Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Side 36

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Side 36
im fœ&ÍHAAX'- oa {oxdÁxAoÁo^ Hinn 9. maí 2000 voru samþykkt á Alþingi ný lög um fæö- ingar- og foreldraorlof er faka til réttinda foreldra á inn- lendum vinnumarkaði. Gildistaka þeirra er frá og með 1. janúar 2001. Þá var einnig skrifað undir samkomulag milli Bandalags háskólamanna, BSRB og Kennarasambands íslands annars vegar og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs, Reykja- víkurborgar og launanefndar sveitarfélaga hins vegar um tiltekin atriði er varða réttindi starfsmanna í ofangreindum samtökum, auk Félags íslenskra leikskólakennara. Sam- komulagið tekur gildi frá og með 1. janúar 2001. Hér á eftir verður gerð stuttlega grein fyrir fæðingar- og foreldraorlofinu annars vegar og samkomulagi um rétt- indamálin hins vegar. Þess ber að sjálfsögðu að gæta, að hægt er að nálgast hvort tveggja í heild sinni á vef Banda- lags háskólamanna í gegnum heimasíðu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga www.hjukrun.is. Lög um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000 Lög um fæðingar- og foreldraorlof taka til réttinda for- eldra á innlendum vinnumarkaði. Markmið laganna er að tryggja barni samvistir bæði við föður og móður og þeim er ætlað að gera bæði konum og körlum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Fæðingarorlofssjóður skal annast greiðslur til foreldra sem réttinda njóta til greiðslu í fæðingarorlofi. Fæðingar- og foreldraorlof samkvæmt lögum þessum er leyfi frá launuðum störfum sem stofnast við: a. fæðingu, b. frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða c. töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Foreldrar eiga sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs í allt að þrjá mánuði hvort um sig vegna fæðingar, frumættleiðingar eða töku barns í varanlegt fóstur. Auk þess eiga foreldrar sameiginlegan rétt á þremur mánuðum til viðbótar sem annað foreldrið getur tekið í heild eða foreldrar skipt með sér. Réttur til fæðingarorlofs fellur niður er barnið nær 18 mánaða aldri. Þegar starfsmaður hyggst nýta sér rétt til fæðingar- orlofs skal hann tilkynna það vinnuveitanda eins fljótt og kostur er og í síðasta lagi átta vikum fyrir áætlaðan fæðingardag barns. Starfsmaður skal eiga rétt á að taka fæðingarorlof í einu lagi. Með samkomulagi við vinnuveitanda er starfs- manni þó heimilt að haga fæðingarorlofi á þann veg að 276 það skiptist niður á fleiri tímabil og/eða það verði tekið samhliða minnkuðu starfshlutfalli. Mánaðarleg greiðsla fæðingarorlofssjóðs til starfs- manns í fæðingarorlofi skal nema 80% af meðaltali heildar- launa og skal miða við 12 mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveimur mánuðum fyrir upphafsdag fæðingarorlofs. Fæðingarorlof reiknast til starfstíma við mat á starfs- tengdum réttindum, svo sem rétti til orlofstöku og lenging- ar orlofs samkvæmt kjarasamningum, starfsaldurshækk- ana, veikindaréttar, uppsagnarfrests og réttar til atvinnu- leysisbóta. Foreldrar eiga sameiginlegan rétt á lengingu fæðingar- orlofs um þrjá mánuði fyrir hvert barn umfram eitt. Foreldri skal eiga rétt á foreldraorlofi í 13 vikur til að annast barn sitt. Foreldraorlofi fylgir ekki réttur til greiðslu launa úr fæðingarorlofssjóði. Ákvæði um foreldraorlof veita foreldrum barna, sem fædd eru, ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur 1. janúar 1998 eða síðar, rétt til töku foreldraorlofs. Lög þessi öðlast þegar gildi. Ákvæði um fæðingarorlof koma til framkvæmda 1. janúar 2001. Sjálfstæður réttur föður til fæðingarorlofs skal vera einn mánuður frá og með 1. janúar 2001, tveir mánuðir frá og með 1. janúar 2002 og þrlr mánuðir frá og með 1. janúar 2003. Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.