Fréttablaðið - 06.05.2017, Page 10
25% afsláttur á Fjarskaland
í Þjóðleikhúsinu ef greitt er með
korti frá okkur
Velkomin
til Fjarskalands!
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
–
17
-1
33
0
Tækni Kínverskir snjallsímafram-
leiðendur hafa sótt í sig veðrið und-
anfarið. Í nýrri rannsókn frá Count-
erpoint Research kemur fram að sala
á snjallsímum kínverska fyrirtækis-
ins Oppo hafi aukist um 81 prósent á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs saman-
borið við sama tímabil árið 2016. Þá
seldi Vivo 60 prósent fleiri síma og
sala á Huawei-snjallsímum jókst um
fjórðung.
Þessi mikli uppgangur hefur bitn-
að á sölu stærstu snjallsímaframleið-
enda heims. Seldu Apple og Samsung
til að mynda mun færri snjallsíma í
Kína á fyrsta ársfjórðungi þessa árs
en í fyrra. Fimmtán prósenta hnign-
un var hjá Apple og öllu meiri hjá
Samsung, alls sextíu prósent.
Þýðir þetta að snjallsímamarkað-
urinn í Kína er talsvert frábrugðinn
því sem við höfum vanist á Íslandi.
Í stað þess að framleiðendur á borð
við Apple, Samsung, Google og LG
sláist um markaðinn eru þrír kín-
verskir snjallsímaframleiðendur
með samtals rúmlega 54 prósenta
markaðshlutdeild.
Alls voru 19,7 prósent seldra
snjallsíma á fyrsta ársfjórðungi frá
Huawei, samanborið við 16,4 pró-
sent í fyrra. 17,5 prósent frá Oppo
en 10,1 prósent í fyrra og 17,1 pró-
sent frá Vivo, 11,2 prósent í fyrra.
Til samanburðar var markaðshlut-
deild Apple 12,3 prósent en er nú
10,1 prósent. Samsung var með 8,6
prósenta markaðshlutdeild en hún
féll í 3,3 prósent.
En Kínverjar beina sjónum sínum
ekki einungis að samlöndum sínum
heldur herja þeir einnig á Indlands-
markað. Samtals búa nærri 2,7
milljarðar í ríkjunum tveimur og
markaðirnir því gríðarlega stórir.
Í þremur af efstu fimm sætunum
yfir markaðshlutdeild á snjallsíma-
markaði í Indlandi má finna þrjá kín-
verska framleiðendur, Xiaomi, Oppo
og Vivo.
Þá raða Kínverjar sér í þrjú af efstu
fimm sætunum á heimsvísu. Símar
Samsung hafa 22,8 prósenta mark-
aðshlutdeild á heimsvísu og Apple
14,9 prósent og hafa því þessir risar
yfirburðastöðu. Hins vegar hefur
Huawei 9,8 prósenta markaðshlut-
deild, Oppo 7,4 prósent og Vivo 5,2
prósent. Samtals 22,4 prósent sem er
litlu minna en Samsung.
Kínverskir símar eru búnir til úr
álíka öflugu innvolsi og símar Apple
og Samsung en eru þrátt fyrir það í
flestum tilfellum ódýrari. Því hafa
þeir einnig vakið áhuga utan Ind-
lands og Kína. Hafa ber í huga að
kínverskir símar geta ekki allir tekið
á móti 4G merkjum úr íslenskum
sendum. thorgnyr@frettabladid.is
Rísandi sól kínverskrar
snjallsímaframleiðslu
Kínverskir snjallsímar seljast betur en símar Apple og Samsung í heimalandinu.
Símarnir eru ódýrari en búnir sama innvolsi. Seljast einnig vel á Indlandi.
Tækni Apple seldi 3,5 milljónir
snjallúra á fyrsta ársfjórðungi þessa
árs. Er það aukning um 59 prósent
frá síðasta ári þegar 2,2 milljónir
snjallúra fyrirtækisins seldust. Þetta
kemur fram í nýrri skýrslu Strategy
Analytics sem Engadget greindi frá
í gær.
Hirti Apple þar með fyrsta sætið af
Fitbit sem seldi flest snjallúr á sama
tímabili í fyrra. Seldi Fitbit nú 2,9
milljónir snjallúra en 4,5 milljónir
í fyrra. Varð þessi samdráttur ekki
einungis til þess að Apple stökk upp
fyrir Fitbit heldur gerði kínverski
framleiðandinn Xiaomi það líka.
Neil Mawston, einn rannsakenda
Strategy Analytics, sagði í samtali við
Engadget að snjallúr Apple seljist nú
vel vegna öflugrar auglýsingaher-
ferðar og stílhreins útlits. Þá sé einnig
auðvelt að nálgast þau.
Útskýrði hann samdráttinn hjá
Fitbit með því að framleiðendum
íþróttasnjallúra hefði fjölgað. Hefur
samdráttur í sölu hjá Fitbit orðið til
þess að 110 var sagt upp hjá fyrir-
tækinu í janúar, alls sex prósentum
starfsmanna.
Yahoo Finance birti í upphafi
mánaðar myndir sem sagðar eru
vera af væntanlegu nýju snjallúri Fit-
bit. Herma heimildir Yahoo að GPS-
móttakari, púlsmælir og einstaklega
bjartur skjár séu á meðal búnaðar
úrsins. – þea
Sala Apple-snjallúra eykst
Kona virðir fyrir sér F1 Plus síma frá Oppo á snjallsímahátíð í Barcelona.
NOrdicPhOtOs/AFP
tim cook, forstjóri Apple, kynnir snjallúr fyrirtækisins. NOrdicPhOtOs/AFP
22,4%
var markaðshlutdeild þriggja
kínverskra snjallsímafram-
leiðenda á fyrsta ársfjórðungi.
59%
aukning var á sölu snjallúra
Apple á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs samanborið við
sama tímabil í fyrra.
6 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R10 f R é T T i R ∙ f R é T T a B L a ð i ð
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
1
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
F
-9
F
4
0
1
C
C
F
-9
E
0
4
1
C
C
F
-9
C
C
8
1
C
C
F
-9
B
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K