Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Blaðsíða 52

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Blaðsíða 52
Tafla 2. Helstu kostir og gallar námskeiösins? Helstu kostir námskeiðsins: Fjöldi Að geta unnið þegar manni hentar 12 Að öðlast aukna þekkingu og færni sem nýtist í starfi 11 Efni námskeiðsins er markvisst, hvetjandi og skemmtilegt 4 Opnar umræður á netinu við aðra hjúkrunarfræðinga eru áhugaverðar 3 Netnámskeið er spennandi og skemmtileg nýbreytni 2 Að vera nettengd 1 Efni námskeiðsins nýtist við hjúkrun annarra sjúklingahópa 1 Helstu galiar námskeiðsins: Fjöldi Of lítill tími gefst til að sinna því 12 Námskeiðið tekur of langan tíma 4 Námskeiðið tekur of stuttan tíma 2 Námskeiðið er viðbót við fulla vinnu 2 Það vantaði umræður um einstök atriði 2 Truflun við iestur námsefnis 1 Námsefni er stundum endurtekið 1 Of lítið kennt um meðferðarúrræði 1 Ástæður þess voru að þeirra sögn ekki hræðsla við tæknina heldur vinnuálag og tímaskortur, eins og þekkist á hefðbundnum námskeiðum. Ætla má að sömu ástæður séu fyrir brottfalli hjá íslenskum hjúkrunarfræðingum. Hjúkrunarfræðingarnir, sem tóku þátt, töldu allir að færni þeirra til þess að annast konur með andlega vanlíðan eftir barnsburð hefði aukist. En nýta þeir sér aukna færni og þekkingu til þess að veita betri hjúkrun? Að sögn Atacks (2003) hafa engar rannsóknir verið birtar sem sýna að netnámskeið leiði til breytinga á starfsemi og betri hjúkrunar. í viðtölum, sem tekin voru sex vikum eftir að hjúkrunarfræðingar luku netnámskeiði, kom fram í rannsókn Atacks og Rankins (2002) að þeir töldu sig starfa öðruvísi en fyrir námskeiðið en samt hefðu ýmsar hindranir staðið í vegi fyrir því. Til dæmis væru stjórnendur ekki með á nótunum og of fáir hjúkrunarfræðingar tileinkuðu sér hina nýju starfshætti. Þessi atriði eiga eflaust ekki bara við netnámskeið heldur einnig við hefðbundin námskeið, en samanburður á þessum námsformum hefur sýnt að árangur þeirra er sambærilegur (Billings, 1996; Debourgh, 2003). Áhugavert er að langflestir þátttakenda myndu ráðleggja öðrum hjúkrunarfræðingum að taka þetta námskeið en samt segjast aðeins 30% þeirra myndu vilja taka sambærilegt netnámskeið um annað efni. Rúmlega helmingur þátttakenda segist myndu vilja taka sambland af netnámskeiði og hefðbundnu námskeiði en slík námskeið geta verið æskileg fyrir nemendur sem ekki hafa enn lært að fóta sig á veraldarvefnum (Kozlowski, 2002). Þetta ætti að hafa í huga við skipulagningu námskeiða. Helsti galli námskeiðsins að mati þátttakenda reyndist vera hversu tímafrekt það er en 58% fannst vinnuálag vera of mikið. Rannsóknir hafa sýnt að nám sé alltaf í öðru sæti þegar það er stundað á vinnustað og að þjónusta við skjólstæðinginn hafi ávallt forgang (Atack og Rankin, 2002). Þá hefur verið bent á hversu erilsamt hjúkrunarstarfið sé, sá sem það stundar búi við stöðugt áreiti þannig að nám á vinnutíma reynist torsótt (Atack, 2003). Nemendur á þessu námskeiði eru þar eflaust engin undantekning. Fram kom að 17% þátttakenda fannst þeir fá lítinn eða engan tæknilegan stuðning við námið en enginn taldi tæknileg vandamál helsta galla námskeiðsins. Flestum gekk vel að læra á WebCT umhverfið. Rannsóknir sýna að konur og karlar eiga jafnauðvelt með tölvutækni í námskeiðum sem þessum en að konur eru ólíklegri til þess að nýta sér þetta námsform (Adams, 2004). Þátttaka í netnámskeiði Atacks og Rankins (2002) hafði áhrif á tölvufærni hjúkrunarfræðinganna og er sú einnig raunin meðal tæplega 40% þátttakenda í þessari rannsókn. Þessi niðurstaða er mikilvæg þar sem tölvufærni er farin að skipta miklu máli í daglegu starfi. Helsti kostur netnámskeiða er sá að hver og einn skipuleggur hvenær hann „kemur og fer“, allt eftir tíma og getu (Billings og Rowles, 2001). Þetta kunnu flestir hjúkrunarfræðingar að meta þegar þeir töldu upp kosti netnámskeíðsins. Áhugavert er að næstum öllum þátttakendum fannst þeir læra af umræðunum á námskeiðinu. Þeir tjáðu sig um efni fyrirlestranna og fléttuðu saman við reynslusögur sínar á umræðuvefnum. Enginn kvartaði um skort á tengslum við kennara en líklega er það vegna virkrar þátttöku þeirra í umræðum. Reynsla hjúkrunarfræðinga af netnámskeiðinu „Geðvernd eftir barnsburð" var jákvæð. Samt verður að hafa í huga þá annmarka sem þeir gerðu grein fyrir og nýta þá þekkingu í skipulagningu fjarnáms fyrir þennan hóp. Þar ber hæst mismunandi viðhorf þátttakenda til þessa námskeiðsforms, hversu tímafrekt það er og hve erfitt er að stunda nám á vinnustað sínum. Þrátt fyrir að reynslan af þessu námskeiði hafi verið frekar jákvæð hefur ekki verið kannað hvort þekkingin, sem fékkst með því, helst við til lengri tíma og skilar sér í betri líðan skjólstæðinga en gera þarf rannsóknir á því. Aftanmálsgrein Rannsókn þessi var styrkt af B-hluta vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Höfundar þakka heilsugæslu- hjúkrunarfræðingunum, sem tóku þátt í námskeiðinu og lögðu á það mat, og Gyðu Björnsdóttur, MS, fyrir aðstoð við að semja spurningalistann. Heimildaskrá Adams, A. M. (2004). Pedagogical underpinnings of computer-based learn- ing. Journal of Advanced Nursing, 46(1), 5-12. Andrusyszyn, M. A., Cragg, C. E., og Humbert, J. (2001). Nurse practitioner preferences for distance education methods related to leaming style, course content, and achievement. Joumal of Nursing Education, 40(4), 163-170. Atack, L. (2003). Becoming a web-based learner: Registered nurses’ exper- iences. Journal ofAdvanced Nursing, 44(3), 289-297. 50 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.