Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Side 45
523. Hlutfallsleg svörun frá þessum 23 er eins og áður
sagði 69,0% en það samsvarar 16 einstaklingum. Þessum
16 einstaklingum var bætt við þá 203 sem svöruðu
póstlistakönnuninni og var því heildarsvörunin 219 úr 522
manna úrtaki eða 42,0%.
Samanburður á þátttakendum og þýði starfandi hjúkrunar-
fræðinga
Til að leggja mat á hversu raunsanna mynd þeir sem
svöruðu spurningalistunum gefa af þýði starfandi hjúkr-
unarfræðingum voru eftirtaldar lýðfræðilegar upplýsingar
um hópana bornar saman: aldur, kyn, starfshlutfall og
menntun.
Aldur
[ könnuninni var spurt um aldur þátttakenda og svöruðu
217 þátttakendur (99,1%) þeirri spurningu. Þegar svör
þátttakenda eru borin saman við aldur íslenskra hjúkrunar-
fræðinga eins og hann birtist í félagaskrá Fíh árið 1999
kemur í Ijós að meðalaldur hópanna er nær því sá sami,
en meðalaldur svarenda var 43,1 ár og meðalaldur
þýðisins 42,8 ár árið 1999 þegar gagnaöflunin fór fram.
Eins og sjá má af mynd 1 er aldursdreifing þýðisins og
þeirra sem svöruðu spurningalistanum mjög áþekk. Kí-
kvaðratpróf sýnir að ekki er tölfræðilega marktækur munur
á milli aldursdreifingar þýðisins og svarenda (x2 =2,52;
df=7; 0,96>p>0,2).
Kyn
Samkvæmt skrá Fíh yfir starfandi hjúkrunarfræðinga er
fjöldi karla, sem starfa við hjúkrun, 25 eða 1,1%. Af þeim
217 (99,1%) þátttakendum, sem svöruðu spurningu um
kyn, voru 3 karlar eða 1,4%. Þó hér sé um lágar tölur að
ræða má segja að könnunin gefi raunsanna mynd af
kynjaskiptingu íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Starfshlutfall
Tvö hundruð og þrettán (97,3%) þátttakenda svöruðu
spurningu um starfshlutfall og var meðalstarfshlutfall þeirra
82,4% (SD=18,3). Samkvæmt félagaskrá Fíh er meðal-
starfshlutfall starfandi hjúkrunarfræðinga 75,5 %
(SD=23,26). Samkvæmt þessu hefur starfshlutfall áhrif á
svörun á þann hátt að því lægra sem starfshlutfallið er því
minni verður svörunin (mynd 2). Aðeins 2,3% þeirra sem
svöruðu spurningalistanum vinna 45% eða minna starfs-
hlutfall við hjúkrun samanborið við 10,1% allra starfandi
hjúkrunarfræðinga. Þegar starfshlutfallið verður meira en
76% fjölgar svarendum hlutfallslega. Með öðrum orðum,
svarhlutfall þeirra sem vinna fullt starf eða nærri fullt starf
við hjúkrun er til muna hærra en svarhlutfall þeirra sem
hafa hjúkrun að hlutastarfi. Kí-kvaðratpróf leiðir í Ijós að
tölfræðilega er marktækur munur á milli starfshlutfalls
þýðisins og svarenda (x2 =25,53; df=3; p<0,001).
Mynd 1
Aldursdreifing hjúkrunarfræðinga
■ Þýði ■ Svarcndur
4 |_
vz
■ to i msm
n i i i i m i i i i i
21-29 30-34 35-39 40-44 45-49 50-54 55-59 60 ára
ára ára ára ára ára ára ára og eldri
Mynd 2
Starfshlutfall hjúkrunarfræðinga
■ Þýði ■ Svarendur
Menntun
Eins og sjá má á mynd 3 endurspegla þátttakendur í
könnuninni ágætlega menntun starfandi hjúkrunarfræð-
inga. Að einu leyti er hópur þátttakenda þó ólíkur hópi
starfandi hjúkrunarfræðinga því hjúkrunarfræðingar, sem
lokið hafa sérskipulögðu námi í hjúkrun og hafa því tvöfalt
hjúkrunarpróf, eru mun líklegri til að svara. 9% þátttak-
enda hafa lokið sérskipuiögðu námi samanborið við 5%
starfandi hjúkrunarfræðinga. Kí-kvaðratpróf sýnir að
munurinn á milli menntunar þýðisins og svarenda nálgast
að vera tölfræðilega marktækur við marktæknimörk 0,05
(X2 =7,65; df=3; 0,1 >p>0,05). Ef hjúkrunarfræðingar, sem
lokið hafa sérskipulögðu námi, eru undanskildir er nær
enginn munur á menntun hópanna (x2 =0,28; df=2;
0,9>p>0,8).
Greining niðurstaðna
Svör við spurningalistanum voru greind með eftirfarandi
bakgrunnsbreytum: aldri, starfsaldri, námi, starfshlutfalli,
stofnun, stöðu. Þar sem aðeins 3 af 216 þáttakenndum
eru karlar verða niðurstöður ekki greindar eftir kyni.
285
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 76. árg. 2000