Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Blaðsíða 11

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Blaðsíða 11
HVERNIG KOMA HJÚKRUNARFRÆÐINGAR ÞEKKINGU SINNI OG REYNSLU Á FRAMFÆRI? Þetta tel ég að hafi verið mjög miður og hafi dregið úr krafti og nýsköpun í faginu. Hvernig getur staðið á þessu? Ég reikna með að hjúkrunarkonur hafi ekki haft þann tíma og aðstæður sem voru nauðsynlegar til að skrifa um málefni sem tengdust inntaki starfsins. Umfang heilbrigðisþjónustunnar jókst stöðugt og alltaf kölluðu fjölmörg verkefni. Hjúkrunarkonur voru vanar því að aðrir hagsmunir en þeir sem tengdust þeim sjálfum og framgangi fagsins þeirra hefðu forgang. Að loknum löngum vinnudegi biðu þeirra síðan gjarnan önnur verkefni eins og að sinna heimilisstörfum, vinum og fjölskyldum. Þó flestar hjúkrunarkonur hafi ekki verið giftar áttu þær sín heimili, vini og stórfjölskyldur. Ég tek þó fram að á sjötta og sjöunda áratugnum fjölgaði aftur greinum sem hjúkrunarkonur skrifuðu um hjúkrun. María Pétursdóttir kynnti til dæmis hugmyndir um hjúkrun sem voru ræddar víða erlendis og Ingíbjörg R. Magnúsdóttir sagði frá hugmyndum Virginíu Henderson um hjúkrun og þýddi jafnframt Hjúkrunarkverið sem mótaði margar kynslóðir hjúkrunarfræðinga (Kristín Björnsdóttir, 2005). Tímarit hjúkrunarfræðinga á tuttugustu og fyrstu öld En hvernig er staðan núna? Skrifum við tímaritið okkar saman? Skiptumst við á skoðunum um áherslur og aðferðir í hjúkrun? Þessari spurningu verður hver og einn að svara fyrir sig og mín skoðun skiptir í sjálfu sér ekki máli. Um tíma sat ég í ritstjórn tímaritsins og þá komu oft fram þau sjónarmið að hjúkrunarfræðingar hefðu ekki tíma né aðstæður til að skrifa í blaðið. Það taldi ég mjög miður þar sem ég er enn þeirrar skoðunar að tímaritið eigi að vera einn mikilvægasti vettvangur okkar til að koma þekkingu og reynslu á framfæri. Ég tel mjög mikilvægt að finna leiðir til að styðja hjúkrunarfræðinga til að skrifa tímaritsgreinar. Nýlega voru vandaðar leiðbeiningar um greinaskrif settar inn á heimasíðu tímaritsins okkar og það tel ég vera mikið framfaraspor. Leiðbeiningunum mætti síðan fylgja eftir með enn frekari hætti. Lengi hafa heyrst raddir um að tímaritið höfði ekki til hjúkrunarfræðinga. í því sambandi eru ýmsar ástæður nefndar sem ég ætla ekki að tíunda hér. Hins vegar finnst mér skipta máli að við skoðum hvaða kröfur sé raunhæft að gera til tímaritsins og hvers megi af því vænta. Hjúkrun er afar yfirgripsmikið fag sem tekur á fjölmörgum flóknum en jafnramt ólíkum viðfangsefnum, frá vöggu til grafar og frá bráðum veikindum, sem ógna lífi, að forvörnum og heilsueflingu. Því getum við ekki gert þær kröfur til tímaritsins er það berst inn um lúguna okkar að við munum lesa það spjalda á milli. í mínum huga er tímaritið mikilvægur upplýsingabrunnur sem ég vil hafa aðgang að þegar ég þarf á að halda. Ég tel að hinn rafræni aðgangur að tímaritinu muni breyta míklu um notkun þess. Nú er auðvelt að leita að og finna nýjar og eldri greínar og nálgast þær frá sinni eigin tölvu hvort sem maður er heima eða í vinnunni. Á tuttugustu og fyrstu öld eru forsendur tii þekkingarmiðlunar með allt öðrum hætti en á þeirri tuttugustu. Fólk leitar þekkingar á netinu, hún er rædd á netinu og henni er komið á framfæri um netíð. Fyrir vikið er öll þekking, sem er aðgengileg á rafrænan hátt, mun líklegri til að komast til þeirra sem hennar leita en áður var. Nú er einnig hægt að nálgast greinar í Tímariti hjúkrunarfræðinga á heimasíðu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og það tel ég vera gríðarlega framför fyrir fagið. Efni tímaritsins verður nú mun aðgengilegra en verið hefur. Flestir ef ekki allir hjúkrunarfræðingar starfa í rafrænu umhverfi og því er auðvelt að leita að efni í tímaritinu og að nálgast það beint um netið. Netið hefur einnig gert samskipti milli fólks auðveldari (Pew internet and American life project, 2006). Nú skipta fjarlægðir ekki lengur máli og allir standa jafnt hvort sem þeir búa á Raufarhöfn eða í Reykjavík. Því geta hjúkrunarfræðingar, sem eiga sameiginleg áhugamál, stofnað samræðuhópa um viðfangsefni sem þeir fást við í starfi. Þetta form samskipta og þekkingarmiðlunar hefur reynst geysivinsælt víða í heiminum. Því er þetta ekki síður mikilvæg leið fyrir okkur til að komast í samskipti við umheiminn. Vænta má að það verði ekki síður mikilvægt verkefni hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga að miðla upplýsingum um netstarfsemi sem hjúkrunarfræðingar geta haft gagn og gaman af. Ég hef trú á því að netið muni hjálpa okkur til að ná þeim árangri sem Guðný Jónsdóttir kallaði eftir um tímaritið okkar og ætla því að Ijúka máli mínu með því að endurtaka þau: „Við eigum að skrifa það allar. Við eigum að leggja í það hið bezta af þekkingu okkar og reynslu, af trú á málstað okkar og framsóknarhug“ (Guðný Jónsdóttir, 1925, bls. 1). Heimildir: Benner, P. (1984). From Novice to expert: Excellenœ and power in clinical nursing prac- tice. Menlo Park, Kaliforníu: Addison-Wesley. Benner, P., og Tanner, C. (1987). How expert nurses use intuition. American Journal of Nursing, 87, 23-31. Benner, P„ Tanner, C., og Chesla, C. (1992). From beginner to expert: Gaining a different clinical world in critical oare nursing. Advances in Nursing Science, 74(3), 13-28. Benner, P„ Tanner, C„ og Chesla, C. (1996). Expertise in clinical nursing: Caring, clinical judgment and ethics. New York: Springer. Bjornsdottir, K. (1996). The construction of a profession: The history of nursing in lceland. Nursing Inquiry, 3, 13-22. Guðný Jónsdóttir (1925). Ritstjórnarpistill. Tímarit Félags islenskra hjúkrunarkvenna, 7(1), 1. Estabrooks, C. A„ Chong, H„ Brigidear, K. og Proetto-McGrath, J. (2005). Profiling Canadian Nurses’ preferred knowledge sources for clinical practice. Canadian Journal of Nursing Reseach, 37(2), 118-141. Kristín Björnsdóttir (1994). Sjálfsskilningur islenskra hjúkrunarkvenna á tuttugustu öldinni: Orðræða og völd. í Ragnhildur Richter og Þórunn Sigurðardóttir (ritstj.), Fléttur: Rit Rannsóknastofu í kvennafræðum (bls. 203-242). Reykjavík: Rannsóknastofa í kvennafræðum og Háskólaútgáfan, Háskóla íslands. Kristín Björnsdóttir (2005). Likami og sál: Hugmyndir, þekking og aðferðir I hjúkrun. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag. Liaschenko, J. (1998). The change from the closed to the open body - ramifications for nursing testimony. \ S. D. Edwards (ritstj.), Philosophical issues in nursing (bls. 9-30). Houndmills, Englandi: Macmillan. Liaschenko, J„ og Fisher A. (1999) Theorizing the knowledge that nurses use in the conduct of their work. Scholarly Inquiry for Nursing Practice: An International Journal, 73(1), 29-41. Pew internet and American life project (2006). The strengths of internet ties. Sótt hinn 30. jan. 2006 á http://www.pewinternet.org/pdfs/ PIP_lnternet_ties.pdf. Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.