Fréttablaðið - 06.05.2017, Síða 94
Eileandonan
Castle
Isle of Castle. MYNDIR/FANNEY SIZEMORE
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Fanney í Glen Coe dalnum.
Fanney Sizemore feðaðist í sjö daga um Edinborg og skosku hálöndin.
DeanVillage
Ég er með algjöra ferðabakteríu og ligg yfir Dohop og skoða ódýr flug frá Íslandi. Ég tók
þá ákvörðun að leyfa mér ekki
mikið hérna heima og eyða auka-
krónunum frekar í ferðalög,“ segir
Fanney Sizemore, myndskreytir og
leikmunahönnuður hjá Borgar-
leikhúsinu.
„Það er tiltölulega ódýrt að
ferðast í augnablikinu, sérstaklega
ef maður gerir sér far um að leita
að ódýrum flugferðum og gista
á hosteli eða ódýrum hótelum.
Ég fór í vikuferð til Skotlands um
páskana: flug, gisting í sjö nætur
á hosteli og þriggja daga ferð
um hálendið kostaði mig sam-
tals 50 þúsund krónur! Ég nota
yfirleitt Booking til þess að leita
að gistingu,“ segir Fanney. Hún
undirbúi ferðirnar vel og haldi vali
á áfangastað opnu.
„Mér er tiltölulega sama hvert ég
fer, á eftir að sjá svo marga staði. Ég
byrja oft á að fljúga til borgar og er
þar í tvo til fjóra daga en finn síðan
falleg þorp eða fer út í náttúruna,“
segir Fanney. Hún hafi litla þolin-
mæði í afslöppun.
„Það er eins og ég sé með koffín
í æð þegar ég fer til útlanda, geng
út um allt, skoða og fræðist eins
mikið og ég get. Enda er fólk
hissa á því hvað ég næ að gera
mikið. En það er hægt að gera svo
margt þegar maður hangir ekki á
barnum, á ströndinni eða í versl-
unum,“ segir hún sposk.
„Ég leggst yfirleitt í rannsóknar-
vinnu á netinu áður. Skoða ferða-
blogg og gúgla áhugaverða staði
og hvernig best og ódýrast er að
komast þangað. Merki svo inn á
kort í Google maps allt sem mig
langar til þess að gera. Ég er meira
að segja með nokkur merkt kort
af stöðum sem sem mig langar að
skoða í framtíðinni,“ segir Fanney.
Hún ferðast yfirleitt ein og líkar
það vel.
„Það verður svo mikið úr
tímanum þegar ekki þarf að taka
tillit til neins annars. Ég gisti oft á
hostelum og þar kynnist maður
fólki. Einnig leita ég oft uppi lindy
hop danskvöld hvert sem ég fer
og það er góð leið til þess að hitta
fólk. Ég var ein í Edinborg en ákvað
að panta mér skipulagða hópferð
með Macbackpackers um skosku
hálöndin í þrjá daga. Fannst það
hagkvæmasta leiðin þar sem mig
langaði að skoða svo margt og
treysti mér ekki til þess að keyra
á vinstri vegarhelmingi. Þetta var
alveg frábær ferð og ég lærði mikið
um skoska menningu og sögu.
Hópurinn kom við á Culloden-víg-
vellinum, þar sem síðasta orrusta
Englendinga og Jakobíta var háð,
stoppaði við Loch Ness, en ekki
sást þó til Nessie. Við ferðuðumst
um Isle of Skye og fórum í tvær
litlar fjallgöngur meðal annars upp
að Old Man of Storr. Uppáhaldið
mitt var líklega Glen Coe dalurinn.“
Ferðastu mikið innanlands?
„Ég vildi að ég gæti það en það
er dýrt. Ég er ekki á bíl og það er
ódýrara fyrir mig að finna flug og
eyða viku í útlöndum heldur en
að ferðast með strætó eða rútu um
Ísland og borða hér í viku. Hvað þá
ef ég ætlaði að kaupa gistingu. Ég
er að fara til Hull á lindy hop festi-
val og fékk flug fram og til baka til
London á 10 þúsund krónur. Það
er ódýrara en strætó eða ódýrasta
flugið frá Reykjavík til Egilsstaða.“
Vel hægt að
ferðast ódýrt
Fanney Sizemore
eyðir hverri auka-
krónu í ferðalög til
útlanda. Undirbún-
ingur sé lykillinn
að ódýrri ferð.
6 KYNNINGARBLAÐ 6 . M A Í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
C
F
-C
1
D
0
1
C
C
F
-C
0
9
4
1
C
C
F
-B
F
5
8
1
C
C
F
-B
E
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K