Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Qupperneq 36

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Qupperneq 36
Christer Magnusson, christer@emax.is, christer@lsh.is ÖRYGGI SJÚKLINGA Atvik sem við getum lært af í síðasta tölublaði hóf göngu sína nýr pistlaflokkur, Öryggi sjúklinga. Undir þessari fyrirsögn mun blaðið meðal annars birta lærdómsríkar umsagnir um mistök í starfi, kærur og ágreiningsmál. Af því sem kært hefur verið til landlæknis eru fá atvik sem snerta hjúkrunarfræðinga beint. Hér verður sagt frá einu atviki frá ágreiningsmálanefnd landlæknisembættisíns (nr. 13/1999) sem minnir okkur á að telja og fylgjast með aðskotahlutum sem við setjum inn í mannslíkamann í lækningaskyni. I A óskaði eftir því að nefndin tæki afstöðu til þess hvort mistök hefðu orðið til þess að mjúkt gúmmídren (Penrose) varð eftir í líkama hennar. Kvörtunum hennar um lasleika hafi ekki verið sinnt og því hafi hún þjáðst af verkjum á meðan aðskotahluturinn var í líkama hennar. A gekkst undir aðgerð á Landspítalanum í mars 1995. Sýking kom í skurðsárið og þar sem sýklalyf í æð bar ekki fullnægjandi árangur var skurðsárið opnað og hreinsað og sett inn mjúkt gúmmídren (Penrose). Þrátt fyrir sýklalyf kom gröftur í sárið og eftir að það hafði verið hreinsað var lagt inn tvöfalt Penrose-dren sem saumað var fast við húðina. Nokkru síðar var A orðin hitalaus og sýklalyfjagjöf því hætt og hún útskrifuð. Annað drenið virtist hafa losnað af sjálfu sér en hitt drenið var stytt nokkuð. Sárið lokaðist ekki og við röntgenmynd í júní 1995 kom í Ijós að 10 cm langt Penrose-dren var eftir í líkama hennar. II Kvörtun A barst nefndinni 1. október 1999. Óskað var eftir greinargerð frá Ríkisspítölum og barst hún 23. desember 1999. A var gefinn kostur á að koma að frekari athugasemdum og bárust þær 4. maí 2000. III Nefndin taldi að gera yrði þá kröfu til starfsfólks heilbrigðisstofnana að eftirlit væri það gott að ekki væri mögulegt að aðskotahlutir yrðu eftir í líkama sjúklings. Taldi nefndin því mistök hafa orðið er dren varð eftir í líkama A og Ijóst að þjáningar konunnar eftir aðgerðina hefðu vegna þessa orðið meiri en ella. Nefndin taldi hins vegar ekki unnt að fullyrða um það að hve miklu leyti varanlegt heilsutjón A mætti rekja til þeirra mistaka og að hve miklu leyti það stafaði af slæmu heilsufari A að öðru leyti og þeim aðgerðum er hún þurfti að gangast undir. IV Niðurstaða nefndarinnar 25. maí 2000 var þessi: Nefndin taldi að mistök hefðu orðið hjá starfsfólki Landspítalans þegar dren varð eftir.í líkama A og bæru Ríkisspítalarnir skaðabótaábyrgð á því. Nefndin taldi þetta hafa valdið A auknum þjáningum en ekki væri hægt að fullyrða um að hve miklu leyti þetta hafi valdið A varanlegu heilsutjóni. í sænska hjúkrunartímaritinu Várd- facket eru reglulega birtar álitsgerðir ábyrgðarnefndar sænska landlæknis- embættisins, Hálso- och sjukvárdens ansvarsnámnd. Hér er eitt atvik sem fjallar eins og það að ofan um aðskotahluti sem gleymast (hsan 1624/04:a4). í tengslum við fæðingu rifnaði spöngin upp að leggöngum hjá 32 ára konu. Sárið var saumað í svæfingu sömu nótt á skurðstofu kvennadeildar. Vegna blæðingar setti skurðlæknirinn tvær taugrisjur í leggöng konunnar. Skurðhjúkrunarfræðingurinn skráði á sértakt skráningarblað að fjar- lægja ætti grisjurnar daginn eftir. Eftir aðgerð og dvöl á vöknun var konan flutt á legudeild. Viku seinna uppgötvaði konan grisjurnar. Hún gat sjálf tekið aðra út en hin var fjarlægð á sjúkrahúsi sama dag. Konan kærði atvikið til ábyrgðarnefndar sem óskaði eftir greinargerð frá tveimur svæf ing arhjúkrunarfræðingum, hjúkrunarfræðingi á vöknun og Ijósmóður sem fór með sjúklinginn á legudeild. Nefndin skrifar í áliti sínu að ekki hafi tekist að staðfesta hvort munnleg skýrslugjöf hafi átt sér stað annars vegar milli svæfingarhjúkrunarfræðings og hjúkrunarfræðings á vöknun og hins vegar milli hjúkrunarfræðings á vöknun og Ijósmóður legudeildar. Svæfingarhjúkrunarfræðingarnir vísuðu til 34 Tímarit hjúkrunarfræöinga - 1. tbl. 82. árg. 2006

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.