Fréttablaðið - 22.04.2017, Page 72
Að ákveðnum tíma liðnum, þegar súrefni er ekki lengur til staðar í haugnum, byrja
örverur að mynda hauggas. Haug-
gasið er að stórum hluta metan
sem er mjög orkuríkt, en einnig
áhrifarík gróðurhúsalofttegund.
Með því að hreinsa hauggasið og
aðskilja metan frá koltvísýringi
má nýta það sem eldsneyti á öku-
tæki í venjulegum bensínvélum.
Þannig er bæði dregið úr notkun
á jarðefnaeldsneyti og umhverfis-
áhrifum frá urðunarstaðnum. Árið
2016 var metan fyrsta eldsneytið
hérlendis til að hljóta Svansvottun
og er nú eina umhverfisvottaða
eldsneytið á Íslandi.
Aukin framleiðsla metans í
gas- og jarðgerðarstöð
Í lok ársins 2018 er stefnt að því
að hefja starfsemi í fyrstu gas- og
jarðgerðarstöðinni á Íslandi, hjá
SORPU í Álfsnesi. Metanvinnsla
SORPU mun þá aukast til muna
og heildarframleiðslan duga til að
knýja um 7-8.000 bíla. Í dag eru
um 1.400 metanbifreiðar af öllum
stærðum og gerðum í umferðinni,
bæði frá fyrirtækjum og heimilum.
Metanbifreiðar eru umhverfis-
vænn kostur og eru ódýrari í
innkaupum og í rekstri en sam-
bærilegir bílar sem ganga fyrir
jarðefnaeldsneyti. Þær eru oftast
tvíorkubílar og geta því ekið á
bensíni ef langt er í næstu metan-
stöð. Auknu framboði metans fylgja
tækifæri og geta sveitarfélög og
fyrirtæki aukið sjálfbærni í rekstri
og dregið verulega úr sótspori sínu
með því að nýta metan á ökutæki.
METAN umhverfisvottað
eldsneyti úr ruslinu þínu
Hver íbúi á höfuðborgarsvæðinu hendir um 145 kg af úrgangi í orkutunnuna á ári. Þar af eru
um 70 prósent lífræn niðurbrjótanleg efni. Úrgangurinn er urðaður hjá SORPU í Álfsnesi.
Ávinningur af notkun metans sem eldsneytis
l Sótspor eins bensínbíls er meira en 100 sambærilegra ökutækja sem
ganga fyrir metani.
l Sótmengun er nánast engin frá metanbílum.
l Notkun metans frá því framleiðsla hófst árið 2000 hefur dregið um-
talsvert úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, eða um 343.000 tonn af
CO2. Magnið samsvarar árlegum útblæstri álversins í Straumsvík.
l Með því að nýta metanið á ökutæki er verið að nýta innlent vistvænt
eldsneyti. Þannig sparast gjaldeyrir sem nýta má til betri hluta.
l Engin vörugjöld eru á ökutækjum sem ganga fyrir metani. Fyrir
vikið eru smærri metanökutæki oftast mun ódýrari en sambærileg
bensínknúin ökutæki.
l Metanið kostar í dag 147 kr./Nm3. Í orku svarar það til þess að lítrinn af
bensíni myndi kosta 131 kr. Verðið á metaninu er óháð verðsveiflum á
eldsneyti erlendis. Metan mætti einnig vinna úr skólpi. Hér sést breskur strætisvagn sem knúinn
er metani frá skólphreinsistöð.
l Metan er eðlisléttara en and-
rúmsloft og stígur því hratt
upp, sleppi það út.
l Það er erfiðara að kveikja í
metani en bensíni.
l Við bruna metans myndast
aðeins koltvísýringur og vatn.
6 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . a P R Í l 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
2
2
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
B
2
-1
5
7
8
1
C
B
2
-1
4
3
C
1
C
B
2
-1
3
0
0
1
C
B
2
-1
1
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K