Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Blaðsíða 23

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Blaðsíða 23
oa stAr{sÁÆ{lun vitMfnÁAr Tímarit hjúkrunarfræðinga er gefið út fimm sinnum á ári. Tímaritið er málgagn félagsmanna í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og í því er reynt að endurspegla ólíkar skoðanir og viðhorf til hjúkrunar. Félag íslenskra hjúkrunar- fræðinga leggur metnað sinn í að allir félagsmenn þess finni þar efni sér til gagns, fróðleiks og ánægju. Tímaritið er vettvangur fræðilegrar og félagslegrar umfjöllunar um hjúkrun. í faglega hluta tímaritsins eru birtar margvíslegar greinar sem fjalla um öll svið hjúkrunar. Greinar flokkast í tvennt, annars vegar fræðigreinar og hins vegar fræðslugreinar. Fræðigreinar eru rannsóknagreinar, yfirlitsgreinar og greinar sem á ýtarlegan hátt fjalla um þróun þekkingar í hjúkrun, hvort heldur sem er hjúkrunar- starfið, hjúkrunarstjórnun, hjúkrunarkennsla, hjúkrunar- rannsóknir eða stefnumótun í hjúkrunar- og heilbrigðis- þjónustunni. Lögð er áhersla á beitingu margvíslegra rannsóknaraðferða, fjölbreytileika í fræðilegri nálgun við- fangsefna og vönduð vinnubrögð. Flöfundar geta óskað eftir því að fræðigreinar verði ritrýndar. Við umfjöllun greina, sem óskað hefur verið eftir að verði ritrýndar, fylgir ritnefnd reglum sem fram koma í Handbók sálfræðiritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björns- son og gefin var út af Sálfræðingafélagi (slands í Reykjavík árið 1995. í handbókinni eru ýtarlegar leiðbeiningar um hvernig skrifa eigi handrit að fræðilegum tímaritsgreinum. í handbókinni er einnig að finna upplýsingar um vinnulag við umfjöllun á handriti sem óskað hefur verið eftir að sé ritrýnt og fylgir ritnefnd þeim leiðbeiningum. Flöfundar þurfa að fylgja þessum reglum í hvívetna en eru hvattir til að ráðfæra sig við ritnefnd ef þörf er á að víkja frá settum reglum. í örfáum atriðum víkur ritnefnd frá leiðbeiningum Hand- bókar sálfræðiritsins. Þau eru: Höfundar fá ekki tímarits- greinar sínar sérprentaðar heldur fá þeir aukaeintök af viðeigandi tímariti. Til að auðvelda flokkun efnis skulu fylgja með greinunum þrjú lykilorð. í handbókinni er lögð megin- áhersla á megindlegar rannsóknir, einkum tilraunir. Tímarit hjúkrunarfræðinga, bindur sig hins vegar ekki við megind- legar rannsóknir og er fengur að greinum sem nálgast við- fangsefni sín með margs konar aðferðafræði, svo sem greinum sem byggjast á eigindlegum rannsóknaraðferðum. Fræðslugreinar fjalla á hinn bóginn um margvísleg við- fangsefni hjúkrunar og byggjast að einhverju leyti á fræði- legum heimildum ásamt athugunum og/eða reynslu höf- unda. Þar skiptir miklu frumleiki í umfjöllun og efnistökum, menningarlegur margbreytileiki í hjúkrun og þróun hjúkrunar. í blaðinu er einnig að finna viðtöl við fólk um hjúkrun og aðrar faglegar upplýsingar sem eiga erindi til hjúkrunarfræðinga. í félagslega hluta tímaritsins eða fréttahlutanum er greint frá kjaramálum og því sem er að gerast hjá félaginu. Þar er einnig að finna fréttir frá svæðanefndum félagsins. Sömuleiðis er þar greint frá því helsta sem er á döfinni hjá fagdeildum félagsins. Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa og rekstur tíma- ritsins sé í samræmi við ritstjórnarstefnu þess. Ritstjóri ásamt ritnefnd leggur metnað í að tímaritið sé vandað að því er varðar efni, málfar og útlit. Áhersla er lögð á að fræðigreinar standist vísindalegar kröfur. Formaður félagsins ber ábyrgð á félagslegu efni þess öðru en aðsendum greinum. Höfundar aðsendra greina bera ábyrgð á efni þeirra. Skoðanir, sem í þeim birtast, þurfa ekki að samrýmast stefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Leiðbeiningar til höfunda tímaritsgreina Tímaritsgreinar eru sendar til ritstjóra tímaritsins, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík. Einn höfundanna þarf að vera ábyrgur fyrir samskiptum við ritstjóra og nafn hans þarf að koma fram í bréfi sem sent er með handritinu. Frágangur handrits Við ritun greina þurfa höfundar að styðjast við Handbók sálfræðiritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björns- son sem gefin var út af Sálfræðingafélagi íslands í Reykjavík árið 1995. ( handbókinni eru ýtarlegar leiðbeiningar um hvernig skrifa eigi handrit að fræðilegum tímaritsgreinum. Á forsíðu handritsins þarf að koma fram heiti tímarits- greinarinnar, nafn/nöfn höfundar/höfunda; vinnustaður/vinnu- staðir höfunda(r); heimilisfang og símanúmer þess höfundar sem er ábyrgur fyrir samskiptum við ritstjóra fræðigreina. Útdráttur, sem er á 2. bls., á að vera 100-150 orð. Lengd tímaritsgreinar skal vera 3000 - 5000 orð. Handritið í heild sinni ásamt texta, myndum, töflum o.s.frv. skal vera með tvöföldu línubili. Öll handrit skulu send inn í þremur eintökum sem ekki eru með nafni höfunda(r). Handrit skulu ekki hafa birst annars staðar þegar óskað er eftir að þau séu ritrýnd. Útgáfuferli Þegar handrit berst til ritstjóra er haft samband við þann höfund sem er ábyrgur fyrir samskiptum við ritstjóra og honum tilkynnt skriflega að greinin hafi borist. Þegar óskað er eftir birtingu ritrýndra fræðigreina lesa fulltrúar í fræðirit- nefnd handritið og ákveða hvort það verður sent til umsagnar. Ritnefnd les allar aðrar fræðslugreinar og tekur afstöðu um hvort eigi að birta þær. Stuðst er við þau viðmið sem fram koma í Handbók sálfræðiritsins við mat á tímaritsgreinum. Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 76. árg. 2000 263
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.