Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Blaðsíða 40

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Blaðsíða 40
gerir hún grein fyrir ofannefndum hugmyndum og segir stéttarsystrum sínum hressilega til syndanna, ekki síst Sigríði Eiríksdóttur, formanni félagsins. Samvinna þeirra Sigríðar var „ómöguleg" að sögn ritstjórans sem bar sig illa undan „óþolandi rekistefnu, afskiftasemi og snuddi" formannsins. Guðný kvaðst aldrei hafa orðið vör við mikinn félags- legan þroska meðal félagskvenna en sakaði þær um þröngsýni, hroka og uppskafningshátt. Ritstjórinn lét ekki þar við sitja heldur vændi Sigrfði formann um hræsni og „oddborgaralegan" hégóma í eftirsókn eftir „auðvirðilegum vegtyllum" (Guðný Jónsdóttir, 1926). Reiðilestur ritstjórans kom eins og köld vatnsgusa yfir félagskonur. Stjórn félagsins taldi blaðið ekki aðeins ólöglegt heldur fullyrtu stjórnarkonur að Guðný héldi þar ýmsum ósannindum á lofti. Eftir nokkrar umræður var ákveðið að vísa fyrsta ritstjóra tímaritsins úr Félagi fslenskra hjúkrunarkvenna (FÍH AB/1, fgb. stjórnar 1922-1938, fundur 7. janúar 1926). Þetta sögulega tölublað er hvorki varðveitt á Landsbókasafni íslands né hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga. Á hátíðarfundi sem haldinn var 25. nóvember síðastliðinn í tilefni af því að 80 ár voru liðin frá þvf að tímarit félagsins hóf göngu sína, var lýst eftir glataða eintakinu. Einn fundargestur átti umrætt tölublaðið og afhenti skömmu síðar hjúkrunarfræðideild Háskóla íslands til eignar innbundið eintak af tímaritinu allt til ársins 1992. Gjöfin hefur reynst undirritaðri ómetanleg hjálp við samningu greinarinnar. Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarkvenna virðist hafa innkallað tölublaðið því tíma- ritið var endurfjölritað án skammaræðu Guðnýjar. Sigríður Eiríksdóttir bað Jónu Guðmundsdóttur, yfirhjúkrunarkonu á ísa- firði, að endursenda blaðið. Jóna brást vel við þeirri beiðni og sagði: það var nú ekki sent til mín, heldur var það sent til Vilmundar [Jónssonar yfirlæknis] og hann beðinn að koma því til skila, honum finnst þetta afar ósvífið af Guðnýju, og sama segi ég. Ég skil ekkert í þessu smekkleysi hjá manneskjunni. Það hryggir mig stórlega að þetta skuli þurfa að ganga svona til, því hvers getum við vænst af almenningi þegar hver höndin er upp á móti annarri í okkar litla félagsskap. Mér finnst að við þurfum að setja alit inná að vinna traust hjá fólki með verkum okkar og framkomu (FÍH B/1 1, bréf Jónu Guðmundsdóttur, dags. 5. febrúar 1926). Viðbrögð Jónu varpa nokkru Ijósi á viðhorf almennra félagskvenna en málið vakti einnig athygli utan raða stéttarinnar. • Steingrímur Matthíasson Jochumssonar, héraðslæknir á Akureyri, minnist lítillega á heftið í bréfi til Sigríðar Eiríksdóttur formanns og segir: Ég vil gjarnan gjörast áskrifandi að tímariti félags yðar, en ég vil vona að leiðararnir verði framvegis uppbyggilegri en þessi ógeðslega gallspýja sem starfs- systir yðar flekkaði pappírinn með í síðasta tölublaði. (FÍH B/1 1, bréf Stein- gríms Matthíassonar, dags. 3. febrúar 1926). Steingrímur kunni að beita stílvopninu eins og hann átti kyn til og sparaði ekki lýsingarorðin. Stjórnarkonur töldu að ritstjórinn væri ábyrgur fyrir útgáfukostnaði blaðsins enda væri það bæði „ólögmætt og ósamboðið félaginu". Guðný neitaði að greiða og stefndi Félagi íslenskra hjúkrunarkvenna (FÍH AB/1, fgb. stjórnar 1922-1928, fundur 29. apn'l 1926). Eftir árangurslausar sáttatilraunir var málinu vísað til dómstóla þann 20. apríl 1926. (ÞÍ Sáttabók Reykjavíkur 1924- 1928, 20. apríl 1926). Níu dögum síðar boðaði stjórn félagsins ritstjórann til fundar ásamt þeim Christophine Bjarnhéðinsson og Guðbjörgu Árnadóttur. Þar voru lagðar fram tvær tillögur til að höggva á hnútinn. í fyrsta lagi að Guðný greiddi fyrir útgáfu blaðsins og málið félli þar með niður en í öðru lagi að fundarkonur reiddu fram útgáfukostnaðinn og ritstjórinn segði sig úr félaginu. Guðný hafnaði báðum tillögunum, kvaðst láta málið ganga fyrir dóm og gekk síðan af fundi. Fundarkonur, sem eftirsátu, töldu að þær væru „neyddar til að láta málíð hafa sinn gang“ og vísa ritstjóranum úr félaginu (FÍH AB/1, fgb. stjórnar 1922- 1938, fundur 29. apríl 1926). í ársbyrjun 1926 tók ný ritnefnd til starfa. Kristjana Guðmundsdóttir var kjörin ritstjóri en samstarfskonur hennar voru þær Sigríður formaður og Vilborg Stefánsdóttir (FÍH AA/1, fgb. 1919-1929, fundur 29. janúar 1926). Kristjana ávarpaði félagskonur í fyrsta tölublaðinu sem hún ritstýrði og sagði þá meðal annars: Með þessu tölublaði byrjar nýr þáttur í sögu tímaritsins okkar. Stutt er síðan blaðið hóf göngu sína og ennþá er það lítið og fátæklegt. En von mín er sú, að við með tímanum munum sigrast á örðugleikunum og getum látið það koma í veglegra formi. Allt er smátt í byrjun, en með þrautseigju og þolinmæði ættum við að geta þokað því áfram. Okkur á að þykja vænt um blaðið okkar, það er boðberi okkar á milli og ræðir öll þau málefni, sem eru sameiginleg áhugamál okkar og okkur varðar mestu. Þegar fram líða stundir á blaðið að vera þannig úr garði gert, að hver og ein hjúkrunarkona á að þrá útkomu þess, ekki síst þær sem eru út um land og úti um sveitir. Þær eiga erfiðasta aðstöðu, - margar af þeim oft einasta hjúkrunarkonan á margra mílna svæði. Það eru þær sem þarfnast uppörvunar til að missa ekki hugsjónir sínar í sínu erfiða starfi. ... Ennþá erum við svo fáar. Þess vegna er það svo nauðsynlegt að við stöndum saman og styðjum hver aðra. Þrátt fyrir það að ýmsar torfærur kunni að verða á vegi okkar, megum við ekki leggja árar í bát, heldur rísa upp, draga fána hugsjóna okkar að hún og halda áfram. Við hjúkrunarkonur, sem höfum valið okkur að lífsstarfi að líkna og liðsinna sjúkum, ættum ekki að þurfa að kvarta undan sundrung í félagsskap okkar, heldur standa allar sem einn maður (Kristjana Guðmundsdóttir, 1926). Kristjana beindi síðustu orðum sínum að Guðnýju Jónsdóttur þótt ritstjórinn fyrrverandi væri hvergi nefndur á nafn. Forystukonur hjúkrunarkvenna lögðu áherslu á samstöðu og einingu innan félagsins. Hjúkrunarstéttin var að vinna sér fótfestu meðal þjóðarinnar og deilur fyrir opnum tjöldum voru fordæmdar af forystu félagsins. Stéttarsystur Guðnýjar mættu metnaðarfullum hugmyndum hennar um útgáfu á tímariti um heilsuverndarmál fyrir almennig með gætni. Félagskonur voru örfáar og stóðu ekki undir miklum 38 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.