Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Blaðsíða 12
ÖFLUGT DOKTORSNÁM í HJÚKRUNARFRÆÐI
OG LJÓSMÓÐURFRÆÐI - ÖLLUM TIL HEILLA
Ársfundur Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði við Háskóla
íslands og Landspítala-háskólasjúkrahús
Aðalviðfangsefnið er að styðja við og
efla rannsóknir kennara hjúkrunarfræði-
deildarinnar og hjúkrunarfræðinga og Ijós-
mæðra á Landspítala-háskólasjúkrahúsi.
Herdís sagði megináherslur stjórnar fyrir
árin 2005-2007 að bæta rannsóknar-
virkni sem metin er út frá fjölda rit-
rýndra tímaritsgreina, bóka og erinda
kennara og rannsakenda í hjúkrun og
fjölga umsóknum þeirra um framlög úr
innlendum sem erlendum sjóðum.
Fram til þessa hefur rannsóknarvirkni
hjúkrunarfræðideildar verið sambærileg
við læknadeild og tannlæknadeild, en
þessar deildir reka lestina í Háskóla
íslands miðað við rannsóknarstig á hvern
einstakling. Herdís benti á að við þennan
útreikning er ekki tekið tillit til þess að
þessar stéttir eru í klínísku hlutverki auk
hins hefðbunda hlutverks háskólakennara.
Hinn klíníski þáttur kennarahlutverksins er
þó síst léttvægari en hinir þar sem hann
lýtur að heilsu og velferð þjóðarinnar.
Hún ságði enn fremur að smæð og
dreifing rannsóknarverkefna væri einn
helsti veikleiki hjúkrunarrannsókna sem
þó endurspeglaði mikið frumkvöðlastarf
á mörgum sviðum hjúkrunarfræðinnar
og Ijósmóðurfræðinnar. Fram til þessa
hafa hjúkrunarfræðingar sótt framhalds-
menntun til útlanda en með tilkomu
doktorsnáms við hjúkrunarfræðideildina
gæti samstarf milli rannsakenda eflst. í
október var ráðinn forstöðumaður Rann-
sóknastofnunar f hjúkrunarfræði, Helga
Bragadóttir. Með ráðningu forstöðumann
gefast frekari möguleikar til samstarfs
við innlendar og erlendar stofnanir, svo
sem við Alþjóðaheilbrigðismálastofnun-
ina, Joanne Briggs Institute í Ástralíu og
háskólann í Minnesota.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, mennta-
málaráðherra, ávarpaði fundinn. Hún
sagði mikilvægt að leita leiða til að
ungt fólk héldi áfram framhaldsnámi og
því væru framlög til vísinda há hér á
landi en alltaf mætti gera betur. Einn af
áherslupunktum Vísinda- og tækniráðs -
en í því sitja bæðí stjórnmálamenn og ýmsir
forystumenn háskólasamfélagsins - er að
efla háskólana sem rannsóknastofnanir
og þá þurfa þeir að keppa um fjármagn til
rannsókna. Nú um stundir hefur Háskóli
íslands sterka stöðu en hann fær um
72% af þeirri upphæð sem úthlutað er
úr samkeppnissjóðum. Ráðherra ítrekaði
stefnu stjórnvalda í doktorsmenntun í
landinu sem Vísinda- og tækniráð hefur
10
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006