Fréttablaðið - 06.05.2017, Side 40

Fréttablaðið - 06.05.2017, Side 40
Af fésbókarsíðu foreldrafélagsins Þakka ykkur fyrir stórkostlegan dag með fjölda gesta, flotta kynningu þjóða, bragðgóðan mat, fagran klæðnað. Þakkir til allra kennara, foreldra, gesta og nágranna, þetta var reglulega vel heppnuð hátíð. Gætum við fengið hátíðarmynd úr salnum af hópnum? Þakkir til allra. Til Söru Bjargar prívat: Þakka þér innilega, Sara, fyrir frábært starf við að sýna allra þjóða fólki í hverfinu þínu áhuga og vekja athygli á mikilvægi þess. Við erum mjög ánægð og stolt af því að búa í hverfinu og tengjast Breiðholtsskóla. Þetta er mjög mikilvægt fyrir okkur útlendinga sem ekki eigum stórar fjölskyldur hér á landi. Halyna Halapats Mig langaði að kynnast foreldr-um barnanna s e m b ö r n i n mín eru að leika við, opna huga minna barna fyrir nýjum hlutum og standa vörð um börn með veikt bakland, hver sem uppruni þeirra er. Þetta er kynslóðin sem við erum að ala upp.“ Þannig lýsir Sara Björg Sigurðardóttir, í foreldrafélagi Breið- holtsskóla, því sem fyrir henni vakti þegar hún sótti um fjárstyrki vorið 2015 til að halda fjölmenningarhátíð í skólanum. Hún var þá nýkomin í Neðra-Breiðholtið og átti son í 1. bekk skólans. Í skólanum eru um 450 börn og um 140 þeirra eru tví- tyngd, Sara Björg kveðst hafa viljað draga fram það jákvæða við að vera í fjölmenningarhverfi. Þegar styrkir fengust var eftir að kynna verkefnið og fá fólk til að taka þátt, bæði í Breiðholtsskóla, foreldrafélaginu og leikskólanum í hverfinu. Afraksturinn varð stór og mikil matarhátíð, þar mætti fólk prúðbúið og bauð upp á rétti sinnar þjóðar. Það hafði skilað inn áætl- unum um hvað það langaði að elda, fékk til þess pening og hafði nokkuð frjálsar hendur. „Aðsóknin fór langt fram úr öllum áætlunum. Við áttum von á kannski 150 manns en það mættu yfir 800,“ lýsir Anna Sif Jónsdóttir, formaður foreldrafélagsins. „Markmiðið var að byggja brýr milli fólks og við teljum það hafa tekist. Það sem mér fannst skipta svo miklu máli var að börnin fyndu stoltið við að kynna sitt föður- land fyrir samnemendum sínum og fengju að vera hluti af einhverju stóru. Það er þekkt að þátttaka for- eldra í skólastarfi skilar miklu inn í námsárangur krakkanna og þarna náðum við að draga fullt af erlendu fólki inn í það starf. Það mættu líka mörg hundruð manns á hátíðina síðasta haust, hún var haldin í lok þemaviku í skólanum sem nefndist Tungumálið mitt. Þar skrifuðu börn alls konar orð á mörgum tungumál- um, gerðu fána síns lands og fullt af öðrum og fræðandi hlutum.“ „Sjálfsmynd barnanna eflist með svona starfi. Það er það sem skiptir máli. Stærsta áskorunin var að virkja foreldrana í upphafi og fá þá til að vera með, vera ófeimna,“ lýsir Sara Björg. „Aðstæður fólks eru auðvitað mismunandi. Sumir hafa sest hér að til frambúðar, aðrir ætla að vera hér í nokkur ár að vinna og fara svo heim aftur. Svo er misjafnt hvernig aðstæður eru í heimalandinu. Maður getur ekki gert ráð fyrir því að allir séu komnir hingað upp á gleðina.“ En hvernig fór hún að því að ná til foreldra af ólíkum uppruna sem tala ólík tungumál? „Það var bara maður á mann. Ég hitti fólk á göngum skól- ans, í búðinni, sundlauginni, bún- ingsklefunum, bókasafninu. Ég tala bara íslensku og ensku en ef maður nálgast fólk þannig að því líði vel og gefur sér tíma þá nær maður sam- bandi, hvað sem öllum tungumálum líður. Ég veit sjálf hvernig er að búa sem útlendingur í öðru landi og á auðvelt með að setja mig í annarra spor. Hef alltaf haft gaman af fólki.“ „Börnin okkar lifa í allt öðru sam- félagi en við gerðum og það sem dregur okkur Söru og fleiri í for- eldrafélaginu áfram er hvatinn til að hafa áhrif á það samfélag og kynnast því. Þegar dóttir mín fermdist voru sex gerðir af fermingum í bekknum hennar. Börnin okkar alast upp við að skólafélagar þeirra tali annað tungumál heima hjá sér og búi jafn- vel við aðra leturgerð en við. Þetta var ekki svona þegar við vorum litlar og það er ástæða til að gefa því gaum,“ segir Anna Sif. „Það er slíka svo mikilvægt að hindra einangrun barna,“ segir Sara Björg. Erlendir foreldrar eru kannski ekki vanir því að börn séu í íþrótta- og tómstundastarfi eins og hér er orðin rótgróin hefð. Þeir átta sig ekki á hversu mikilvægt það er að upp á samneyti og tengsl við önnur börn. Það er staðreynd að ef aðlögun barna mistekst og þau ná ekki að finna sig þá endar það ekki alltaf nógu vel.“ „Þá erum við líka komin að við- horfi fólks til peninga. Sumir safna peningum til að senda sínu fólki í gamla heimalandinu eða til að komast þangað í heimsókn. Þar með vinnur það mikið, þar með setur það ekki börnin sín í frístundir, þar með eru eldri börnin að passa yngri börn- in. Oft eru foreldrarnir í láglauna- störfum og þurfa að vinna mikið. Svo mætti velta því upp af hverju Reykja- víkurborg ákvað að heimila fólki að nota frístundastyrkinn í dagvistina eftir skóla, en skilyrtu hann ekki í íþrótta- og tómstundastarf og tón- list eins og áður.“ Spurðar hvort þær telji hátíðirnar hafa skilaði auknum kynnum innan skólahópsins svarar Anna Sif: „Ég held að börnin sjái um það sjálf á sínum forsendum.“ Sara Björg tekur undir það. „Já, kannski vita þau ekki hvað fordómar eru, en okkar mark- mið er líka að vekja foreldra til vit- undar um að börnin okkar eru í fjöl- þjóðlegu umhverfi.“ Anna Sif kemur með dæmisögu. „Ég bauð bekkjar- félögum sonar míns í smá garðpartí og var með pylsur en áttaði mig ekk- ert á því að þarna voru múslímar líka sem borða ekki svínakjöt og ég hafði ekki fattað að kaupa kalkúnapylsur.“ Þær Sara Björg og Anna Sif eiga þrjú börn hvor og Anna Sif bendir á að skólinn sé viðverustaður hvers barns í tíu ár. Því skipti skólinn þær meira máli en ýmislegt annað. „Við erum hvorki í björgunarsveitum, stjórnmálastarfi né íþróttahreyfing- unni en allir geta haft áhrif á sam- félagið með einhverjum hætti. Við viljum hafa góð áhrif á líf barnanna í kringum okkur,“ segir hún. Sara tekur undir það. „Við berum sam- félagslega ábyrgð á því að börnunum líði vel í skólanum og viljum að þau sem eru af erlendu bergi brotin aðlagist okkar samfélagi eins vel og hægt er, á sama tíma og við berum virðingu fyrir uppruna þeirra. Það er ekkert flókið.“ Sara Björg og Anna Sif áttu von á kannski 150 manns á fyrstu fjölmenningarhátíðina í Breiðholtsskóla en það mættu yfir 800. FréTTABlAðið/Ernir Markmið að byggja brýr milli fólks Sara Björg Sigurðardóttir og Anna Sif Jóns- dóttir eru í foreldrafélagi Breiðholtsskóla sem hefur staðið fyrir fjölmenningarhátíðum og hlaut Samfélagsverð- laun Fréttablaðsins í flokknum Til atlögu gegn fordómum. Silja er íslensk, hér sýnir hún nafnið sitt með ýmiss konar letri. Prúðbúnar stúlkur á fjölmenningarhátíð í Breiðholtsskóla. Hópurinn frá Foreldrafélagi Breiðholtsskóla ásamt for- seta Íslands á afhendingu Samfélagsverðlaunanna 2017. FréTTABlAðið/Eyþór ÁrnASon Briet olga frá Hvíta-rússlandi og dóttir hennar í þjóðbúningum síns lands. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 6 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R40 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 0 6 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 1 3 6 s _ P 1 1 6 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C C F -5 5 3 0 1 C C F -5 3 F 4 1 C C F -5 2 B 8 1 C C F -5 1 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 3 6 s _ 5 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.