Fréttablaðið - 06.05.2017, Page 2

Fréttablaðið - 06.05.2017, Page 2
Veður Í dag er spáð hægum norðanvindi og að dragi heldur fyrir sól norðan- og austanlands og kólni þar. Áfram ætti að vera sóríkt og hlýtt fyrir sunnan og vestan. sjá síðu 58 Slys á Esjunni Kalla þurfti út slökkvilið höfuðborgarsvæðisins um hádegi í gær til að koma konu til aðstoðar. Sú datt og slasaðist í fjallgöngu á Esjunni. Sérhæfður fjallabjörgunarhópur frá slökkvistöðinni í Mosfellsbæ og Tunguhálsi var sendur á staðinn. Greiðlega gekk að finna konuna, en hún var í símasam- bandi við björgunarhópinn allan tímann, auk þess sem hún var ekki ein á ferð. Konan er slösuð, en ekki er vitað hversu alvarlega. Fréttablaðið/Eyþór TAX FREE s í ð a s t i d ag u r tax f r e e Vinalega verslunarmiðstöðin í miðbæ Hafnarfjarðar! sýning kl. 14:00 Eurovision Um hundrað manns sóttu gleðskap íslensku Eurovis­ ion­sendinefndarinnar í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, í gær. Meðal annars létu sendinefndir Finna, Ástrala og Moldóva sjá sig. „Við erum að vonum ánægð með mætinguna. Þarna kom fólk úr öðrum sendinefndum, svolítið af þulum. Við lögðum áherslu á að reyna að ná þulunum sem eru með okkur í undanriðli til að fá þá til að tala svolítið fallega um okkur og fá þá atkvæði frá þeim þjóðum,“ segir Felix Bergsson, einn nefndarmanna, léttur í bragði. Felix segir stemninguna hafa verið rosalega góða. „Ekki síst vegna þess að Svala steig á stokk og söng og gerði það alveg dásamlega. Það kom einna helst á óvart að Vetrarsól Gunnars Þórðarsonar fór svona vel í þá sem voru á svæðinu. Fólk bara táraðist.“ Þá segir hann að Svala Björgvins­ dóttir, keppandi Íslands, hafi að sjálfsögðu flutt lag sitt, Paper, bæði á íslensku og á ensku. Íslenska sendinefndin er í keppnisskapi og ætlar að sjá til þess að Svölu gangi sem allra best. „Við erum bara á fullu að kynna hana til að koma henni á framfæri og koma laginu áfram. Þetta er enda­ laus vinna. Þetta er í raun heilmikið álag á listamanninum,“ segir Felix. Til dæmis hafi Svala sungið fjögur lög í boðinu og staðið svo í við­ tölum og myndatökum í klukku­ tíma. Hún fær hins vegar litla hvíld. „Hún er rétt búin að skríða heim á hótel núna til að hvíla sig í hálf­ tíma. Svo förum við af stað í rútu, nýmáluð og í nýju átfitti, til að fara í moldóvska partíið þar sem hún ætlar að performera,“ segir Felix. Hann segir að margir geri sér ekki grein fyrir því að keppendur eigi það til að missa röddina eftir allan undirbúninginn. „Það er ekki síst vegna þess að þeir tala svo mikið. Það er svo mikið áreiti, mikið af við­ tölum og mikið af aðdáendum sem þarf að sinna.“ Svala stígur á svið á þriðjudaginn á fyrra undanúrslitakvöldinu. Aðal­ keppnin fer síðan fram laugardags­ kvöldið 13. maí, eftir rétta viku, og íslenska þjóðin stendur af heilum hug á bakvið íslenska keppandann. Ábyrgð Felix og félaga í íslensku sendinefndinni er því mikil. „Við erum með stóran og góðan hóp í kringum hana og þetta gengur allt mjög vel,“ segir Felix. Þeir Benedikt Bóas Hinriksson og Stefán Árni Pálsson, blaðamenn á fréttastofu 365, eru í Kænugarði. Munu þeir standa fyrir ítarlegri umfjöllun á Vísi, Stöð 2, Bylgjunni og hér í Fréttablaðinu á næstu dögum. thorgnyr@frettabladid.is Íslendingar héldu uppi stuðinu í Kænugarði Um hundrað mættu í gleðskap Íslendinga í Kænugarði. Svölu Björgvinsdóttur var einkar vel tekið. Felix Bergsson segir sendinefndina í keppnisskapi. Kapp- samlega verði unnið að því að að Svölu gangi vel, en hún fái litla sem enga hvíld. Svala á æfingu í Kænugarði. mynd/EuroviSion Þetta er endalaus vinna. Þetta er í raun heilmikið álag á listamann- inum. Felix Bergsson, í sendinefnd Íslands slys Kajakræðarinn, sem leitað var út af Þjórsárósum að kvöldi 29. apríl síðastliðins og úrskurðaður var látinn á sjúkrahúsi degi síðar, hét Sigurður Birgir Baldvinsson. Sigurður Birgir var fæddur þann 23. október árið 1973 og var til heimilis að Hólmaseli í Flóahreppi. Hann lætur eftir sig sambýliskonu og þrjú börn, fjögurra ára gamla dóttur og sautján og nítján ára syni. Sigurður Birgir var í för með öðrum kajakræðara frá Frakklandi þegar slysið átti sér stað. Sá er við ágætis heilsu. Ræðararnir tveir lentu í vand­ ræðum í briminu við ós Þjórsár. Voru björgunarsveitir af Suður­ landi og úr Vestmannaeyjum, auk sérhæfðra björgunarsveitarmanna af höfuðborgarsvæðinu, ræstar út til að gera víðtæka leit að mönnunum tveimur. – þea Kajakræðarinn nafngreindur sjávarútvEgur Ein króna á hvern hlut í HB Granda verður greidd í arð vegna ársins 2016. Samtals nemur fjárhæðin 1,8 milljörðum króna. Arðurinn verður greiddur þann 31. maí næstkomandi. Þetta var sam­ þykkt á aðalfundi HB Granda í gær. Þau Anna G. Sverrisdóttir, Hall­ dór Teitsson, Hanna Ásgeirsdóttir, Kristján Loftsson og Rannveig Rist voru kjörin í stjórn félagsins. Þá var einnig samþykkt að þóknun til stjórnarmanna vegna næsta árs verði 264.000 krónur á mánuði og að formaður fái tvöfaldan hlut. Undanfarið hefur HB Grandi verið mikið í umræðunni vegna áforma um að hætta botnfisk­ vinnslu á Akranesi. Eru þau áform tilkomin þar sem útlit er fyrir tap af vinnslu botnfisks. Þá greindi Fréttablaðið frá því á fimmtudag að HB Grandi hefði ákveðið að ganga til samninga við spænska skipasmíðamiðstöð um smíði frystitogara. Samningsupp­ hæðin liggur nærri fimm milljörð­ um króna en togarinn er hannaður af Rolls Royce í Noregi. – þea Nærri tveir milljarðar í arð hjá Granda Arðurinn verður greidd- ur þann 31. maí næstkom- andi. Þetta var samþykkt á aðalfundi HB Granda í gær. Úr vinnslu Hb Granda. Fréttablaðið/ StEFán 6 . m a í 2 0 1 7 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 0 6 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 1 3 6 s _ P 1 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 1 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C C F -5 0 4 0 1 C C F -4 F 0 4 1 C C F -4 D C 8 1 C C F -4 C 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 3 6 s _ 5 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.