Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Blaðsíða 31
Helga Birna Ingimundardóttir
hagfræðingur
Ráðningarsamningar
k a[mtviiAA
Hjúkrunarfræðingar hafa um árabil
starfað að stórum hluta til í hinum
svokallaða opinbera geira, þ.e. hjá
ríki og sveitarfélögum. Síðustu ár
hefur orðið veruleg breyting í þá átt
að hjúkrunarfræðingar færi sig yfir á
hinn almenna vinnumarkað. Má þar
m.a. nefna heildverslanir með hjúkr-
unarvörur, lyfjafyrirtæki og fyrirtæki
sem starfa á rannsóknasviði af ýmsum toga. Er svo komið
að í fagdeild hjúkrunarfræðinga, sem starfa á almenna
markaðnum, eru um og yfir 50 hjúkrunarfræðingar. Er það
trú mín að hjúkrunarfræðingar eigi í framtíðinni eftir að
sækja í enn meira mæli inn á þennan markað og hætta
sem opinberir starfsmenn. Það er margt sem getur komið
til:
/ í fyrsta lagi má nefna meira framboð en verið hefur af
störfum fyrir hjúkrunarfræðinga á almenna markaðnum.
/ í öðru lagi geta þau störf talist eftirsóknarverðari fyrir
hjúkrunarfræðinga heldur en þau störf sem verið hafa í
boði fyrir hjúkrunarfræðinga inni á spítölum eða
stofnunum.
/ Launakjör geta í mörgum tilfellum verið betri en á
opinbera markaðnum.
/ í flestum tilfellum er um að ræða störf sem unnin eru á
dagvinnutíma.
Þrátt fyrir hina mörgu kosti, sem störf á almenna mark-
aðnum geta talist hafa umfram störf á opinbera markaðn-
um, eru réttindi og skyldur starfsmanna á almenna
markaðnum ekki í eins föstum skorðum og hjá starfs-
mönnum er starfa í opinbera geiranum. Má þar m.a. nefna
réttindi er varða barnsburðar- og veikindaleyfi, orlofsrétt-
indi, lífeyrismál ásamt öðrum atriðum í kjarasamningi
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Af þessum sökum
hefur það verið mikið kappsmál hjá fagdeild hjúkrunar-
fræðinga á almenna markaðnum að gera kjarasamning við
sína atvinnurekendur þar sem jöfnun réttinda ásamt
öðrum atriðum myndi verða höfð að leiðarljósi. ( þessu
tilfelli myndi vera gerður kjarasamningur við Samtök
verslunarinnar, áður Félag íslenskra stórkaupmanna, þar
sem fyrirtæki þau, sem um ræðir hér, eru innan vébanda
samtakanna.
Með bréfi í október 1999 óskaði Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga eftir því að hafinn yrði undirbúningur að
gerð samkomulags milli félagsins og samtakanna. Svar
barst frá Samtökum verslunarinnar í september 2000 eftir
að Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga var búið að ítreka
ósk um svar. í svari samtakanna kemur fram að Samtök
verslunarinnar hafni þeirri tillögu félagsins að gera sérstak-
an kjarasamning vegna hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá
fyrirtækjum sem aðild eiga að samtökunum. Þá er það
mat samtakanna að þau störf, sem hjúkrunarfræðingar
inna af hendi hjá fyrirtækjunum, séu verslunar- og sölustörf
en ekki hjúkrunar- eða aðhlynningarstörf og því ekki
ástæða til þess að gera sérstakan kjarasamning vegna
þeirra. Það er því Ijóst að þau fyrirtæki, sem eru innan
vébanda Samtaka verslunarinnar, telja störf hjúkrunar-
fræðinga ekki vera hjúkrunarstörf og telja sig því ekki þurfa
að gera kjarasamning við Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga. Þrátt yfir þessa afstöðu fyrirtækjanna þá er í flestum
tilfellum auglýst sérstaklega eftir hjúkrunarfræðingum.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga er mjög ósátt við
afstöðu Samtaka verslunarinnar fyrir hönd sinna félags-
manna og ætlar að halda áfram að leita leiða til þess að
kjör og réttindi þessa hóps megi verða sem best tryggð.
Ein leið til þess er að vera hjúkrunarfræðingum, sem huga
að störfum á þessum markaði, innan handar um sín kjara-
og réttindamál áður en skrifað er undir ráðningarsamning.
Óformlegur vinnuhópur innan Bandalags háskóla-
manna var starfandi í sumar og hafði það að markmiði að
útbúa ráðningarsamning fyrir háskólafólk sem starfar eða
hyggst starfa á almenna vinnumarkaðnum. Afrakstur
þeirrar vinnu er fullbúinn ráðningarsamningur sem
háskólafóik getur tekið mið af eða haft í huga þau atriði
sem þar koma fram þegar það ræður sig til starfa.
Ráðningarsamningurinn er birtur í heild sinni á heima-
síðunni www.hjukrun.is og einnig er unnt að nálgast hann
á skrifstofunni og er það von félagsins að hann komi þeim
hjúkrunarfræðingum til góða sem huga að störfum hjá
einkafyrirtækjum. Hins vegar mun Félag íslenskra hjúkr-
unarfræðinga halda enn áfram að leita leiða til þess að ná
fram kjarasamningum við heildarsamtök fyrirtækja þar sem
hjúkrunarfræðingar starfa.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 76. árg. 2000
271