Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Page 33
þar hefur mikil aukning orðið á síma- og viðtalsmeðferð og
áhersla verið lögð á einstaklingsbundna meðferð. Þá fjallaði
Ásta Thoroddsen, lektor við HÍ, um flokkun varðandi margs
konar hjúkrunarmeðferð. Hún sagði flokkunarkerfi mikilvæg
fyrir flestar vísindagreinar og sagði frá tveimur kerfum, NIC,
Nursing Intervention Classification, og ICNP, International
Classification for Nursing Practice. Að loknu kaffihléi var
unnið í hópum og niðurstöður hópanna hengdar upp til
kynningar og verða þær notaðar við að móta stefnu
félagsins varðandi ýmiss konar hjúkrunarmeðferð.
Að loknu hádegishléi fluttu nokkrir hjúkrunarfræðingar,
sem stunda stoðmeðferð, framsöguerindi, lýstu meðferð-
inni, rökum fyrir henni, hvernig hún hefur reynst og á hvern
hátt hún styður við þá hjúkrun sem veitt er. Þetta voru þær
Guðrún Hauksdóttir sem fjallaði um höfuðbeina- og spjald-
hryggsjöfnun, Rósa Guðmundsdóttir og Helga Hilmars-
dóttir sem sögðu frá hugrænni atferlismeðferð, Salbjörg
Bjarnadóttir og Unnur Heba Steingrímsdóttir sem sögðu frá
meðferð sem byggist á dáleiðslu, Rósa Jónsdóttir sem
sagði frá reykleysismeðferð, Hrund Helgadóttir sem fjallaði
um nudd og pólun og Margrét Hákonardóttir sem sagði frá
bæninni sem meðferðarformi. Að loknu kaffihléi voru
pallborðsumræður. Þátttakendur voru Herdís Sveinsdóttir,
Jóhanna Bernharðsdóttir, Nanna Friðriksdóttir, Vilborg
Ingólfsdóttir og Lilja Björk Kristinsdóttir. Að umræðunum
loknum sleit Herdís Sveinsdóttir, formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, þinginu. Fundarstjórar voru Laura
Scheving Thorsteinsson og Sigrún Gunnarsdóttir.
-vkj
Jólamyndin í ár!
Sambíóin bjóða hjúkrunarfræðingum 2 miða fyrir 1 á
myndina Nurse Betty 15. til18. desember í
Bíóhöllinni, Álfabakka.
Nurse Betty er grín- og spennumynd með þeim
Renée Zellweger, Morgan Freeman og Chris Rock í
aðalhlutverkum. Klippið tilboðið út og afhendið í
miðasölu. Góða skemmtun!
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Hjúkrunarfræðingar -
ljósmæður
Fjórðungssjákrahásið á Akureyri er
annað stærsta sjákrahás landsins og
hefur það að markmiði að veita
sjáklingum og aðstandendum þeirra
áreiðanlega, markvissa og
fj ölskylduvæna heilbrigðisþj ónustu.
Fjórðungssjákrahásið á Akureyri hefur
nána samvinnu við háskólana í landinu
og lögð er áhersla á símenntun á sviði
heilbrigðismála og rannsóknir á sviði
heilbrigðisvísinda.
Fjórðungssjákrahásið vantar hjákrunar-
fræðinga og ljósmæður til starfa ná
þegar eða eftir samkomulagi, sérstak-
lega vantar hjákrunarfræðinga á
skurðstofu og gjörgæslu. Um er að
ræða fastar stöður og afleysingastöður.
Boðin er einstaklingshæfð aðlögun
með reyndum hjákrunarfræðingum
og ljósmæðrum.
Starfshlutfall og starfstími eftir
samkomulagi.
Upplýsingar gefur Þóra Akadóttir,
starfsmannastjóri hjákrunar, sími
463 0273 og netfang thora@fsa.is
Laun samkvæmt gildandi kjarasamn-
ingum viðkomandi stéttarfélags og
fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs.
Reyklaus vinnustaður
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 76. árg. 2000
273