Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Side 16
DAGUR í LÍFI HULDU GUNNLAUGSDÓTTUR
Mánudagsmorgunn og ég vakna med mikla hálsbólgu, ég hef næstum því misst
röddina og er þegjandi hás, hvað gerir raddlaus stjórnandi?
Á morgnana getur verið mikið annríki þegar fjórir þurfa að nota sama baðherbergi
og allir að fara úr húsi, sá síðasti kl. 7.30. Maðurinn minn, Lars Erik, fer fyrstur á
fætur milli 5.45 og 6.00, ég kl. 6.00-6.15 og Tinna, 7 ára, kemur oftast fram kl.
7.30 og svo ungur maður, Nils, 19 ára, kl. 7.00.
Við eigum saman fjögur börn, Gunnlaug, 22 ára, hann býr á íslandi, Nils, 19 ára,
Lars, 17 ára (býr hjá móður sinni) og Tinnu.
Var komin í vinnuna kl. 7.15 og eins og
alltaf beint í tölvuna til að svara póstinum
frá deginum áður og senda póst áður en
fundarsetur dagsins byrja.
Fyrsti fundur kl. 7.30-8.30 um gæða-
mál, hvernig viljum við skipuleggja þau,
bæði með hliðsjón af kröfum eigenda
(ráðuneytis) og okkar eigin markmiðum
að fá fleiri deildir ISO til að vera með.
Þátttakendur voru bæði frá fagdeild
skrifstofu forstjóra og sviðstjóri.
Ég skipulegg fundi þannig að fyrir
liggi dagskrá, fundir verði stuttir og
árangursríkir og í lok fundar höfum
við getað tekið ákvarðanir og ákveðið
næsta fund ef þörf er á. Til að þetta
geti gengið eftir þarf fólk að vera vel
undirbúið.
Kl. 8.30-10.00. Morgunstund gefur gull í mund. Þrátt fyrir hæsi er áhuginn og
framkvæmdasemin á fullu.
Fundur med deildarstjórum ýmissa deilda á skrifstofu forstjóra, fjármálaforstjóra og
starfsmannastjóra og öðrum ráðgjöfum. Förum yfir helstu mál vikunnar, hvað er í
Nýr starfsmannastjóri var ráðinn fyrir
sjúkrahúsið fyrir viku. Fyrri fundur varð
styttri en gert var ráð fyrir og ég nota 45
mínútur til að ræða málin með honum.
brennidepli bæði innan og utan sjúkrahússins. Skipuleggjum næsta mánudagsfund,
markmið sjúkrahússins fyrir árið 2006 og hvað gera þarf til að ná þeim.
14
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006