Fréttablaðið - 06.05.2017, Qupperneq 98
Jarðarber og basil er skemmtileg blanda og með jógúrtís verður úr því ferskur sumardesert. Íslensku jarðarberin eru mjög góð og líka íslenskt
basil,“ segir Danis Grbic, mat
reiðslumaður á Grillinu á
Sögu. Hann var kokkur ársins 2016
og heldur titlinum enn, því keppni
um hann var frestað þar til í sept
ember í ár, og æfir nú af kappi fyrir
Norðurlandakeppni sem haldin
verður 8. júní. Hann kveðst hafa
lært á Grillinu og verið þar undan
farin ár.
Danis flutti hingað til lands sem
króatískur flóttamaður árið 1997,
ellefu ára að aldri og talar íslensk
una eins og innfæddur. Hann hefur
gert sig gildandi í fótbolta, segist
reyndar ekkert hafa spilað af viti
síðustu fimm ár en verið að þjálfa
lið sem ýmist hafi verið í 3. eða 4.
deild síðasta áratug. „Ég bjó á Ísa
firði í nokkur ár eftir að ég flutti
til Íslands og stofnaði liðið
ásamt félaga mínum
þar, aðallega upp
á gamanið,“
segir hann.
En við
snúum okkur að matnum og tekið
skal fram að uppskriftirnar eru fyrir
sex til átta manns.
Fyrst er það eftirrétturinn hans
Denis:
JarðarberJa- og basil-
desert
1 askja fersk íslensk jarðarber
50 ml ylliblómasíróp – fæst í betri
matvöruverslunum, Søstrene
Grene og IKEA
20 g ferskur sítrónusafi
Skerið jarðarberin í sneiðar, setjið
þau í skál og veltið þeim upp úr
ylliblómasírópinu og sítrónusaf
anum.
basil marens
125 g sykur
50 g vatn
75 g eggjahvítur
½ askja af íslensku basil, fínt
söxuðu
Setjið sykurinn og vatnið saman
í pott og hitið upp í 121°C. Setjið
eggjahvíturnar í hrærivélarskál og
þeytið þær á miðlungshraða. Hellið
sykursírópinu varlega út í eggjahvít
urnar þegar það hefur náð 121°C
og aukið jafnframt við hraðann á
hrærivélinni. Hrærið þar til blandan
hefur kólnað niður, bætið þá saxaða
basilinu varlega saman við með
sleif. Smyrjið marensdeiginu þunnt
á sílikonmottu eða bökunarpappír
og þurrkið í ofni á 90°C í um það bil
klukkustund.
basilolía
1 hluti góð olía, til dæmis kald
pressuð repjuolía
1 hluti íslenskt basil
Blandið hráefninu saman í blandara
þar til fer að rjúka upp úr skálinni.
Olían á þá að hafa náð um 70°C.
Sigtið síðan olíuna í gegnum
síuklút og þá er hún klár.
Jógúrt-
og hvít-
súkkulaðiís
245 ml mjólk
50 g sykur
168 g gott hvítt
súkkulaði
470 g hreint
eða grískt
jógúrt
3 blöð matar
lím
Leggið matar
límið í bleyti í
um 10 mínútur.
Sjóðið saman
mjólk og sykur
í litlum potti þar
til sykurinn leysist
upp. Setjið hvítt
súkkulaði í skál
og bræðið það yfir
vatnsbaði. Bætið síðan
matarlíminu saman við
sykursírópið og hrærið
aðeins í þar til allt matarlímið
leysist upp.
Hellið sykursírópinu yfir
súkkulaðið og vinnið það saman
með sleif eða töfrasprota þar til
súkkulaðið nær glans áferð. Hrær
ið því næst jógúrtinu saman við
með písk. Setjið ísinn í kæli í
tvo til þrjá tíma áður er hann
er frystur.
Ef ísinn er frystur á hefð
bundinn hátt er hann settur
í stálskál og í frysti. Þá þarf að
hræra rösklega í honum með
písk á hálftíma fresti, fjórum til
fimm sinnum eða oftar. Að því
loknu er hægt að setja ísinn í mat
vinnsluvél og vinna hann aðeins.
Þetta er gert til að jafna ískristall
ana í honum svo að ísinn verði
silkimjúkur. Ísinn er
síðan settur aftur
í frysti. Þeir
sem eiga ísvél
fara eftir leið
beiningum fram
leiðanda.
Jarðar
berja og
basil desert.
FréttAblAðIð/
ErnIr
Denis
kokkur og
Axel vínþjónn
glaðbeittir á Grill
inu. FréttAblAðIð/ErnIr
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Litríkt
og létt í
sumar
Sumarið kallar á
ljúfa rétti og svalandi
drykki á hátíðlegum
stundum. Snilling-
arnir Danis Grbic og
Axel Aage Schiöth á
Grillinu á Sögu luma á
góðum hugmyndum. í norðurlandakeppninni
er öllum úthlutað
ákveðnum aðalhráefnum.
svo erum við leidd inn á
markað og þar finnum
við allt mögulegt
meðlæti, við höfum
klukkutíma til að ákveða
matseðilinn og út frá því
eigum við að elda þriggJa
rétta matseðil fyrir 12
manns. þetta er leyni-
karfa, maður veit ekki
hvað maður fær!
Danis Grbic,
matreiðslumaður
Svo er það hinn sumarlegi og
áfengislausi kokteill vínþjónsins
Axels Age Schiöth:
óáfengur sumarspritz
2 stk. ferskt lime
1012 stk. fersk jarðarber
56 stilkar ferskt fáfnisgras
¼ hluti ylliblómaessens
¾ hlutar sódavatn
Sneiðið lime og jarðarber niður
og látið liggja með fáfnisgrasinu í
ylliblómaessensinum í 1 klukku
stund til að taka í sig bragð og lit úr
berjunum. Fyllið glösin af klaka og
skreytið með jarðarberjunum, lime
sneiðunum og fáfnisgrasinu. Hellið
sírópinu yfir klakann og toppið að
lokum með sódavatni og hrærið létt
saman.
„Ylliblómaessens fæst í betri mat
vöruverslunum, meira að segja í
IKEA og Søstrene Grene og hlutföllin
til blöndunar eru gefin upp á flösk
unum,“ segir Axel. „Svo er ekkert mál
að skvetta vodka eða ljósu rommi út
í þennan drykk fyrir þá sem vilja!“
6 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R42 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
C
F
-5
A
2
0
1
C
C
F
-5
8
E
4
1
C
C
F
-5
7
A
8
1
C
C
F
-5
6
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K