Fréttablaðið - 06.05.2017, Side 28
myndagerð. „Þetta er líka mikil
vægt fyrir tungumálið, við vitum
alveg að danska er ekki að fara að
verða alheimstungumálið á morgun,
en það er auðveldara að spegla sig í
kvikmyndum á móðurmálinu. Alveg
eins og það er auðveldara að tengja
við það sem gerist í nærumhverfinu
fremur en það sem gerist kannski í
New York. Þess vegna er mikilvægt
fyrir okkur að halda áfram að fram
leiða kvikmyndir í Danmörku.“
Frá Buster Keaton til fábjána
Mads segir að hvað hann varði per
sónulega hafi ótrúlega margar kvik
myndir haft áhrif á hann en án þess
að hann gerði sér alltaf grein fyrir
því á því augnabliki. „Það er oft eðli
kvikmynda að seytla rólega inn í vit
undina. En sem krakki var ég algjör
lega heillaður af Bruce Lee og Buster
Keaton. Þetta voru risarnir tveir í
mínu lífi og það er dáldið skondið
að hugsa til þess núna að í raun áttu
þeir heilmargt sameiginlegt. Báðir
eru með mikla og sterka nærveru á
tjaldinu sem þeir nota óspart. Þeir
nota einfaldan frásagnarmáta og
voru báðir gríðarlega færir líkam
lega og það er færni sem hefur alltaf
heillað mig.
Seinna á ævinni var það umfram
allt Taxi Driver eftir Martin Scors
ese sem gjörbreytti viðhorfi mínu
til kvikmynda. Á þeim tímapunkti
vorum við vön að sjá myndir um
góðu og vondu kallana og svo
gerðist eitthvað á milli þeirra. En í
Taxi Driver horfði maður á þennan
náunga sem var hreint út sagt algjör
fábjáni en maður kunni samt vel við
hann. Maður hataði hann og elskaði
í sömu andrá. Ég man eftir því að
koma út úr bíóinu eftir að hafa séð
hana í fyrsta sinn og ég var alveg
ringlaður. Það var búið að brjóta
niður þennan svarthvíta vegg –
þessa góðuvondukalla hugmynd
og á því andartaki áttaði ég mig á því
að kvikmyndir geta fengið mann til
þess að efast um allt og hugsa hlut
ina upp á nýtt. Taxi Driver er þannig
mynd sem veitir engin svör heldur
fær mann til þess að hugsa og þess
vegna hefur það reynst mér frábær
innblástur að leita í þá mynd aftur
og aftur.“
Pusher var svo fyrsta kvikmyndin
sem Mads Mikkelsen lék í og það er
ekki laust við að þar gæti einmitt
áhrifa frá Taxi Driver. „Algjörlega,
en Pusher 2 var í raun skyldari Taxi
Driver vegna þess að þar erum við
að fylgja eftir sögu manns sem er
algjör fábjáni en við finnum til
með honum engu að síður. Það er
persóna sem maður tengist tilfinn
ingalega um leið og mann langar til
þess að fokking drepa hann,“ segir
Mads og hlær. „En óneitanlega var
Pusher sú mynd sem breytti mestu
fyrir minn feril og opnaði fyrir mér
allar dyr en mér finnst framhaldið
mun betri mynd. Hún er í raun mun
snjallari og á óneitanlega mjög stór
an sess í mínu kvikmyndahjarta.
Þannig er það vissulega líka með
Jagten, það er falleg mynd sem
mér þykir vænt um og eins mynd
Susanne Bier, Elsker dig for evigt,
og það eru vissulega fleiri slíkar á
mínum ferli.
En fyrir mig sem leikara þá verð
ég að nefna mynd sem ýtti mér út að
ystu mörkum. Mynd sem var í raun
eiginlega á mörkunum að vera lög
leg á sínum tíma vegna þess að við
vorum kynslóð sem vorum að vinna
í mjög svo heimildarmyndalegum
og raunverulegum stíl. Þetta var
svarta kómedían De grønne slagt
ere sem Anders Thomas Jen sen leik
stýrði. Það var mynd sem jaðraði við
að vera ákveðið sjálfsmorð en við
gerðum hana samt og þar komumst
við upp með að skapa persónur sem
voru eiginlega leikhúspersónur. Ég
alveg elskaði að komast upp með
þetta og mér finnst þetta vera alveg
brilljant mynd.
Sprungur í brynjunni
Leyndardómurinn á bak við kóm
edíu er að það verður að taka hana
mjög alvarlega. Þegar til að mynda
persónurnar eru í uppnámi eða að
brotna niður yfir einhverju, hversu
fáránlegt sem það er, þá verður
maður að virða það og vera hrein
skilinn. Það er í þeirri einlægni sem
allt verður klikkað og fyndið í raun
og veru.“
Mads segir að fyrir honum megi í
raun rekja þessa einlægni kómedí
unnar aftur til snillinga á borð við
Buster Keaton. „Hann var snillingur
í þessu. Og það sem ég elska mest við
myndirnar hans er að hann brosir í
raun og veru en örsjaldan. En þegar
hann brosir þá opnast himnarnir. Ég
gerði mér auðvitað ekki grein fyrir
þessu þegar ég var strákur en þetta
er það sem heillar. Ég er aðdáandi
þessarar færni. Maður á ekki að
leika persónuna sem er alltaf glöð
eða alltaf sorgmædd heldur þá sem
er raunveruleg. Buster Keaton leikur
alltaf manneskjuna sem heldur ein
hverju fyrir sig, einhverju sem aðrir
fá ekki að sjá en svo fara að myndast
holur og sprungur í brynjunni og
þar í gegn fáum við svo að sjá það
sem skiptir máli. Þetta er sú leið sem
hefur alltaf heillað mig.
Elska þessar aðstæður
Það var dásamlegt að klára þetta
verkefni en það var líka dásamlegt
að vinna það. Þú og þínir lesendur
þekkið Ísland auðvitað betur en ég,
þetta á að gerast á norðurpólnum,
og þeir sem þekkja Ísland eitthvað
vita að veðrið breytist gjörsamlega
á klukkustundar fresti. Það leiddi til
þess að við vorum lengi vel að eltast
við veðrið og reyna að laga okkur að
aðstæðunum. Vorum að stökkva á
milli atriða eftir því hvernig veðrið
breyttist og svo þegar við vorum til
búin í að taka atriðið þá var komið
eitthvað allt annað veður. Þannig að
við vorum svona að reyna að berjast
við þessar aðstæður – þetta síbreyti
lega veður, þangað til að við bara
gáfumst upp. Komumst að þeirri
niðurstöðu að við þyrftum hreinlega
bara að skjóta þessa mynd óháð því
hvernig veðrið væri. Við bara látum
þetta virka,“ segir Mads og hlær við
tilhugsunina. „Þetta reyndist okkur
miklu betur. Það var ekki til neins
að eltast við þetta. En þetta er falleg
mynd. Hjartnæm og sterk saga sem
er í raun mjög svo óamerísk þó svo
að hún sé amerísk og ég hlakka
mikið til að sjá útkomuna.“
Mads hefur á orði að það sé líka
talsvert frábrugðið því að vinna
á Íslandi og víða annars staðar í
heiminum. „Ég elska Ísland. Ég elska
fólkið og landið. Ég elska hvernig
Íslendingar vinna. Núna er ég búinn
að vera þrisvar sinnum á Íslandi og
ég verð alltaf jafn heillaður af því
hvað fólkið gefur sig allt í það sem
við erum að gera. Fólk bara brettir
upp ermar og vinnur þau verk sem
þarf að vinna með bros á vör. Það
var gríðarlega erfitt að vinna að
þessari mynd en ég hef aldrei áður
séð svona margt fólk vinna af slíkum
dugnaði en vera um leið jákvætt og
glatt.
Þetta er nákvæmlega það sem
mynd eins og þessi þarf á að halda
því ef þú ert með fimm verkalýðs
félög og átta manns að kvarta undan
öllu á hverjum degi þá er ekki hægt
að búa til svona myndir. Ég er ekki
að gefa skít í verkalýðsfélög með
þessu en stundum er það algjörlega
dásamlegt að geta bara búið til bíó.“
Mads segir að Arctic hafi verið
krefjandi verkefni og að það hafi
líka reynt á hann líkamlega enda
dagarnir langir við erfiðar aðstæður.
„En við skutum hana á tuttugu og
tveimur dögum minnir mig og þegar
maður veit að maður er að vinna í
svona rokk og ról verkefni þá er
maður líka meðvitaður um enda
markið. Maður lætur bara vaða,
leyfir sér ekki að hugsa um hversu
erfitt þetta er og vonandi er maður
svo búinn að þessu nokkrum vikum
síðar.
Kvikmyndir geta verið erfiðar á
ólíkan máta. Stundum leikur maður
í senu, er svo laus frá tökum í einn
eða tvo daga á meðan það er verið
að skjóta aðrar persónur og maður
fer að hugsa um næstu senu svona
í rólegheitunum. En í Arctic var ég
að alla daga, hverja einustu mínútu
frá morgni til kvölds og það komst
ekkert annað að. Ég nýt þess að vera
í þessum skriðþunga og hef þá trú að
við þær aðstæður geti skapast eitt
hvað alveg sérstakt. Mér finnst mjög
heillandi að vinna í þessari orku og
nýt þess til fulls.“
Þetta er draumurinn
Mads Mikkelsen er gríðarlega eftir
sóttur leikari en segist þó ekki hafa
hugmynd um hvað hann ætlar að
taka sér fyrir hendur næst. „Ég veit
það ekki. Það er reyndar þannig
með okkur sem vinnum við að gera
kvikmyndir að við deilum þeirri
tilfinningu að loknu verkefni að
við fáum aldrei aftur neitt að gera.
Það er eitthvað sem breytist aldr
ei,“ segir Mads og hlær aðeins við
tilhugsunina. „En það er líka á sinn
hátt skelfilegt að vera fullbókaður
næstu tvö árin. Þá er ég alltaf að
hugsa: Hvað ef það kæmi nú eitt
hvað annað sem er algjörlega stór
kostlegt? Hvað þá? Þannig að þetta
er tvíeggjað sverð. En ég hef lært að
sætta mig við þetta að einhverju
leyti og er að reyna að vera afslapp
aður gagnvart þessu vegna þess að
ég get engu breytt um þetta.
Það koma tilboð og ef mér líkar
ekki við þau þá segi ég nei. Ég er
kominn á þann stað að ég vel ekki
lengur verkefni vegna peninganna
heldur vegna þess að það er eitthvað
sem mér finnst spennandi og langar
til þess að gera. Það er augljóslega
lúxus vegna þess að stundum er
maður bara búinn með peninginn
en núna er ég í þeirri gæfuríku stöðu
að geta sagt: Veistu hvað, ég er að
taka mér langt frí,“ segir Mads og
það leynir sér ekki að hann nýtur
þess að vera í góðu fríi.
„Þegar ég tek mér frí þá fer ég
heim til fjölskyldunnar. Ég er giftur
yndislegri konu og við eigum tvo
stráka sem eru orðnir 25 og 19 ára.
Við verjum miklum tíma saman,
erum mikið í sporti og ég hjóla, spila
tennis og það er svona mín leið að
því að slaka á í lífinu. Ég hef alltaf
verið líkamlega vel á mig kominn
og ætli að fimleikamaðurinn sé
ekki alltaf þarna einhvers staðar. En
ég er svo sem orðinn 51 árs gamall
og líkaminn jafnar sig ekki með
sama hraða og áður. Vandinn er að
ég er alltaf að gleyma aldrinum en
líkaminn minnir mig svo á hann á
kvöldin. Segir mér að þessir fjórir
tímar af tennis hafi verið helst til
mikið,“ segir Mads og hlær.
„Hvað ferilinn varðar þá snýst
draumurinn í raun um það sem ég
var að gera á Íslandi. Þetta er þar
sem þetta byrjaði. Þessi rokk og ról
kvikmyndagerð sem mín kynslóð
féll fyrir og við létum okkur dreyma
um að verða hluti af einn daginn.
Ég hef tekið þátt í nokkrum slíkum
verkefnum en þau koma ekki til
manns á hverjum degi. Langt frá því.
Ef ég verð heppinn þá fæ ég að taka
þátt í einu eða tveimur slíkum verk
efnum til viðbótar. En þetta verk
efni á Íslandi kom til mín og þetta
er það sem okkur leikarana dreymir
um. Að fara inn í verkefnið, gleyma
aldrinum og halda að maður sé tví
tugur og bara láta vaða. Ég held að
þetta sé draumur allra leikara.“
Mads Mikkelsen hefur verið viðstaddur ófáa stórviðburðina en hugurinn er þó heima í Kaupmannahöfn hjá fjölskyldunni. NordicphotoS/gEtty
↣
NúNa er ég búiNN að
vera þrisvar siNNum
á ÍslaNdi og ég verð
alltaf jafN heill-
aður af þvÍ hvað
fólkið gefur sig allt
Í það sem við erum að
gera. fólk bara
brettir upp ermar og
viNNur þau verk sem
þarf að viNNa með bros
á vör.
vaNdiNN er að ég er
alltaf að gleyma
aldriNum eN lÍkamiNN
miNNir mig svo á haNN
á kvöldiN. segir mér að
þessir fjórir tÍmar af
teNNis hafi verið helst
til mikið.
6 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R28 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
F
-9
5
6
0
1
C
C
F
-9
4
2
4
1
C
C
F
-9
2
E
8
1
C
C
F
-9
1
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K