Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Page 23
oa stAr{sÁÆ{lun vitMfnÁAr
Tímarit hjúkrunarfræðinga er gefið út fimm sinnum á ári.
Tímaritið er málgagn félagsmanna í Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga og í því er reynt að endurspegla ólíkar
skoðanir og viðhorf til hjúkrunar. Félag íslenskra hjúkrunar-
fræðinga leggur metnað sinn í að allir félagsmenn þess
finni þar efni sér til gagns, fróðleiks og ánægju.
Tímaritið er vettvangur fræðilegrar og félagslegrar
umfjöllunar um hjúkrun. í faglega hluta tímaritsins eru birtar
margvíslegar greinar sem fjalla um öll svið hjúkrunar.
Greinar flokkast í tvennt, annars vegar fræðigreinar og hins
vegar fræðslugreinar. Fræðigreinar eru rannsóknagreinar,
yfirlitsgreinar og greinar sem á ýtarlegan hátt fjalla um
þróun þekkingar í hjúkrun, hvort heldur sem er hjúkrunar-
starfið, hjúkrunarstjórnun, hjúkrunarkennsla, hjúkrunar-
rannsóknir eða stefnumótun í hjúkrunar- og heilbrigðis-
þjónustunni. Lögð er áhersla á beitingu margvíslegra
rannsóknaraðferða, fjölbreytileika í fræðilegri nálgun við-
fangsefna og vönduð vinnubrögð. Flöfundar geta óskað
eftir því að fræðigreinar verði ritrýndar.
Við umfjöllun greina, sem óskað hefur verið eftir að verði
ritrýndar, fylgir ritnefnd reglum sem fram koma í Handbók
sálfræðiritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björns-
son og gefin var út af Sálfræðingafélagi (slands í Reykjavík
árið 1995. í handbókinni eru ýtarlegar leiðbeiningar um
hvernig skrifa eigi handrit að fræðilegum tímaritsgreinum. í
handbókinni er einnig að finna upplýsingar um vinnulag við
umfjöllun á handriti sem óskað hefur verið eftir að sé ritrýnt
og fylgir ritnefnd þeim leiðbeiningum. Flöfundar þurfa að
fylgja þessum reglum í hvívetna en eru hvattir til að ráðfæra
sig við ritnefnd ef þörf er á að víkja frá settum reglum.
í örfáum atriðum víkur ritnefnd frá leiðbeiningum Hand-
bókar sálfræðiritsins. Þau eru: Höfundar fá ekki tímarits-
greinar sínar sérprentaðar heldur fá þeir aukaeintök af
viðeigandi tímariti. Til að auðvelda flokkun efnis skulu fylgja
með greinunum þrjú lykilorð. í handbókinni er lögð megin-
áhersla á megindlegar rannsóknir, einkum tilraunir. Tímarit
hjúkrunarfræðinga, bindur sig hins vegar ekki við megind-
legar rannsóknir og er fengur að greinum sem nálgast við-
fangsefni sín með margs konar aðferðafræði, svo sem
greinum sem byggjast á eigindlegum rannsóknaraðferðum.
Fræðslugreinar fjalla á hinn bóginn um margvísleg við-
fangsefni hjúkrunar og byggjast að einhverju leyti á fræði-
legum heimildum ásamt athugunum og/eða reynslu höf-
unda. Þar skiptir miklu frumleiki í umfjöllun og efnistökum,
menningarlegur margbreytileiki í hjúkrun og þróun hjúkrunar.
í blaðinu er einnig að finna viðtöl við fólk um hjúkrun og aðrar
faglegar upplýsingar sem eiga erindi til hjúkrunarfræðinga.
í félagslega hluta tímaritsins eða fréttahlutanum er
greint frá kjaramálum og því sem er að gerast hjá félaginu.
Þar er einnig að finna fréttir frá svæðanefndum félagsins.
Sömuleiðis er þar greint frá því helsta sem er á döfinni hjá
fagdeildum félagsins.
Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa og rekstur tíma-
ritsins sé í samræmi við ritstjórnarstefnu þess. Ritstjóri
ásamt ritnefnd leggur metnað í að tímaritið sé vandað að
því er varðar efni, málfar og útlit. Áhersla er lögð á að
fræðigreinar standist vísindalegar kröfur.
Formaður félagsins ber ábyrgð á félagslegu efni þess
öðru en aðsendum greinum. Höfundar aðsendra greina bera
ábyrgð á efni þeirra. Skoðanir, sem í þeim birtast, þurfa ekki
að samrýmast stefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Leiðbeiningar til höfunda tímaritsgreina
Tímaritsgreinar eru sendar til ritstjóra tímaritsins, Félagi
íslenskra hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22, 108
Reykjavík. Einn höfundanna þarf að vera ábyrgur fyrir
samskiptum við ritstjóra og nafn hans þarf að koma fram í
bréfi sem sent er með handritinu.
Frágangur handrits
Við ritun greina þurfa höfundar að styðjast við Handbók
sálfræðiritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björns-
son sem gefin var út af Sálfræðingafélagi íslands í Reykjavík
árið 1995. ( handbókinni eru ýtarlegar leiðbeiningar um
hvernig skrifa eigi handrit að fræðilegum tímaritsgreinum.
Á forsíðu handritsins þarf að koma fram heiti tímarits-
greinarinnar, nafn/nöfn höfundar/höfunda; vinnustaður/vinnu-
staðir höfunda(r); heimilisfang og símanúmer þess höfundar
sem er ábyrgur fyrir samskiptum við ritstjóra fræðigreina.
Útdráttur, sem er á 2. bls., á að vera 100-150 orð.
Lengd tímaritsgreinar skal vera 3000 - 5000 orð.
Handritið í heild sinni ásamt texta, myndum, töflum o.s.frv.
skal vera með tvöföldu línubili.
Öll handrit skulu send inn í þremur eintökum sem ekki
eru með nafni höfunda(r). Handrit skulu ekki hafa birst
annars staðar þegar óskað er eftir að þau séu ritrýnd.
Útgáfuferli
Þegar handrit berst til ritstjóra er haft samband við þann
höfund sem er ábyrgur fyrir samskiptum við ritstjóra og
honum tilkynnt skriflega að greinin hafi borist. Þegar óskað
er eftir birtingu ritrýndra fræðigreina lesa fulltrúar í fræðirit-
nefnd handritið og ákveða hvort það verður sent til
umsagnar. Ritnefnd les allar aðrar fræðslugreinar og tekur
afstöðu um hvort eigi að birta þær. Stuðst er við þau
viðmið sem fram koma í Handbók sálfræðiritsins við mat á
tímaritsgreinum.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 76. árg. 2000
263