Fréttablaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 42
Ferðaskrifstofan Gaman Ferðir sérhæfði sig í upphafi í fót-bolta-, tónleika- og hópferðum
en hefur síðastliðin þrjú ár komið
sterk inn á sólarlandamarkaðinn.
Ingibjörg Elsa Eysteinsdóttir, for-
stöðukona sólar- og sérferða, segir
ljóst að landsmenn ætla sér í sólina
í sumar. „Það lítur út fyrir að annar
hver maður ætli í sólina í sumar.
Það er mikið bókað hjá okkur og
aukningin milli ára hefur farið langt
fram úr væntingum,“ segir Ingi-
björg. Ferðaskrifstofan býður upp
á þó nokkra áfangastaði á Spáni
en Tenerife er sá allra vinsælasti.
„Tenerife er bara svo frábær áfanga-
staður sem hægt er að ferðast til
allan ársins hring.“
Ingibjörg segir mikla áherslu
lagða á að bjóða vandaða og góða
gististaði á Tenerife. „Sá allra vin-
sælasti heitir Green Garden Resort
& Suites. Þetta er fjögurra stjörnu
íbúðahótel og er á lista yfir topp 25
bestu hótelin á Spáni í flokki fjöl-
skylduhótela. Þetta er fjölskyldu-
paradís Gaman Ferða. Síðustu daga
höfum við verið að nota samfélags-
miðilinn Snapchat (gamanferdir)
þar sem að hann „Kalli okkar“ hefur
verið að snappa og sýna hótelið.
Það má nánast segja að það sé verið
að slást um síðustu lausu íbúðirnar
í sumar og fólk er að leggja inn
pöntun fyrir næsta sumar, 2018,
enda verður enginn svikinn af því
að dvelja á Green Garden.“
Af öðrum sólaráfangastöðum
Gaman Ferða nefnir Ingibjörg
Lloret de Mar, Salou, Albir og Beni-
dorm sem hún segir alla standa
fyrir sínu. „Þar leggjum við líka
sérstaka áherslu á að bjóða upp
á góða íbúðagistingu og vönduð
hótel. Í september og október
ætlum við svo að beina fólki til
Sitges en það er einstaklega fallegur
og skemmtilegur strandbær sem
er aðeins 30 km frá Barcelona-
flugvelli. Það er tilvalið að lengja
sumarið og taka langa helgi í Sitges
sem stundum hefur verið nefnt
Saint Tropez Spánar. Í Sitges er
fjölbreytt menning og skemmtilegt
næturlíf. Staðurinn er mikið sóttur
af samkynhneigðum en öllum
þykir afar gaman að koma þangað.
Við erum með flotta gististaði og
þar eru margir góðir veitingastaðir,
kaffihús og klúbbar sem gaman er
að prófa,“ segir Ingibjörg.
Tónleikasumar
Ingibjörg segir sannkallað tón-
leikasumar fram undan hjá Gaman
Ferðum. „Við erum að fara með tæp-
lega tvö hundruð manns á Adele í
London í júlí en auk þess erum við
með ferðir á á Ed Sheeran í júní og á
U2 í júlí.“ Ingibjörg segir boðið upp
á VIP-miða sem tryggja góða stað-
setningu og VIP „lounge“ fyrir og
eftir tónleika sem sé afar vinsælt.
Heilsu-, jóga- og
brimbrettaferðir
Heilsu- og jógaferðirnar eru líka
vinsælar sem aldrei fyrr. „Við erum
að fara í þá fyrstu til Albir um næstu
helgi en förum svo í jógaferð til
Tossa de Mar í júní. Báðar þessar
ferðir seldust upp hjá okkur og því
bjóðum við upp á sams konar ferðir
aftur í haust. Svo erum við með
tvær nýjar og spennandi heilsu-
ferðir. Sú fyrri verður í september
og ber yfirskriftina „ Vítamín fyrir
veturinn“. Gurrý, framkvæmda-
stjóri Reebok Fitness, og Auður
Harpa, danskennari í Reebok,
leiða hana. Farið verður til ítölsku
Alpanna og lögð áhersla á hug-
leiðslu og jóga. Þá bryddum við upp
á þeirri nýjung að bjóða brim-
brettaferð til Tenerife í nóvember.
Þar erum við að tala um sjö daga
ferð á fjögurra stjörnu lúxushóteli
sem er aðeins fyrir fullorðna. Boðið
verður upp á brimbrettakennslu á
hverjum degi og jóga á morgnana
auk þess sem farið verður á svo-
kölluð „Stand up Paddle Board“.
Aðspurð segir Ingibjörg nóvember
háannatíma á Tenerife og að þar sé
hægt að vera allan ársins hring. „Þar
eru líka alveg geggjaðar öldur.“
Melia Villaitana – heimavöll-
ur Gaman Ferða í Alicante
Ingibjörg segir ekki heldur mega
gleyma að minnast á golfferðirnar
en haustferðirnar voru að koma í
sölu og verða í boði í október. „Við
erum á Melia Villaitana í Alicante,
sem við köllum heimavöllinn
Ingibjörg segir líta út fyrir að annar hver Íslendingur ætli í sólina í sumar.
Vinsælasti gististaðurinn á Tenerife er Green Garden Resort & Suites og er
nánast slegist um íbúðrinar.
Hjá Gaman Ferðum er lögð rík áhersla á að bjóða vandaða og góða gististaði.
Framhald af forsíðu ➛ okkar, en okkar maður, Jón Karls-
son eða Nonni golf, er fararstjóri
og golfkennari Gaman Ferða. Við
höfum fengið frábærar viðtökur
við golfferðunum okkar og það er
klárt mál að þessar ferðir munu
seljast upp,“ segir Ingibjörg.
Gaman Ferðir hafa alltaf lagt
mikla áherslu á fótboltaferðir.
„Enski boltinn fer í sölu 14. júní og
þá koma allar ferðirnar inn. Í sept-
ember ætlum við svo með fulla
vél til að styðja strákana okkar í
undankeppni HM í Finnlandi. Þá
geta menn slegið tvær flugur í einu
höggi en sama dag leikur íslenska
karlalandsliðið í körfubolta við
Pólland í Helsinki og fylgir miði
á þann leik með í kaupunum.
Það verður því sannarlega mikil
stemming í Finnlandi þessa helgi.
Lúxussiglingar, mexíkóska
Rívíeran og Karíbahaf
„Í haust verðum við með tvær
sannkallaðar lúxusferðir. Þetta
eru skemmtisiglingar sem svíkja
engan. Fyrri ferðin verður farin í
september en siglt verður frá Los
Angeles til Mexíkó. Seinni ferðin
verður farin í lok október en þá
verður siglt frá Miami um Karíba-
haf.“ Að sögn Ingibjargar er um að
ræða virkilega spennandi áfanga-
staði og mjög gott verð. „Þá erum
við með reynslumikla fararstjóra
sem sjá til þess að upplifunin verði
sem eftirminnilegust.“
Borðtennismót á
föstudögum
Gaman Ferðir eru til húsa að
Bæjarhrauni 14 í Hafnarfirði. „Eins
og nafnið gefur til kynna þá viljum
við hafa gaman hjá okkur. Við
erum með reynslumikið starfsfólk
hjá okkur úr ferðageiranum og
leggjum mikla áherslu á að veita
faglega en umfram allt skemmti-
lega þjónustu. Við kappkostum
að svara viðskiptavinum okkar
nánast á hvaða tíma sólahringsins
sem er. Við notumst mikið við
Facebook og hvetjum fólk til að
senda okkur fyrirspurnir þangað.
Það er nánast alltaf einhver á
vaktinni til að svara,“ upplýsir
Ingibjörg.
Þó mikið sé að gera hjá Gaman
Ferðum gefur starfsfólkið sér
alltaf tíma á föstudögum til að
spila borðtennis. „Þá höldum við
borðtennismót þar sem allt er
lagt undir og keppt er um titilinn
borðtennismeistari vikunnar.
Viðskiptavinir eru hjartanlega
velkomnir að kíkja í heimsókn til
okkar á föstudögum og spila við
okkur. Ef þeir vinna fá þeir afslátt
af ferð.“
Skrifstofan er opin milli níu og
fimm virka daga. Allar nánari upp-
lýsingar er að finna á gaman.is
Góðgerlar sem
styrkja meltinguna
og vinna gegn
fjölgun Candida
sveppsins í
meltingarvegi.
Inniheldur:
Góðgerlablöndu
af 7 sýruþolnum
gerlastrengjum,
hvítlauk og grape
seed extract.
Öflug blanda
góðgerla sem
byggir upp
þarmaflóruna
og styrkir varnir
líkamans.
Inniheldur:
Góðgerlablöndu
af 14 sýruþolnum
gerlastrengjum.
Styrkir þvagrásina
og virkar sem
öflug vörn gegn
þvagrásar-
vandræðum.
Inniheldur:
Góðgerlablöndu
af 2 sýruþolnum
gerlastrengjum,
trönuberjaþykkni
og A-vítamín.
Góðgerlar fyrir
börn á öllum aldri.
Eflir þarmaflóruna,
án allra aukaefna
og er bragðlaust.
Inniheldur:
Góðgerlablöndu
af 7 sýruþolnum
gerlastrengjum,
Omega 3 og
D3-vítamín.
Hamingjan kemur innan frá. Bio-Kult góðgerlar styrkja meltinguna
- Öflug melting og betra jafnvægi -
Veldu það besta fyrir þína meltingu. Fæst í öllum apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna. Nánari upplýsingar á www.icecare.is
Bio-Kult Candéa Bio-Kult Original Bio-Kult Pro-Cyan Bio-Kult Infantis
2 KYNNINGARBLAÐ 6 . M A Í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
F
-B
3
0
0
1
C
C
F
-B
1
C
4
1
C
C
F
-B
0
8
8
1
C
C
F
-A
F
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K