Fréttablaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 18
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Varla er hægt
að álasa
stjórnmála-
mönnum
fyrir að
standa við
gefin loforð.
Nóg eru þeir
gagnrýndir
fyrir hið
gagnstæða. En
eðlilegt er að
velta fyrir sér
hvaða for-
sendur liggi
að baki.
Minn kæri. Ég er ekki í nokkrum vafa, ég er að missa vitið aftur. Við munum ekki komast í gegnum annað slíkt martraðartímabil. Og ég
mun ekki ná mér í þetta sinn. Ég heyri raddir og ég get
ekki einbeitt mér. Ég geri því það sem mér sýnist vera
það besta í stöðunni. Þú hefur gert mig eins hamingju-
sama og nokkur getur orðið. Þú hefur verið mér allt. Ég
efast um að tvær manneskjur hafi fyrirfundist sem voru
hamingjusamari en við áður en þessi hræðilegi sjúk-
dómur kom til sögunnar. Ég get ekki barist lengur. Ég
veit að ég er að eyðileggja líf þitt, án mín getur þú unnið
… Ég hef misst allt nema trúna á gæsku þína. Ég get ekki
haldið áfram að eyðileggja líf þitt. Ég held að engum hafi
veist jafnmikil hamingja og okkur. V.“
Sjálfsvíg í glansbúningi
Sjálfsvíg hafa verið töluvert til umræðu síðustu vikur í kjöl-
far þess að efnisveitan Netflix frumsýndi sjónvarpsþættina
13 Reasons Why. Þættirnir fjalla um unglingsstúlku sem
sviptir sig lífi en stúlkan skilur eftir sig þrettán kassettur þar
sem hún rekur ástæður ákvörðunar sinnar.
Fjöldi fólks og samtaka sem starfa að geðheilbrigðis-
málum hefur gagnrýnt þættina. Eru þeir sagðir setja sjálfs-
víg í glansbúning auk þess sem þeir séu hrópleg einföldun
á flóknu máli.
Þrír til fjórir Íslendingar
Samkvæmt tölum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar eru
sjálfsvíg ein algengasta dánarorsökin í heiminum í dag.
Á ári hverju ráða rúmlega 800.000 einstaklingar sér bana.
Sjálfsvígstíðni á Íslandi er hærri en víðast hvar í heiminum.
Um 45 Íslendingar fyrirfara sér á hverju ári. Í þessum mán-
uði munu þrír til fjórir Íslendingar stytta sér aldur. Sjálfsvíg
er algengari dánarorsök en magakrabbamein, skorpulifur,
ristilkrabbamein, brjóstakrabbamein og Alzheimer-sjúk-
dómurinn. Þeir sem fremja sjálfsvíg eru oftar en ekki
haldnir þunglyndi. Það má því segja að þunglyndi sé einn
af banvænni sjúkdómum sem mannkynið glímir við.
Veikindi viðskiptavædd
Hvað sem segja má um sjónvarpsþættina 13 Reasons
Why er eitt víst: Fjaðrafokið í kringum sýningu þeirra
hefur orðið til þess að beina sjónum að aðkallandi mál-
efni. Ein spurning stendur upp úr í umræðunni: Hvernig
stendur á því að sjúkdómur sem ógnar lífi og limum
fólks í svo stórum stíl skipar ekki hærri sess innan heil-
brigðiskerfisins?
Á Íslandi sitjum við nú uppi með ríkisstjórn sem
virðist uppteknari af því að viðskiptavæða veikindi fólks
og greiða af þeim arð en að efla heilbrigðiskerfið með
nauðsynlegu fjármagni. Þótt ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks,
Viðreisnar og Bjartrar framtíðar hafi í stjórnarsáttmála
sínum kveðist ætla að auka aðgengi að geðheilbrigðis-
þjónustu er fátt sem gefur tilefni til bjartsýni. En það er
ljós í myrkrinu. Bókstaflega.
Í nótt fór fram ganga sem nefnist Úr myrkr inu í ljósið.
Var hún haldin á vegum samtakanna Pieta Ísland til að
minnast þeirra sem framið hafa sjálfsvíg. Gangan er liður
í fjáröflun samtakanna en þau vinna að því að opna hér
á landi svo kallað Pieta-hús að írskri fyrirmynd þar sem
fólk í sjálfsvígshættu getur leitað sér faglegrar aðstoðar
og fengið hana fyrirvaralaust.
Veröldin betri án þeirra
Þremur dögum fyrir frumsýningu 13 Reasons Why var
þess minnst að 76 ár eru liðin frá því rithöfundurinn
Virgina Woolf svipti sig lífi. Sjálfsvígsbréf Woolf sem
hún skrifaði Leonard eiginmanni sínum og vitnað er
í hér að ofan fangar hugarástand þess sem gefist hefur
upp. Á hverjum degi berst fjöldi fólks við sömu til-
finningar – vonleysi, kvíða, sektarkennd, örvæntingu
og uppgjöf – sannfært um að veröldin væri betri án
þess. En með skjótum viðbrögðum má leiða fólk frá
brúninni.
Þeir sem ekki komust í gönguna Úr myrkr inu í ljósið
geta styrkt Pieta Ísland með því að leggja inn á reikning
félagsins: 301-26-041041 – kennitala: 410416-0690.
Einn banvænasti
sjúkdómur samtímans
Skipuleggjandi: Stofnunin Stiftung Gralsbotschaft
www.gralsbodskapur.org • info@gralsbodskapur.org
Sími: 842 2552
FYRIRLESTUR Á ENSKU
Christopher Vasey
Máttur hugsana
Samkvæmt Gralsboðskapnum
Miðvikudaginn
10. maí
kl. 20:00
Norræna húsinu
Sturlugötu 5
101 Reykjavík
Aðgangseyrir: 500 kr.
Lesinn útdráttur úr
Gralsboðskapnum á íslensku
GRALSBOÐSKAPURINN
erindi og umræður á ensku
Fimmtudaginn
11. maí
kl. 20:00
Norræna húsinu
Sturlugötu 5
101 Reykjavík
Kynning á andlega ritinu
”Í ljósi sannleikans,
Gralsboðskapurinn”
og höfundi þess, Abd-ru-shinAðgangur ókeypis
Meirihluti borgarráðs ætlar að lækka leikskólagjöld um tvö hundruð milljónir á ári. Um er að ræða síðbúnar efndir á fyrirheitum sem gefin voru þegar núverandi borgarstjórnarmeiri-
hluti tók við.
Varla er hægt að álasa stjórnmálamönnum fyrir að
standa við gefin loforð. Nóg eru þeir gagnrýndir fyrir
hið gagnstæða. En eðlilegt er að velta fyrir sér hvaða for-
sendur liggi að baki.
Auðvitað er ákvörðun sem þessi líkleg til vinsælda.
Hvaða foreldri vill ekki greiða lægri leikskólagjöld?
Hins vegar virðist vera nokkurn veginn einhugur um
það að aðstæður í leikskólum landsins mættu vera
betri. Taka má undir með Sjálfstæðismönnum í borgar-
ráði sem létu bóka að viðhaldi skóla og skólalóða væri
ábótavant, aðstæður starfsmanna ófullnægjandi og fjár-
veitingar til fæðiskaupa takmarkaðar. Við þetta má svo
bæta að laun leikskólakennara eru auðvitað skammar-
lega lág.
Því mætti halda því fram að óábyrgt sé hjá meirihlut-
anum að skerða þá fjármuni sem leikskólar borgarinnar
hafa úr að spila.
Leikskólakennarar vinna erfitt og mikilvægt starf.
Þeir eiga að fá umbun í samræmi við það. Öllum er
kappsmál að bjóða börnunum það besta, sjá til þess að
þau nærist vel og að leikskóladvölin sé gagnleg og sem
ánægjulegust.
Allt kostar þetta peninga og tekjuskerðing leik-
skólanna kallar á enn frekari sparnað. Það er erfitt að
spara þar sem skórinn kreppir fyrir. Fljótlega kemur að
sársaukamörkum.
Fyrsta krafan á að vera sú að umbúnaður barna og
starfsfólks sé fullnægjandi. Því næst ber að líta til þess
hversu mikla peninga þurfi til að reka starfsemina með
fullnægjandi hætti. Það er óábyrgt og ávísun á vandræði
að lækka fjárframlögin án þess að hugsa áhrifin á leik-
skólastarfið til enda.
Flestir foreldrar sem eiga börn á leikskólaaldri styðja
vafalaust sjálfsagðar kröfur leikskólakennara um mann-
sæmandi laun og aðbúnað. Í því er fólginn ákveðinn
tvískinnungur, að vilja á sama tíma lækka gjöldin til
muna eða gera kröfur um að þau verði jafnvel afnumin
með öllu.
Fljótt á litið virðast vera tveir möguleikar fyrir
borgaryfirvöld til að beina auknu fé í leikskólana. Sú
fyrri er að afnema fyrirhugaða lækkun skólagjalda og
hækka þau jafnvel, sú síðari er að veita meiri peninga úr
almennum sjóðum borgarinnar í leikskólastarfið. Með
öðrum orðum, valið stendur milli þess að þeir greiði
fyrir þjónustuna sem nota hana, eða að peningar séu
færðir úr samneyslunni.
Þurfa foreldrar ekki einfaldlega að horfast í augu við
þá staðreynd að þjónustan er ekki ókeypis? Hófleg
hækkun á leikskólagjöldum fyrir þá sem eru aflögufærir
er auðfarnasta leiðin til að bæta hag leikskólanna og
þeirra sem þar starfa.
Hver á að borga?
6 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R18 s k o ð U n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
SKOÐUN
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
1
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
F
-5
F
1
0
1
C
C
F
-5
D
D
4
1
C
C
F
-5
C
9
8
1
C
C
F
-5
B
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K