Fréttablaðið - 06.05.2017, Page 127
Popphljómsveitin Milkywhale, sem samanstendur af Melkorku Sigríði Magnúsdóttur
og Árna Rúnari Hlöðverssyni, gaf
út fyrstu plötuna sína á Spotify í
gær. Platan ber sama heiti og hljóm
sveitin, Milkywhale, og inniheldur
tíu dansvæn lög.
Sveitin er tiltölulega ung en hefur
þó komið víða við þrátt fyrir ungan
aldur. „Leiðir þeirra Melkorku og
Árna lágu fyrst saman þegar þau
unnu að leiksýningu í Borgarleikhús
inu í ársbyrjun 2015 og seinna það
sama ár unnu þau danssýninguna
Milkywhale fyrir Reykjavik Dance
Festival. Upp úr þeirri sýningu varð
til samnefnd hljómsveit, Milky
whale, sem segja má að hafi stokkið
fram á sjónarsviðið á tónlistarhátíð
inni Iceland Airwaves seinna sama
ár,“ segir í tilkynningu frá sveitinni. Í
framhaldinu var Milkywhale boðið
að spila á tónlistarhátíðinni í Hróars
keldu en auk þess hefur hljómsveitin
komið fram á fjölmörgum tónleikum
hérlendis og erlendis.
Þess má geta að lögin á plötunni
eru samin í stofunni heima hjá Árna
og segir Melkorka að sköpunarkraft
urinn sé að miklu leyti kaffivélinni
hans að þakka.
Platan er svo væntanleg á vínyl í
júní en bandið er komin með samn
ing við útgáfufyrirtækið Theory of
Whatever Record um vínylútgáfu.
– gha
Milkywhale með dansvæna plötu á Spotify
Árni og Melkorka skipa Milkywhale.
Platan Milkywhale
koM á SPotify í gær
og er væntanleg á vínyl í
næSta Mánuði.
Sú k ku l a ð i f r a m l e i ð a n d i n n Omnom Chocolate er í óðaönn að búa til súkkulaðipopp fyrir
sumarið. „Poppið mun innihalda
100% stuðning við Hinsegin daga
í Reykjavík og mun koma í fimm
litríkum glamúrbragðtegundum
sem eru lakkrís + hindber, bláber,
mangó + ástaraldin, jarðarber og
matchate,“ segir Hildur Halldórs
dóttir, verkefnastjóri hjá Omnom
Chocolate.
Hildur er afar spennt fyrir þessari
nýjung og er viss um að hún muni
slá í gegn hjá slækerum landsins.
,,Þetta er „confetti“ sem hægt er að
borða! Ég er sko hrikalega spennt
fyrir þessu poppi fyrir Eurovisi
onpartíið. Loksins get ég borðað
skrautið og þarf ekki að þrífa allt
„confettið“ upp og henda því eftir
gleðina. Þetta er því umhverfisvænt
skraut,“ segir Hildur sem kallar
sjálfa sig „poppálf“.
En Omnom ætlar að taka smá
forskot á sæluna í tilefni Eurovisi
on. „Til að hefja leika ætlum við
að sjálfsögðu að gleðjast og horfa
á Svölu keppa á þriðjudaginn. Við
bjóðum alla velkomna þann dag í
verslun okkar til að sækja sér frítt
box af súkkulaðipoppi til að gæða
sér á yfir Eurovisionherlegheit
unum!“
Á þriðjudaginn ættu því allir
sælkerar að leggja leið sína út á
Granda. „Fólk er velkomið í verslun
Omnom, Hólmaslóð 4, frá kl. 11.00
til 18.00 að sækja sér poppbox á
meðan birgðir endast,“ segir Hildur
að lokum. – gha
omnom fagnar
eurovision
með því að gefa
súkkulaðipopp
Omnom kynnir til leiks þetta dásam-
lega fallega poppkorn.
Opið söluferli – sveigjanleg kaup og stækkunarmöguleikar
VILTU EIGNAST
STÆRSTA HÓTEL
Á VESTURLANDI?
Bifröst felur í sér einstakt tækifæri til
uppbyggingar ferðaþjónustu en svæðið
er í einungis um 100 km fjarlægð frá
höfuðborginni og hentar því vel sem
áfangastaður ferðamanna sem vilja skoða
Vesturland, á leið til Vestfjarða eða út á
Snæfellsnes. Stutt er frá Bifröst til allra
helstu ferðamannastaða Borgarfjarðar.
Til sölu er Hótel Bifröst og fjöldi fasteigna í sannkallaðri
náttúruperlu miðsvæðis á Vesturlandi.
Hótel Bifröst tilheyra 51 herbergi og 170 manna veitingasalur í fullum
rekstri. Auk þess eru til sölu tvær fasteignir með 48 litlum íbúðum sem
nýst geta undir hótelrekstur. Fjárfestum bjóðast einnig til kaups fasteignir
með möguleika á frekari stækkun, alls 88 herbergi. Hægt er að kaupa
rekstur hótelsins og hluta eignanna og semja um frekari kaup í áföngum.
Vesturland er nú eitt helsta vaxtarsvæði ferðaþjónustunnar og miklar
fjárfestingar hafa átt sér stað þar í innviðum; gistingu, afþreyingu og
þjónustu. Náttúrufegurðin á Vesturlandi er rómuð og áhersla yfirvalda
er á að beina fleirum á Vesturland.
Capacent hefur yfirumsjón með söluferlinu
og hafa ráðgjafar þess tekið saman upp-
lýsingar um rekstur hótelsins, rekstrar-
umhverfi og þær eignir sem eru til sölu
í upplýsingaskýrslu sem finna má á
capacent.is. Auk Capacent taka neðan-
greindar fasteignasölur þátt í söluferlinu.
Skila þarf tilboðum 8. júní nk.
Borg Brandur Gunnarsson
Byggð Björn Guðmundsson
DomusNova Haukur Halldórsson
Eignamiðlun Kjartan Hallgeirsson
Fasteigna-
miðstöðin Magnús Leópoldsson
Höfði Runólfur Gunnlaugsson
Miklaborg Þröstur Þórhallsson
Valhöll Ingólfur Gissurarson
lokSinS get ég
borðað Skrautið og
þarf ekki að þrífa allt
„confettið“ uPP og henda
því eftir gleðina.
L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð 71L A U G A R D A G U R 6 . m A í 2 0 1 7
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
1
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
F
-9
F
4
0
1
C
C
F
-9
E
0
4
1
C
C
F
-9
C
C
8
1
C
C
F
-9
B
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K