Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.1994, Page 33
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 70. árg. 1994
Þorgerður Ragnarsdóttir
Breytt menntastefna -
„námsskrárbylting"
Viðtal við Patriciu Moccia, framkvæmdastjóra og
varaformann National League for Nursing
Þegar námsbraut í hjúkrunarfrœði hélt upp á tuttugu ára afmœli
sitt 20. nóvember síðast liðinn voru margir merkir gestir við-
staddir. Fáir munu samt hafa komið jafnlangt að eins og Patricia
Moccia, varaformaður NLN í Bandaríkjunum. Eftir að hafa
haldið fyrirlestur í Háskólabíó fyrir afmœlisgesti og borðað stað-
góðan íslenskan fiskrétt kom hún sér fyrir með rjúkandi kaffibolla
í Norrœna húsinu, tilbúin að segja svolítið frá starfi sínu og hug-
myndum.
Patricia Moccia:
Lauk B.S. prófi í hjúkrunar-
fræði 1970 frá NY Univ.,
M.A. prófi í hjúkrunarkennslu
á sviði heilsugæslu 1975 og
doktorsprófi frá sama skóla
1980 með verkefni um sam-
band hugmyndafræði og starfs.
Hefur starfað sem heilsugæslu-
hjúkrunarfræðingur, hjúkrunar-
kennari við marga skóla í NY
og Columbiaháskóla í Banda-
ríkjunum. Leiðbeinandi dr.
Kristínar Björnsdóttur fyrir
doktorsritgerð hennar.
Bakgrunnur
Patricia Moccia er fædd og uppalin í New York borg. Hún er af '68 kynslóðinni og
segir að eins og hjá öðrum ungmennum á sjöunda áratugnum hafi vaknað hjá sér
mikill áhugi á réttindabaráttu minnihlutahópa. „Mamma hafði áhyggjur af mér því
að ég tók þátt í alls kyns mótmælagöngum og fundum þar sem stundum sló í
brýnu milli andstæðra fýlkinga. Hún lagði til að ég
virkjaði fremur áhuga minn með því að afla mér
menntunar til að starfa að almannaheill, velja mér
starfssvið þar sem ég gæti haft áhrif á samfélagið.
Eg held að það hafi beint mér inn á hjúkrunar-
brautina.“
Patricia hefur fjölbreyttan náms- og starfsferil
að baki sem smám saman leiddi til þess að hún
tók við því starfi sem hún gegnir nú.
„Alveg frá því ég var í grunnnámi í hjúkrun
hefur mér fundist að hjúkrunarfræðingar eigi að
vinna þar sem fólkið er. Þeir eiga ekki að vera
innilokaðar í einhverjum heilbrigðismusterum. Þeir
eiga að fara og leita uppi hvar er þörf fyrir þá.
Þess vegna byrjaði ég að starfa við heilsugæslu.
Þetta vatt síðan upp á sig. Ég byrjaði að halda
fræðsluerindi og vinna fræðsluefni fyrir samstarfs-
fólk mitt og skjólstæðinga. Svo fannst mér það of
þröngur hópur. Mig langaði að ná til fleira fólks
með hugmyndir mínar og fannst ég fá tækifæri til
þess með því að gerast kennari. Enn vildi ég
breikka áheyrendahópinn og gafst tækifæri til þess
33
•SY \
|