Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Blaðsíða 37
Samkomulag
Bandalags háskólamanna, BSRB og Kennara-
sambands íslands annars vegar og fjármálaráðherra
f.h. ríkissjóðs, Reykjavíkurborgar og launanefndar
sveitarfélaga hins vegar um tiltekin atriði er varða
réttindi starfsmanna í ofangreindum samtökum.
Samkomulagið byggist m.a. á nýjum lögum um fæð-
ingarorlof.
Veikindaréttur er samræmdur fyrir umrædd stéttar-
félög.
Greitt verður 0,41% af heildarlaunum í fjölskyldu- og
styrktarsjóð sem er ígildi sjúkrasjóða á almennum vinnu-
markaði. Hann greiðir einnig þann mismun sem getur
orðið á milli þeirra fæðingarorlofslaga, sem taka gildi um
næstu áramót, og þeirra réttinda sem reglugerð um
fæðingaroriof hefur veitt fólki til þessa.
Á meðan veikindaréttur stendur koma fullar greiðslur
miðað við viðmiðunarlaun allan tímann, en ekki full laun
fyrst og hálf laun svo eins og verið hefur.
Sérstakur réttur er vegna atvinnusjúkdóma og vinnu-
slysa sem nemur 13 vikum.
Réttur foreldra vegna veikinda barna eykst úr 7 dögum
í 10 daga.
Veikindaréttur starfsmanna verður með þessum hætti:
Starfstími: Fjöldi
Eftir 0-3 mánuði í starfi 14
Eftir næstu 3 mánuði í starfi 35
Eftir 6 mánuði í starfi 119
Eftir 1 ár í starfi 133
Eftir 7 ár í starfi 175
Eftir 12 ár í starfi 273
Eftir 18 ár í starfi 360
Starfsmaður, sem áunnið hefur sér fleiri veikindadaga
samkvæmt áður gildandi reglum, heldur þeim réttindum.
Réttindin flytjast með starfsmönnum þótt þeir færist úr
starfi, t.d. frá ríki til sveitarfélaga.
MINNISBLAÐ UM FYRIRKOMULAG Á FÆÐINGAROR-
LOFI
Einstaklingur:
Einstaklingur tilkynnir og semur við vinnuveitanda um töku
fæðingarorlofs, hvenær það hefst og hvernig tilhögun á því
verður.
Einstaklingur fyllir út sérstakt eyðublað (tilkynningu) þar að
lútandi í fjórriti þar sem vinnuveitandi tekur við sínu eintaki
ásamt eintaki fjölskyldu- og styrktarsjóðs og fæðingar-
orlofssjóðs.
Einstaklingurinn heldur sínu afriti.
Vinnuveitandi:
Vinnuveitandi framsendir afrit til fæðingarorlofssjóðs og
fjölskyldu- og styrktarsjóðs.
Vinnuveitandi gerir upp sumarorlof að loknu barnsburðar-
leyfi.
Vinnuveitandi greiðir orlofs- og desemberuppbót í sam-
ræmi við kjarasamninga.
Launagreiðandi ábyrgist lífeyrisskuldbindingar vegna b-
deildarfólks.
Vinnuveitandi sendir fjölskyldu- og styrktarsjóði upplýs-
ingar um launaforsendur m.v. núverandi réttindakerfi (ein-
ungis vegna kvenna).
Vinnuveitandi hefur fullnægt greiðslum í samningsbundna
sjóði stéttarfélaganna með framlagi sínu í fjölskyldu-, og
styrktarsjóð.
Fæðingarorlofssjóður:
Fæðingarorlofssjóður reiknar út þá upphæð sem greiða á
viðkomandi einstaklingi í fæðingarorlofi og greiðir laun
samkvæmt iögum um fæðingarorlof.
Fæðingarorlofssjóður dregur af staðgreiðslu og önnur lög-
boðin gjöld og stendur skil á þeim, heldur eftir framlagi í
lífeyrissjóð og stendur skil á því til viðkomandi sjóðs ásamt
mótframlagi.
Fæðingarorlofssjóður dregur af stéttarfélagsgjald og
stendur skil á því til viðkomandi stéttarfélags.
Fæðingarorlofssjóður sendir fjölskyldu- og styrktarsjóði
upplýsingar um greiðslur til einstaklinga (kvenna) í fæð-
ingarorlofi.
Fræðiritnefnd
Undanfarna mánuði og ár hefur mjög fjölgað innsend-
um greinum sem höfundar óska að verði ritrýndar. Til
að styrkja fræðilega stöðu blaðsins og flýta vinnslu
greinanna ákvað stjórn féiagsins á fundi sínum 11.
september að skipa tvo hjúkrunarfræðinga í hliðarrit-
nefnd sem fjalla skal um ritrýndu greinarnar. í fræðirit-
nefndinni eiga sæti dr. Kristín Björnsdóttir, dósent, og
Helga Lára Helgadóttir, lektor, báðar við hjúkrunar-
fræðideild Háskóla íslands. Varamaður er dr. Sigríður
Halldórsdóttir, prófessor í hjúkrunarfræði við Háskól-
ann á Akureyri. [ tengslum við þessar breytingar hafa
ritstjórnarstefna og leiðbeiningar til höfunda fræði-
greina verið endurskoðaðar og eru þær birtar í heild
sinni annars staðar í þessu tölublaði. Að þeim unnu
auk ritstjóra, Valgerðar Katrínar Jónsdóttur, þær Helga
Lára Helgadóttir, lektor, og dr. Helga Jónsdóttir,
dósent.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 76. árg. 2000
277