Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Page 2
íbúfen® ’ - Bólgueyðandi og verkjastillandi
Notkunarsvið: íbúfen inniheldur íbúprófen sem er bólgueyðandi, verkjastillandi og jafnframt hitalækkandi lyf. Lyfið
er notað við liðagigt, slitgigt, tíðaverkjum, tannpínu og höfuðverk. Einnig má nota það sem verkjalyf eftir minniháttar
aðgerðir, t.d. tanndrátt. Varúðarreglur: Fólk sem hefur ofnæmi fyrir íbúprófeni eða er með skerta lifrarstarfsemi má
ekki nota lyfið. Fólk sem hefur fengið astma, nefslímubólgu eða ofsakláða eftir töku acetýlsalicýlsýru eða annarra
bólgueyðandi lyfja (annarra en barkstera) ætti ekki að nota lyfið. Nota skal lyfið með varúð hjá fólki með tilhneigingu
til magasárs eða sögu um slík sár. Lyfið er ekki ætlað barnshafandi konum. Aukaverkanir: (búfen getur valdið
aukaverkunum eins og t.d. ofnæmi (útbrot) og meltingaróþægindum. Skömmtun: Nákvæmar leiðbeiningar um
skömmtun fylgja lyfinu. Ekki má taka stærri skammta en mælt er með. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu.
14.09.05
hagur í heilsu