Fréttablaðið - 06.05.2017, Síða 106
Hjartans þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju
vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
Ármanns Ármannssonar
skipstjóra og útgerðarmanns.
Lára Friðbertsdóttir og fjölskylda
Elskulegur eiginmaður minn,
Sigurður Hannes Oddsson
rafmagnstæknifræðingur,
Hringbraut 2a,
lést á Landspítalanum 4. maí.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hrafnhildur Lúthersdóttir
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Helgi Hálfdanarson
Heiðarbrún 16, Hveragerði,
lést á Sjúkrahúsinu á Selfossi
mánudaginn 1. maí. Útför hans verður
gerð frá Hveragerðiskirkju
laugardaginn 13. maí kl. 14.00.
Jóna Einarsdóttir
Inga Jónsdóttir Þorgils Baldursson
Hálfdan Jónsson Astrid Wormdal
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra móðir, amma og systir,
Erna Svavarsdóttir
frá Blönduósi,
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold
að kvöldi 29. apríl. Útförin fer fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þóra Stefánsdóttir, Kolbrún Erna Ingadóttir,
Bergvin Logi Ingason, Agnes Svavarsdóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Marinó Finnbogason
frá Hóli í Bakkadal,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
2. maí síðastliðinn. Útförin fer fram frá
Fella- og Hólakirkju föstudaginn 12. maí kl. 13.
Jóna S. Guðmundsdóttir
Alda Björk Marinósdóttir Trausti Hauksson
Guðmundur Marinósson Guðbjörg Anna Magnúsdóttir
Finnbogi Sigurður Marinósson Kerstin Marinósson
Guðrún Björk Marinósdóttir Vigfús Eiríksson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn
og faðir okkar,
Gunnar Gunnarsson
Vatnsstíg 15,
lést laugardaginn 29. apríl. Útförin fer
fram frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn
11. maí klukkan 15.00.
Chandrika Gunnarsson
Ísarr Nikulás og Jóhanna Preethi Gunnarsbörn
Hjartans þakkir til ykkar allra sem
sýnduð okkur samúð, vináttu og
hlýhug vegna andláts og útfarar
okkar ástkæru eiginkonu, móður,
tengdamóður og ömmu,
Guðrúnar Ágústu Lárusdóttur
Vesturbergi 18, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrir einstakan stuðning,
hlýju og fagmennsku.
Marinus Schmitz
Lárus S. Marinusson Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir
Sigurður Marinusson Irma Schortinghuis
Viktoría Marinusdóttir Gísli Már Finnsson
Einar Daði, Guðný Helga og Elías Hlynur
Jurjen Sindri og Arnar Smári
Viktor Smári og Lovísa Kristín
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kjartan Geir Karlsson
skipstjóri, Súðavík,
lést sunnudaginn 30. apríl. Jarðarför
fer fram frá Súðavíkurkirkju
laugardaginn 13. maí kl. 14.00.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Skagfirsk fræði í nútíð og fortíð verður umfjöllunarefni mál-þings í Miðgarði í Varmahlíð á morgun. Það er haldið í tilefni 80 ára afmælis Sögufélags Skag-
firðinga og 70 ára afmælis Héraðsskjala-
safns Skagfirðinga. Guðni Th. Jóhannes-
son forseti verður meðal gesta, og ætlar
að flytja ávarp enda sagnfræðingur að
mennt.
„Sögufélaginu og Héraðsskjalasafn-
inu hefur hvoru tveggja verið sinnt vel
í gegnum tíðina og eru þar af leiðandi
öflugar stofnanir,“ segir Hjalti Pálsson,
formaður Sögufélagsins, þegar hann er
beðinn um að líta um öxl. Segir hafa
verið gefin út á bilinu 90 til 100 rit á
þessum tíma og mikið og gott samstarf
hafi verið milli sögufélagsins og safnsins.
„Þetta eru öflugustu menningarstofnanir
sveitarfélagsins á sína vísu,“ fullyrðir
hann.
Hjalti segir Sögufélag Skagfirðinga
elsta héraðssögufélag landsins. Það hafi
starfað óslitið síðan það var stofnað
1937 og gefið út yfir 90 rit um sögu
Skagafjarðar. Félagsmenn séu nú um
750 talsins.
Bæði Sögufélagið og Héraðsskjala-
safnið standa í stórræðum á þessum
tímamótum því þeirra umfangsmesta
verkefni er í fullum gangi. Það er útgáfa
Byggðasögu Skagafjarðar sem mun fylla
tíu bindi í stóru broti. „Það verk hefur
þegar verið tuttugu og eitt ár í fram-
kvæmd af tuttugu og fimm sem áætluð
voru,“ segir Hjalti og upplýsir að í haust
komi áttunda bindið út.
Í ritunum er farið yfir allar bújarðir
í Skagafirði, sem eru yfir sex hundruð
talsins. „Byggðasagan er hugsuð sem
handbók og yfirlitsrit yfir allar jarðir í
Skagafirði og hefur nú þegar komið að
miklum notum, meðal annars við skipu-
lagningu, til dæmis með tilliti til ferða-
þjónustu,“ segir hann og er ekki í vafa
um að útgáfan sé einstök á landsvísu.
Afmælishaldið ber upp á lokadag
Sæluviku Skagfirðinga 2017 sem er ein
elsta menningarhátíð landsins að sögn
Hjalta. „Saga hennar nær allt aftur til árs-
ins 1874 þegar svonefndar sýslunefndar-
vikur hófu göngu sína.“
gun@frettabladid.is
Haldið upp á 150 ára
afmæli í Skagafirðinum
Hjalti Pálsson er formaður Sögufélags Skagfirðinga.
Sögufélag Skagfirðinga
fagnar 80 ára afmæli á
morgun og Héraðsskjala-
safnið sjötugsafmæli.
Málþing verður í Miðgarði
af þessu tilefni og mætir
forsetinn meðal annarra.
Auk ávarps forsetans verða eftirfarandi erindi og fyrir-
lestrar á dagskránni:
l Guðný Zoëga: Byggðasagan ofan jarðar og neðan – vitnisburður fornleifa-
fræðinnar.
l Harpa Björnsdóttir: Bóndi í klammeríi. Um fangavist Sölva Helgasonar í Dan-
mörku.
l Unnar Ingvarsson: Bærinn sem varð að þorpi. Sauðárkrókur í sókn og vörn um
aldamótin 1900.
l Viðar Hreinsson: Jón lærði í vísindavagninum. Samskipti Jóns lærða við Hóla-
menn.
l Auk þess munu Ásta Pálmadóttir, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar,
Hjalti Pálsson, formaður Sögufélagsins, og Sólborg Una Pálsdóttir héraðs-
skjalavörður taka til máls.
l Sölvi Sveinsson stýrir málþinginu.
Hin árlega kirkjureið hestafólks á öllum aldri
af höfuðborgarsvæðinu verður á morgun til
Seljakirkju. Lagt verður af stað úr hesthúsa-
hverfunum klukkan 12.30. Messan hefst
klukkan 14. Séra Valgeir Ástráðsson predikar
og Brokkkórinn syngur undir stjórn Magn-
úsar Kjartanssonar. Að messu lokinni verður
kaffi í safnaðarheimilinu og meðan á þessari
stund stendur verða hestarnir í gæslu.
Riðið til kirkju
6 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R50 t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ð
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
0
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
C
F
-A
9
2
0
1
C
C
F
-A
7
E
4
1
C
C
F
-A
6
A
8
1
C
C
F
-A
5
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K