sú afstaða einnig í ljós þegar
litið er til menntunar og starfsánægju því þeir sem
lokið hafa prófi úr Ljósmæðraskóla íslands eru
óánægðastir allra íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Þegar niðurstöður MMSS-mælitækisins eru
bornar saman við starfshlutfall og vinnutíma kemur
í ljós að þeir sem eru í fullu starfi í dagvinnu eru
ánægðastir.
Fram kemur að 35 hjúkrunarfræðingar eru
staðráðnir í að hætta að starfa við hjúkrun og eru
þeir mjög óánægðir með hjúkrunarstarfið. Litlu
ánægðari eru 145 einstaklingar sem eru á báðum
áttum um áframhald starfa og veldur sú háa tala
áhyggjum.
I heildina má segja að mælingar á starfsánægju
íslenskra hjúkrunarfræðinga leiði í ljós skýra sam-
svörun við niðurstöður svipaðra erlendra kannana
°g því gefur rannsóknin gott tækifæri til saman-
burðar milli þjóðlanda.
Fyrirhugað er að greina frekar ýmsa undirþætti
starfsánægju og skoða sérstaklega þá hópa sem
óánægðastir eru í störfum. Þá væri forvitnilegt að
meta breytingar á starfsánægju á yfirstandandi um-
brotatímum í íslenskri heilbrigðisþjónustu. Þessi
athugun á starfsánægju er hluti af stærri rannsókn
þar sem skoðuð eru m.a. viðhorf til menntunarmála
og starfstengdrar streitu og væri fróðlegt að skoða
tengsl starfsánægju við þá þætti.
Rannsóknin var styrkt af Rannsóknasjóði Háskóla
íslands, Hjúkrunarfélagi íslands og Félagi háskóla-
menntaðra hjúkrunarfræðinga. Þessi hluti var
styrktur af Vinnueftirliti ríkisins í tilefni af vinnu-
verndarári.
Abstract
These are some of the results of a study made on Icelandic nurses
and their attitude towards work and education in the year of 1991.
The goal of this part of the study was, in the first place, to survey
which factors have greatest importance when measuring the Iceland-
ic nurses' job satisfaction, secondly, to examine the interaction of
job satisfaction and various factors characterizing nurses themseives
and their environment, and at last to compare the job satisfaction
of Icelandic nurses with that of their colleagues in USA. For col-
lection of data the Mueller McCloskey Satisfaction Scale was trans-
lated and applied. The results show that Icelandic nurses are rather
satisfied with their profession which is comparable with what has
been found in American studies. Most satisfied with their jobs are
graduated nurses and administrators. Least satisfied, on the other
hand, are those who have graduated from the Icelandic midwifery
school.
31