Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Side 51
RITRYND GREIN
varðandi svefnerfiðleika ungbarna hefði tvímælalaust aukist;
33% sögðu að færni þeirra hefði líklega aukist, en aðeins 8%
töldu ekkert hafa aukist. Þegar þátttakendur voru spurðir að
því hvort viðtalstækni þeirra við mæður hefði batnað sögðu
31% tvímælalaust svo vera, 50% sögðu líklega, 11% sögðust
ekki vita það og 5% sögðu að viðtalstækni þeirra hefði ekki
batnað. Fram kom að rúmlega helmingi hjúkrunarfræðinganna
(58%) fannst of mikið vinnuálag fylgja námskeiðinu en 38%
fannst það mátulegt.
Notkun tækni
Flestum hjúkrunarfræðingunum (75%) fannst tæknilegur stuðn-
ingur vera ágætur, frekar góður eða mjög góður. Þó fannst
17% hann vera lítill eða enginn (sjá mynd 4).
Mynd 4. Hvernig finnst þér tæknilegur stuðningur við að
tengjast námskeiðinu á veraldarvefnum hafa verið?
12
10
6
4
2
0
Mjög Frekar Ágætur Frekar Enginn Svöruöu
góður góður lítið ekki
2
Flestir heilsugæsluhjúkrunarfræðinganna (86%) prentuðu
námsefnið út og lásu það af blöðum, 11% sögðust bæði
lesa það af skjánum og prenta það út en aftur á móti las það
enginn allt af tölvuskjánum. Fram kom að 8% þátttakenda
sögðust einungis hafa lesið fyrirlestra en 32 sögðust hafa
lesið allt eða mestallt námsefnið. Fáir, eða einungis 8%
hjúkrunarfræðinganna, sögðust hafa leitað oft að öðru efni en
því sem bauðst tengdu námskeiðinu á veraldarvefnum, 67%
sögðust hafa gert það sjaldan og 19% aldrei (sjá mynd 5).
Fram kom að 83% hjúkrunarfræðinganna gekk frekar eða mjög
vel að læra á WebCT umhverfið en 5% gekk mjög illa að læra
á það. Eins og sjá má á mynd 6 fannst meirihluta nemendanna
(58%) tölvuþekking þeirra hafa aukist á námskeiðinu en
tæplega 40% fannst tölvuþekkingin aukast lítið eða ekkert.
Mynd 5. Leitaðir þú að öðru efni á veraldarvefnum en því
sem bauðst á námskeiðinu?
Já, oft Sjaldan Aldrei Svöruðu
ekki
Mynd 6. Finnst þér tölvuþekking þín hafa aukist við að
sækja námskeiðið?
Já, mjög Já, frekar All nokkuð Nei, Nei, Svöruðu
mikið mikið lítið ekkert ekki
Athugasemdir nemenda
Tvær opnar spurningar um kosti og galla námskeiðsins voru í lok
spurningalistans. Tafla 2 á næstu síðu sýnir svör þátttakenda.
Umræða
Einsogframhefurkomiðbyrjuðutalsvertfærrihjúkrunarfræðingar
á námskeiðunum en upphaflega hugðust taka þátt. Ástæður
þessa brottfalls eru ókunnar og eflaust misjafnar. í rannsókn
Atacks og Rankins (2002) byrjuðu aðeins 75% þeirra sem
upphaflega ætluðu á námskeiðið og 16% hættu við þátttöku.
L
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006
49