Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Blaðsíða 31

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Blaðsíða 31
haldist hjúkrunarfræðingar frekar í starfi, starfsmannaveltan verði harla lítil og litlum fjármunum þurfi að eyða í að laða að hjúkrunarfræðinga og þjálfa þá. Evrópusamtök hjúkrunarfræðinga (EFN) samþykktu fyrir um tveimur árum yfirlýsingu um öryggi sjúklinga. í yfirlýsingunni er lögð áhersla á að til að tryggja öryggi sjúklinga þurfi að skapa ákveðin vinnubrögð þar sem allir aðilar kerfisins séu ætíð meðvitaðir um hvar, hvenær og hvernig mistök eða atvik eiga sér stað. Til að skapa slíka vinnubrögð þurfa sjúklingar, aðstandendur þeirra, heilbrigðisstarfsmenn og stjórnendur að vinna saman að þekkingarsköpun og starfsháttum er miða að því að koma í veg fyrir mistök og óheppileg atvik. Lögð er áhersla á: upplýsingasöfnun og rannsóknir; miðlun upplýsinga milli landa; að reka áróður fyrir lagasetningu er lýtur að öryggi sjúklinga; að litið sé svo á að ábyrgðin á mistökum og/eða óheppilegum atvikum sé kerfislæg, að stjórnendur stofnana og ráðuneyta axli ábyrgð; að öryggi sjúklinga sé grundvallaratriþi í allri gæðastýringu og í allri umönnun og meðferð sjúklinga; að lyfjaumbúðir verði bættar og staðlaðar; að umfjöllun um öryggi sjúklínga sé lykilatriði í námi heilbrigðisstétta; og að heilbrigðisstéttir starfi saman að þekkingarsköpun, rannsóknum og úrbótum á þessu sviði. Hjúkrunarfræðingar hafa lengi (og kannski alla tíð) vitað að „vel mannað verndar líf“, að hjúkrunarfræðingar eru þungamiðjan í umönnun og velferð skjólstæðinganna. Umræður um allan heim, á þessum hátíðisdegi hjúkrunarfræðinga sem 12. maí er, vekja hins vegar einstaka athygli á mikilvægi þekkingar og starfa hjúkrunarfræðinga. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga mun ekki aðeins ræða mannauð í hjúkrun og öryggi sjúklinga 12. maí heldur mun starf félagsins allt árið 2006 helgast af þessu mikilvæga efni. Elsa B. Friðfinnsdóttir, eisa@hjukrun.is m z: D > CD Hagstofan og villandi upplýsingar XI um heilbrigðiskostnað eftir Ólaf Ólafsson í frétt frá Hagstofu íslands (fréttir í nóv. 2003) kemur eftirfarandi fram: „Vert er að geta þess að samanburður á útgjöldum íslands til heilbrigðismála við önnur aðildarríki OECD er erfiður, þar sem aðildarríkin styðjast sum við ólíka staðla og uppgjörsaðferðir. Útgjöld til heilbrigðismála hafa verið gerð eftir þjóðhagsreikningastöðlum á Hagstofu íslands, en í ársbyrjun 2004 var tekin sú ákvörðun á Hagstofunni að innleiða nýtt flokkunarkerfi OECD/System, þ.e. SHA kerfi.“ Um þetta var deilt fyrir tveimur árum. Hagstofan taldi tölur OECD réttar en undirritaður hélt því fram að tölur frá íslandi um kostnað væru ekki sambærilegar við OECD-tölur, aðallega vegna þess að kostnaður við hjúkrunarheimili á íslandi félli að verulegu leyti undir heilbrigðismál en í allflestum OECD-löndum undir félagsmál. Til stuðnings þessu vitnaði undirritaður í álit tveggja hagfræðinga frá OECD 1994 (Notes on Data Comparability in Health Expenditure and Finance Data OECD, Data 2003, Paris) en þar kom fram að vegna flokkunar hjúkrunarmála á íslandi undir heilbrigðiskostnað hækkaði kostnaðurinn um allt að 0,9% sem greiðsluhlutfall heilbrigðisútgjalda af vergri landsframleiðslu í samanburði nr T| við önnur OECD-lönd. Gott er að Hagstofan hefur leiðrétt fyrri skoðanir stofnunarinnar. Samkvæmt framansögðu ætti kostnaður íslands vegna heilbrigðisþjónustu að vera um 9,5% af vergri landsframleiðslu en það er svipað og kostnaður Dana en ekki 10,4% eins og talið er í OECD-tölum 2003. Ef haft er í huga að íslendingar eru tæplega 300.000 en eru sjálfbjarga með örfáum undantekningum varðandi heilbrigðisþjónustu þá er vart hægt að tala um sóun fjármuna eins og heyra má hjá sumum stjórnmálamönnum á stundum. Engin 300.000 manna þjóð hefur afrekað slíkt. Verst er að fjárlaganefnd Alþingis kynnir sér ekki málið. Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006 2S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.