Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Page 12

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Page 12
vegar á aö nikótínlyfjameðferð eigi skilyrðislaust að vera þáttur í reykleysismeðferð nú um stundir (Griebel, Wewers og Baker, 1998). Flestar rannsóknir á meðferð til að hætta reykingum byggjast á aðferðum sem þróaðar hafa verið af öðrum faghópum en hjúkrunarfræðingum. Útfærslu á því, hvernig samskiptum við þátttakendur er háttað, er yfirleitt ekki lýst. í þeim tveim gerðum meðferðarforma, sem hér er lýst, var byggt á þekkingu sem fyrir liggur um reykleysismeðferð en auk þess lögð áhersla á myndun meðferðarsambands við þátttakendur (Kozier, Erb, Blais og Wilkinson, 1995) og að hagnýta eflingarmátt samskipta í hópum (Kaas og Richie, 1999). Meðferðarsamband einkennist af vitsmunalegum og tilfinningalegum tengslum á milli hjúkrunarfræðings og skjólstæðings þar sem athyglinni er beint að skjólstæð- ingnum. Forsendur fyrir myndun þessa sambands eru að hjúkrunarfræðingur og skjólstæðingur treysti, virði og viðurkenni hvort annað og að hjúkrunarfræðingur ali önn fyrir, vilji og geti hjálpað. Myndun meðferðarsambands á þessum forsendum vísar til siðferðilegrar hugsjónar fremur en að tileinka sér ákveðna hegðun og tækni í samskiptum. Þessari siðferðilegu hugsjón er ætlað að hvetja til varð- veislu og verndunar mannlegrar reisnar (Gadow, 1985). AÐFERÐ Framkvæmd og úrtak Með aðlögðuðu tilraunasniði var borinn saman árangur tveggja meðferðarforma til reykleysis, annars vegar á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur og hins vegar í líkams- ræktarstöð. Námskeið til að hjálpa fólki að hætta að reykja voru auglýst á hvorum stað og þátttakendur komu af frjálsum og fúsum vilja og þeir greiddu fyrir námskeiðin. Námskeiðið í líkamsræktarstöðinni var dýrara en hið fyrr- nefnda. Meðferðin, sem stóð í eitt ár, var veitt í 10 hópum; 5 hópar fengu meðferð samkvæmt Meðferð 1 (n=34) og 5 hópar samkvæmt Meðferð 2 (n=33). Engir tveir hópar byrjuðu samtímis en skörun varð á meðferðartímabilum þannig að meðferð allra hópanna stóð í 17 mánuði. Fengin voru leyfi fyrir rannsókninni hjá stjórn og siðanefnd Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkur og hjá Tölvunefnd. Rannsóknin var ekki styrkt af lyfjafyrirtæki eða öðrum hagsmunaaðilum. Notað var þægindaúrtak kvenna og karla þar sem þátttakendur komu að eigin frumkvæði. Lýðfræðileg ein- kenni þeirra voru lík nema hvað varðar kynjaskiptingu en konur voru fleiri í Meðferð 1 og öfugt í Meðferð 2 (sjá töflu 2). Nikótínfíkn þátttakenda var svipuð í báðum hópum. Gagnasöfnun Rannsóknargögnum var safnað í hvert skipti sem hjúkr- unarfræðingurinn átti samskipti við þátttakendur. Byggt var á áætlun sem starfsfólk á lungna- og berklavarnadeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur hefur þróað (Blöndal o.fl., 1999; Blöndal o.fl., 1997). Ýtarlegasta gagnasöfnun 252 Tafla 2 Lýðfræðileg einkenni meðferðarhópa Breytur Meðferð 1 Hefðbundin meðferð (n=34) Meðferð 2 Hefðbundin með líkamsrækt (n=33) Kyn [%]* Karlar Konur 38,2 (n=13) 61,8 (n=21) 63,6 (n=21) 36,4 (n=12) Meðalaldur [árj* Karlar Konur 43,5 (SD=11,9) 44.7 (SD=11,2) 42.8 (SD=12,6) 39,3 (SD=9,0) 39,5 (SD=9,8) 38,7 (SD=7,8) Meðalgildi á kvarða Fagerström á nikótínfíkn (0-10)* 5,9 (SD=1,8) 5,8 (SD=1,5) Meðalþyngd * [kg[ 73,6 (SD=13,3) 71,9 (SD=12,4) * Tölfræðilega ekki marktækt við p=0,05. var við upphaf og lok meðferðar. Aðalþættir gagnasöfn- unar voru: líkamlegt ástand, áhugahvöt til að hætta að reykja, nikótínfíkn samkvæmt kvarða Fagerström (Heatherton, Kozlowski, Frecker og Fagerstöm, 1991), reykingavenjur, samstarfsvilji við meðferðaraðila og hópinn, þyngdarmæling, mæling á kolmónoxíði (CO) og áfengis- notkun. í hvert skipti var athugað hvort eða hversu lengi þátttakendur höfðu reykt. Mat á árangri Byggt var á tveimur viðmiðum: a) Hvort þátttakendur hefðu verið algjörlega reyklausir frá upphafsdegi með- ferðar, þ.e. í eitt ár, eða „lapse free abstinence time“ (LFAT). Ef þátttakendur höfðu reykt, hversu lítið eða sjaldan sem það var á tímabilinu, tölust þeir reykja. b) Líkamsþyngd var mæld af meðferðaraðilanum viku fyrir fyrsta hópfund og af þátttakendum sjálfum heima hjá sér við lok meðferðar. Tölfræðiútreikningar Reiknuð var tíðni lýðfræðilegra breyta og annarra megin- breyta með kí-kvaðratprófi. Samanburður á reykleysi og þyngdaraukningu á milli meðferðarhópa í lok meðferðar var reiknuð með tvíhliða t-prófi. Marktæknimörk voru sett við p=0,05. Hlutfallslíkur (odds ratio) voru einnig reiknaðar á mismun á tíðni reykleysis á milli hópa í lok meðferðar. Meðferð Meðferð 1 - Hefðbundin meðferð í hinni hefðbundnu meðferð fólst nikótínlyfjameðferð, einstaklingsráðgjöf í eitt ár og hópráðgjöf í einn mánuð með 5 fundum. Viku fyrir reykbindindi fékk hver einstakl- ingur ýtarlega ráðgjöf og gagnasöfnun hófst. Ráðgjöf í gegnum síma var veitt í fjögur skipti. Hún var veitt 3 vikum eftir síðasta hópfund, 6 vikum eftir hann, 3 mánuðum síðar og 6 mánuðum eftir það (einu ári eftir fyrsta dag reyk- Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.