Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.1994, Page 41
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 70. drg. 1994
Islandi þurfum við fleiri hjúkrunarfræðinga
með meistarapróf og doktorspróf, fleiri hjúkr-
unarfræðinga sem stunda rannsóknir og fleiri
hjúkrunarfræðinga með hugsjónir sem láta sig
stjórnmál þjóðarinnar varða. Við sem störfum
að hjúkrunarkennslu berum ábyrgð á að
mennta hjúkrunarfræðinga sem hafa það að
keppikefli að láta gott af sér leiða á breiðari
grundvelli en áður. Til þess að þetta megi
verða þurfum við fjölbreyttan nemendahóp,
af báðum kynjum, á ýmsum aldri og með
ólíkan bakgrunn.
6. Hjúkrunarffæði og femínismi: Það eru til
ýmsar útgáfur af femínisma. Sumar greinar
femínisma finnst mér of öfgafullar, þar sem
allt sem neikvætt er í samskiptum fólks, t.d.
valdbeiting og drottnun, er karlkennt en allt
sem er jákvætt, t.d. umfaðmandi og upp-
byggjandi, kvenkennt. Þetta finnst mér vera
ofureinföldun. Þetta þýðir að konur, sem ekki
eru kærleiksríkar, eru flokkaðar sem „karlkon-
ur“, en karlmenn sem ekki sýna „karlrembu"
sem „mjúkir karlmenn“. Út frá öðrum hug-
tökum, t.d. umhyggju og umhyggjuleysi, er
hægt að meta fólk án þess að annað kynið sé
notað til þess að auðmýkja hitt (sbr. „karl-
kona“). Annars tek ég undir mikilvægi þess
að hjálpa fólki að vaxa í stað þess að drottna
yfir því. Alhæfingar um kynin tek ég hins
vegar ekki undir, til þess hef ég kynnst of
mörgum umhyggjusömum karlmönnum og
umhyggjusnauðum konum.
Ég lýsi ánægju minni með viðtalið við
Patriciu Moccia og að fá tækifæri til að bregðast
við ýmsu því sem þar kemur fram. Við þurfum
að skiptast meira á skoðunum varðandi
menntunarmál en verið hefur. Menntamál
hjúkrunarfræðinga eiga ekki að vera einkamál
okkar sem að hjúkrunarmenntun störfum. Til
þess að hjúkrunarnám sé ávallt sem best þurfa
sem flestir að leggja sitt af mörkum með mál-
efnalegri gagnrýni og vel ígrunduðum tillögum til
úrbóta.
41