Fréttablaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 48
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Magnús Kjart-
ansson stýrir
söng Brokkkórs-
ins í Seljakirkju
í hinni árlegu
kirkjureið hesta-
fólks á höfuð-
borgarsvæðinu.
MYND/ANTON
BRINK
Brokkkórinn flytur lög við sér-staka guðsþjónustu þar sem hestamönnum er boðið að
koma ríðandi til kirkju. Séra Valgeir
Sigurðsson predikar. Hann er mikill
hestamaður sjálfur og byrjaði á
þessu í samvinnu við fleiri fyrir
nokkrum árum. Nú er þetta orðið
að hefð,“ segir Magnús Kjartans-
son en árleg kirkjureið hestafólks
á höfuðborgarsvæðinu fer fram á
morgun. Riðið verður til Seljakirkju
og segir Magnús, sem er hesta-
maður sjálfur, þetta stórskemmti-
lega uppákomu sem brjóti upp
hversdaginn.
„Ef hestamenn sjá kirkjur vita
þeir að frá þeim liggja reiðgötur til
allra bæja í sveitinni og við þekkj-
um margar sögur frá því í gamla
daga þegar fólk reið til kirkju. Þetta
er gömul og skemmtileg hefð til
að halda við og tækifæri til þess að
gera eitthvað annað á hestbaki en
ríða í hringi. Það halda allir kátir
og glaðir til kirkju,“ segir Magnús.
Eru hestamenn guðhrætt fólk
upp til hópa? „Ja, allavega þennan
dag,“ segir hann sposkur. Predik-
unin fjalli iðulega um efni sem eru
hugleikin hestamönnum.
„Við lofum vorið og sumar-
komuna í messunni og í predikun
er lagt út af einhverju sem snertir
hestamanninn. Reynt að finna
þeirra viðkvæmustu strengi.
Brokkkórinn leiðir almennan söng
og flytur einnig þrjú lög, þar af er
einn sálmur. Enda veitir ekki af
fyrir hestafólk að kunna einn til
tvo sálma og nokkrar bænir, það
kemst stundum í þannig aðstæður
að betra er að hafa almættið með
sér. Eftir messu safnast fólk saman í
kaffi og með því.“
Eru engir vasapelar á lofti?
„Hingað til hefur ekki þurft að
áminna neinn,“ segir Magnús og
hlær.
Fjögur ár eru síðan Magnús flutti
sig úr borgarhasarnum í sveita-
sæluna í Grímsnesi. Þar rjátla
þau hjónin með hestana en lítinn
annan búskap.
„Við höfðum lengi verið með
skika þarna og ræktað. Foreldrar
konunnar minnar þar við hliðina
en afi hennar var síðasti ábúandi á
jörðinni. Ýmsir rótarangar tengja
okkur því við þennan stað. Þetta
er lögbýli en við erum þó ekki með
neinn búskap. Setjum kannski
niður nokkrar kartöflur og mörgum
finnst skrítið að við séum ekki einu
sinni með hænur. En við getum
fengið egg hjá nágrönnum, til að
eiga í ommilettu fyrir gesti,“ segir
Magnús. Hann nái jarðtengingu í
hestamennskunni og rólegheitin í
sveitinni eigi vel við hann.
„Það myndast heilmikið jarð-
samband á hestbaki og gott að
gleyma öllu öðru um tíma, nema
gangi hestsins og einbeita sér að því
að hanga á baki. Þá hafa bænir oft
komið sér ágætlega. Ég kenni einnig
tónmennt á Borg í Grímsnesi og
finnst það dásamlegt,“ segir hann.
Líklega yrði hann ekki almenni-
legur bóndi.
„Þegar flugfreyja og tónlistar-
maður eiga í hlut er afar erfitt að
mæta reglulega í verkin eða fylgja
nokkurri rútínu. En okkur líður vel
þarna, laus við borgarstressið.“
Gott að hafa almættið með sér
Maggi Kjartans stýrir söng Brokkkórsins í guðsþjónustu hestamanna
FERÐAÁÆTLUN 2016
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
www.fi.is
F
E
R
Ð
A
Á
Æ
T
LU
N
2
0
1
6
F
E
R
Ð
A
F
É
LA
G
ÍS
LA
N
D
S
Morgungöngur
Kl. 6 að morgni, alla daga vikunnar frá upphafsstað göngu.
Fararstjórar: Páll Guðmundsson og Auður Kjartansdóttir.
Fátt er betra en að byrja góðan dag með fjallgöngu og fylla lungun af fjallalofti fyrir
verkefni dagsins. Ýmiss fróðleikur og skemmtun í hverri göngu, auk morgunleikfimi.
Í tilefni af 90 ára afmæli FÍ verður skáld með í hverri morgungöngu
Mánudagur: Helgafell ofan Hafnarfjarðar. Gangan hefst við Kaldársel.
Þriðjudagur: Reykjaborg. Gangan hefst við bílastæði norðaustan við Hafravatn.
Miðvikudagur: Haukadalsfjöll. Gangan hefst við neðan við Hrafnhóla.
Fimmtudagur: Vífilsfell við Sandskeið. Gangan hefst við malarnámur við rætur fjallsins.
Föstudagur: Úlfarsfell. Gangan hefst við bílastæði skógræktar við Vesturlandsveg.
Skrifað undir samstarfssamning við heilsueflandi samfélag Mosfellsbæ.
Göngurnar taka 2-3 klst.
Gott er að vera í skjólgóðum fatnaði og gönguskóm
og taka með sér göngustafi, nestisbita og drykk.
Ferðafélags Íslands 8.–12. maí
Skráðu þig inn – drífðu þig út – það er aldrei of seint
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | Sími 568 2533 | www.fi.is
Þátttaka er ókeypis Allir velkomnir
Á fjöll við fyrsta hana
gal
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . M A Í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
F
-E
E
4
0
1
C
C
F
-E
D
0
4
1
C
C
F
-E
B
C
8
1
C
C
F
-E
A
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K