Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Qupperneq 35

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Qupperneq 35
ÉG ÞORI BÆÐI, GET OG VIL sjálfshjálparhópum. Milli fyrirlestra vinna síðan hópar út frá reynslu aðstandenda. Það sem upp úr stendur hjá undirrituðum er hve lítill og brotakenndur stuðningurinn er við aðstandendur og hversu mikla ábyrgð þeir bera á sínum sjúka ættingja. Oft eru aðstandendur með erfiða einstaklinga inni á heimilinu árum saman, í sumum tilfellum leiðir það til félagslegrar einangrunar og veikinda aðstandendanna sjálfra vegna þessara erfiðu aðstæðna. Margir lýstu áhyggjum af líðan barna sem búa við óviðunandi aðstæður og bera mikla ábyrgð sem þau eiga ekki að axla ein og óstudd meðan á veikindum stendur. Það ánægjulega við þessi námskeið er mikill áhugi og góð mæting auk þess sem á öllum stöðunum hafa verið stofnaðir stuðningshópar aðstandenda og í nokkrum tilfellum hópar notenda þjónustunnar. Rauði krossinn hefur veitt aðgang að húsnæði og sálfræðingur á vegum Geðhjálpar sinnir hlutverki stuðningsaðila fyrir hópana. Sumir hópanna hafa aðgang að fagaðilum á staðnum, en þetta þarf að komast í fast- ara form, m.a. með þátttöku heilsugæslu eða félagsþjónustu í framtíðinni. Eftir þessa reynslu spyrjum við okkur hvernig hjúkrunarfræðingargætu tekið meiri þátt í fræðslu og stuðningi við notendur geðheilbrigðisþjónustunnar og fjölskyldur þeirra. Hjúkrunarfræðingar þurfa að verða * sýnilegri, láta beturtil sín taka í meðferð, vera virkir aðilar að þverfaglegu samstarfi, hvort sem er inni á sjúkradeildum, heilsugæslu eða í sálfélagslegri þjónustu. Við þurfum að hafa kjark til þess að kynnast fólki og aðstæðum þess, nota þekkingu okkar, reynslu og yfirsýn til þess að hafa áhrif á gæði meðferðar og eftirfylgni, þekkja hvaða réttindi sjúklingar og fatlaðir hafa samkvæmt lögum, m.a. til sjálfstæðrar búsetu og félagslegs stuðnings. Með okkar þekkingu á það að vera sjálfsagður hluti geðhjúkrunarmeðferðar að vinna að bættri stöðu þeirra sem eiga við geðröskun að stríða og ekki síður að beina augum okkar að fjölskyldum þeirra og umhverfi. Það er alveg Ijóst að sá sjúki þarf á sínum nánustu að halda og því er mikilvægt að við styðjum og styrkjum þá til að takast á við það hlutverk, læra að setja nauðsynleg mörk og ekki síst að verja börnin fyrir ofurábyrgð. Að loknu námi hóf Herdís störf á handlækningadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss. Þar starfaði hún með hléum til ársins 1994. Frá árinu 2004 hefur hún verið í hlutastarfi á skurðsviði LSH og hefur það hlutverk að stýra rannsóknarverkefnum á sviðinu. Herdís hafði nokkur afskipti af félagsmálum hjúkrunarfræðinga á fyrstu starfsárum sínum. Hún sat í stjórn Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga 1981 til 1983 og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir það félag. Hún var formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga frá 1999 til 2003. Rannsóknir Herdísar hafa verið fjölþættar og hefur hún birt niðurstöður þeirra víða og haldið um þær fjölda erinda. Hún FRÉTTAPUNKTUR hefur mikið rannsakað heilbrigði kvenna og þá sérstaklega tíðahring kvenna. Verki og verkjameðferð skurðsjúklinga skoðaði hún fyrir nokkrum árum og er aftur komin að því viðfangsefni í sambandi við klínískar rannsóknir sem hún er að undirbúa á LSH. Atvinnuheilbrigði hefur verið henni hugleikið undanfarin ár og fjallar nýjasta grein hennar um vaktavinnu hjúkrunarfræðinga og birtist brátt í tímaritinu Scandinavian Journal of Caring Sciences og heitir Self- assessed quality of sleep, occupational health, working environment, illness experience and job satisfaction of female nurses working different combination of shifts. Áhugasömum um rannsóknastörf og önnur störf Herdísar er bent á að skoða heimasíðu hennar, http://www.hi.is/~herdis/. Tímarit hjúkrunarfræöinga - 1. tbl. 82. árg. 2006 33

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.