Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Blaðsíða 7
20. öldin kvödd
Þó heilmikið hafi verið rætt um það um
síðustu áramót hvort nýja árið eða árið
2000 tilheyrði nýrri öld eða hinni gömlu,
þá tilheyrir árið sem nú er innan seilingar
óumdeilanlega 21. öldinni. Hið svo
kallaða aldamótaár, sem var nokkurs
konar málamiðlun milli þessara ólíku
viðhorfa, er senn á enda. Við sérhver
áramót stíga menn gjarnan á stokk, líta
yfir árið og gera upp lífsbókhaldið, gleði
ársins og sorgir og gera alls kyns
áramótaheit. Við næstu áramót er ekki
bara eitt ár kvatt heldur heil öld og
„aldrei hún kemur til baka". Við erum á
hraðri leið inn í framtíðina sem enginn
veit hvað ber í skauti sínu.
í þessu tölublaði er því við hæfi að
líta yfir farinn veg og skyggnast örlítið
fram á veginn, en hugleiðingar um
framtíðina bíða þó að mestu fyrsta
tölublaðs 2001. Erla Dóris Halldórsdóttir,
hjúkrunarfræðingur og sagnfræðingur,
hefur tekið saman yfirlit um sögu
Landspítala og fjallar þar m.a. um þátt
kvenna í stofnun spítalans, þessa merka
áfanga í heilbrigðisþjónustu hér á landi.
Hertha W. Jónsdóttir rekur sögu
barnahjúkrunar en hún er nýhætt
störfum sem hjúkrunarframkvæmdastjóri
og hefur frá mörgu að segja eftir 30 ára
starf á Barnaspítala Hringsins og hefur
gefið út rit um þróun hjúkrunar þar.
Á árinu var stofnuð hjúkrunarfræði-
deild við Háskóla ísland sem líta má á
sem viðurkenningu á umfangsmiklu og
margháttuðu starfi námsbrautarinnar og
staðfestingu á að hún hafi náð að
uppfylla allar starfskyldur háskólakennara.
Marga Thome er fyrsti deildarforseti
hinnar nýju deildar og segir okkur frá
helstu verkefnum sem fyrirhuguð eru á
næstu árum. Reykingar valda mestu
heilsuvandamálum samtímans og hefur
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO,
m.a. hvatt aðildaríki sín til að berjast gegn
þeim. Þær Dagmar Jónsdóttir og Helga
Jónsdóttir segja frá reykleysismeðferð en
reykingar heyra ef til vill sögunni til á 21.
öldinni.
Þá er sagt frá nýafstöðnu hjúkrunar-
þingi og ráðstefnu um upplýsingatækni
og hjúkrun sem var svo vel sótt að færri
komust að en vildu. Niðurstöður
könnunar á vinnuálagi og starfsánægju
hjúkrunarfræðinga eru kynntar en
Rannsóknarstofnun í hjúkrunarfræði var
falið að gera könnunina á fulltrúaþingi
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í maí
1997. Sífellt fleiri hjúkrunarfræðingar ráða
sig til starfa á almenna vinnumarkaðnum
og fjallar hagfræðingur félagsins um
ráðningarsamning á almenna
vinnumarkaðnum, ný lög um foreldra og
fæðingarorlof og stöðuna í kjaramálum.
Framundan eru jólin, ein mesta hátíð
kristinna manna. Og í tilefni þeirra fjallar
Arnfríður Guðmundsdóttir guðfræðingur
um þjáninguna og merkingu krossins,
endalok Krists sem fæddist á jólunum, en
krossinn hefur reynst kristnu fólki erfiður
allt frá fystu tíð því erfitt var fyrir þá sem
höfðu fylgt Jesú að verða vitni að
þjáningu hans og dauða. Hildur
Helgadóttir er með jólahugvekjuna.
Ýmislegt fleira má finna á síðum þessa
tölublaðs, vonandi við flestra hæfi.
Gleðileg jól og njótið farsældar á 21.
öldinni!
HARTMANN
Vernd fyrir viðkvæma húð
BEDCO & MATHIESEN EHF
Bæjarhrauni 10
sími 565 1000 • fax: 565 1001
Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 4. tbl. 76. árg. 2000
247