Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Page 21
ÞAÐ ER ENGIN HEILSA ÁN GEÐHEILSU
og Alþjóðageðheilbrigðissamtakanna
(WFMH) sem fyrirmyndarverkefni á sviði
geðræktar (Saxena og Garrison, 2004).
Geðorðin 10 og geðræktarkassinn
Mörg af verkefnum Geðræktar hafa vakið
athygli. Þar má nefna geðorðin 10 sem
eru einföld ráð en um leið mikilvægur
leiðarvísir í daglegu lífi. Þau minna á
ábyrgð hvers og eins á eigin lífi en einnig
samfélagslega ábyrgð gagnvart öðrum.
1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara
2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um
3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir
4. Lærðu af mistökum þinum
5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina
6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu
7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kríngum þig
8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup
9. Finndu og ræktaðu hæfiieika þína
10. Settu þér markmið og láttu drauma þina rætast
Þá vakti verðskuldaða athygli hugmyndin
um geðræktarkassann og ábending
höfundar hans um að slíkur kassi sé
jafnnauðsynlegur hverju heimili og
sjúkrakassi.
Sagan um geðræktarkassann
Fyrirmyndin að kassanum eru ráð konu
nokkurrar sem missti mann sinn frá tíu
börnum þeirra um aldamótin 1900. Hún
þurfti að láta frá sér átta elstu börnin. Til
að hjálpa þeim að halda voninni og að
takast á við sorgina við föðurmissinn og
upplausn heimilisins útbjó hún að skilnaði
kassa handa hverju og einu þeirra. í
kassana setti hún hluti sem höfðu mikið
persónulegt gildi fyrir þau. í suma kassana
setti hún klúta sína sem báru með sér lykt
af henni og leikföng og annað smálegt.
Börnin áttu að nota kassana ef þeim liði
illa og draga upp fallegar minningar og
minnast um leið loforðs móður þeirra um
að fjölskyldan myndi sameinast aftur þótt
síðar yrði. Það gekk eftir að lokum (Elín
Ebba Ásmundsdóttir, 2005).
í slíka kassa er upplagt að safna hlutum
sem vekja gleði og góðar minningar og nota
meðvitað til að láta sér líða vel. Þetta geta
veriðýmsirhlutir, s.s. uppáhaldsmyndband,
geisladiskur, bók og Ijósmyndir eða hvað
sem er sem tengist jákvæðum og góðum
tilfinningum. Svo má leita í kassann þegar
neikvæðar hugsanir skjóta upp kollinum,
t.d. eftir erfiðan dag, rifrildi eða skammir,
þegar okkur leiðist, erum einmana eða
vantar stuðning.
Kynningarátak á geðorðunum 10
og geðræktarkassanum
Til að efla geðheilbrigðisvitund lands-
manna hefur Lýðheilsustöð á síðustu miss-
erum lagt áherslu á að kynna geðorðin 10
og geðræktarkassann enn frekar.
Byrjað var á að gefa út lítinn bækling með
geðorðunum, á íslensku og ensku, og þar er
einnig sagt frá geðræktarkassanum. Einnig
voru gefin út veggspjöld í stærðunum A3 og
A4 sem dreift hefur verið víða um land, auk
þess sem þau hafa birst sem auglýsingar í
prentmiðlum. í janúar árið 2004 var átakið
kynnt á evrópskum ráðherrafundi um
geðheilbrigðismál í Finnlandi og vakti þar
talsverða athygli. Frá miðjum september
2005 til áramóta birtust geðorðin á strætis-
vögnum á höfuðborgarsvæðinu, eitt á
hverjum vagni, og á sama tíma skrifuðu
einstaklingar, margir þjóðþekktir, stuttan
pistil um eitt geðorðanna sem birtust
vikulega í Morgunblaðinu.
Seglar með geðorðunum 10 á öll
heimili í landinu
Vorið 2005 var sent bréf til allra
sveitarfélaga á landinu og þeim boðnir
seglar, á íslensku og ensku, með
geðorðunum 10 til að senda á hvert
heimili í sveitarfélaginu í jólamánuðinum.
Lýðheilsustöð sá um að láta framleiða
seglana, og þeir voru því sveitarfélögunum
að kostnaðarlausu, en þau sáu um
dreifinguna. Skemmst er frá því að segja
að tilboðinu var tekið fagnandi í nær
öllum sveitarfélögum landsins. Seglarnir
bárust svo inn í desembermánuði sem
jólagjöf Lýðheilsustöðvar og sveitarfélaga
til heimilanna í landinu.
Allt útgefið efni og greinaskrif sem tengjast
kynningarátakinu er að finna á heimasíðu
Lýðheilsustöðvar (www.lydheilsustod.is)
undir Geðrækt.
Vinir Zippý geðræktarverkefni
fyrir ung börn
Andleg og líkamleg heilsa barna og
unglinga leggur grunninn að velferð
þeirra í lífinu. Því er mikilvægt að allt
forvarnastarf taki mið af þessu samspili
(Jané-Llopis og Anderson, 2005; WHO,
2005b). Lýðheilsustöð vill þarna leggja
sitt af mörkum, m.a. með því að leggja
grunnskólum til námsefnið Vinir Zippý
eða „Zippy's Friends".
Forsagan
Vinir Zippý námsefnið, sem ætlað er
öllum 6-7 ára börnum, var í upphafi
samið og prófað í Danmörku á árunum
1998 til 1999. Frekari prófun og notkun
fór svo fram í Danmörku og Litháen
árin 2000-2001. Árið 2002 tóku við
verkefninu bresk góðgerðarsamtök sem
nefnast „Partnership for Children“(http://
www.partnershipforchildren.org.uk/
index.html).
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006
19