Fréttablaðið - 06.05.2017, Page 8
MenntaMál „Tækniskólinn er ekki
einkavæddur, heldur er hann einka
rekinn,“ segir Jón B. Stefánsson,
skólastjóri Tækniskólans, um fyrir
hugaða sameiningu skólans við Fjöl
brautaskólann í Ármúla.
Guðríður Arnardóttir, formaður
Félags framhaldsskólakennara, sagði
í Fréttablaðinu í gær að ef sameining
skólanna yrði að veruleika myndi
það fela í sér einkavæðingu Ármúla
skólans.
Jón bendir á að samþykktir
Tækniskólans séu í anda sjálfs
eignarstofnana. „Hluthafar í skól
anum geta aldrei tekið krónu í arð
út úr skólanum,“ segir Jón. Þá bætir
hann við að ef ríkið kjósi að hætta
með þjónustusamning við Tækni
skólann, þá segi menntamálaráðu
neytið samningnum upp. Sex mán
uðum seinna gangi stjórnendur
skólans burt og allar eignir skólans
standi eftir hjá skólanum. „Við erum
að reka starfsemi skólans fyrir ríkið,“
segir hann.
Jón segir að ráðuneytið hafi byrjað
að tala við skólana um sameiningu
seinni hlutann í febrúar. Með sam
einingu myndi nást stærðarhag
kvæmni sem sé mjög mikilvæg í
verknámsskólum. Þá sé mikilvægt
að bregðast við fyrirsjáanlegri fækk
un í árgöngum og fækkun vegna
styttingar náms til stúdentsprófs.
Jón segir að hægt væri að ná fram
töluverðri samlegð með sameiningu
skólanna. Til dæmis séu báðir skól
arnir með töluvert bóknám, Fjöl
braut í Ármúla sé sterk í fjarnámi og
Tækniskólinn hafi verið bæði með
fjarnám og endurmenntun. „Báðir
skólarnir eru með sérdeildir. Þeir
eru með nám fyrir fólk með hreyfi
hömlun en við erum með einhverfu
deild. Báðir skólarnir eru með tölu
vert af nýbúum. Það passar vel
saman,“ segir Jón. Þá séu báðir skólar
með nám á fagháskólastigi. Aðrir
hlutir passi síður saman, til dæmis
sé Tækniskólinn með iðngreinar en
Ármúlaskóli með heilbrigðisgreinar.
Þetta myndi gefa sameinuðum skóla
fjölbreytni og nemendunum ný
tækifæri.
Nemendur Tækniskólans eru í
dag um 2.100 en yrðu um 3.000 eftir
stækkun. En síðan er gert ráð fyrir
fækkun nemenda og Jón gerir ráð
fyrir að eftir 2020 yrði skólinn álíka
stór og þegar hann var stærstur fyrir
efnahagshrunið.
Jón segist hafa fundað með starfs
mönnum Ármúlaskóla í dag. Þar
hafi hann gert starfsfólki grein fyrir
því að öll réttindi starfsmanna sem
ráðast til Tækniskólans yrðu óbreytt
og flyttust yfir. „Það munu náttúrlega
einhverjir hætta vegna biðlauna,
eins og gerist og gengur. En þeir
kennarar sem vilja vinnu verða allir
ráðnir á sömu kjörum og með sömu
réttindum. Eina tæknilega breyting
in sem verður er sú að fólk fær launa
seðilinn sinn frá öðrum aðila,“ segir
hann. jonhakon@frettabladid.is
Áformin feli
ekki í sér
einkavæðingu
Ármúlaskóla
Samtöl um sameiningu Tækniskólans og FÁ hófust
seint í febrúar. Skólameistari Tækniskólans segir
töluverða samlegð nást með sameiningu. Enginn
kennari myndi missa vinnuna ef af sameiningu yrði.
Hluthafar í skól-
anum geta aldrei
tekið krónu í arð út úr
skólanum. Við erum að reka
starfsemi skólans fyrir ríkið.
Jón B. Stefánsson,
skólastjóri Tækni-
skólans
HeilbrigðisMál Forsvarsmenn
Sjúkrahússins á Akureyri hafa áhyggj
ur af fjárframlögum til starfsemi
spítalans samkvæmt fjármálaáætlun.
Raunaukning peninga til spítalans er
ekki nægileg til að tryggja þá auknu
þjónustu sem spítalinn veitir. Hins
vegar sé erfitt að mati spítalans að lesa
í áætlunina til að átta sig á áhrifum
hennar á rekstur spítalans.
„Eins og þetta lítur út fyrir okkur
þá er mjög erfitt að sjá hvernig fjár
málaáætlun hefur áhrif á rekstur
sjúkrahússins á Akureyri,“ segir Bjarni
Jónasson, forstjóri SAK á Akureyri.
„Það er afar erfitt að lesa út hvernig
nákvæmlega þetta mun hafa áhrif,
hversu mikið fer í tækjakaup og stofn
kostnað eða í beinan rekstur.“
Þjónusta sjúkrahússins hefur auk
ist mikið síðustu ár vegna samþjöpp
unar heilbrigðisþjónustu á Norður
landi, hækkaðs aldurs íbúa og aukins
fjölda ferðamanna. Til að mynda voru
um 5 prósent koma á bráðamóttöku
á Akureyri ósjúkratryggðir einstakl
ingar.
„Hins vegar getum við séð að það
fjármagn sem á að fara til spítalans sé
ekki nægjanlegt að okkar mati. Ann
ars er framsetning fjármálaáætlunar
innar þannig að við bíðum bara fjár
laga og í því plaggi munum við fá betri
mynd af því hvernig rekstur okkar
mun líta út,“ bætir Bjarni við. – sa
Bíða eftir fjárlögum því
erfitt sé að átta sig á áætlun
Sjúkrahúsið á Akureyri.
FréttAblAðið/Pjetur
6 . M a í 2 0 1 7 l a U g a r D a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
1
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
F
-8
B
8
0
1
C
C
F
-8
A
4
4
1
C
C
F
-8
9
0
8
1
C
C
F
-8
7
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K