Fréttablaðið - 06.05.2017, Síða 130
Söngkonurnar Svala Björg-vinsdóttir og Anja Nissen klæddust nýverið flíkum úr línu sem myndlistar-konan Hrafnhildur Arnar-dóttir, betur þekkt sem
Shoplifter, hannaði fyrir keðjuna
& Other Stories. Sú lína kom í tak-
mörkuðu upplagi og hefur að geyma
leggingsbuxur, jakka, tösku og skart
svo eitthvað sé nefnt. Bæði Anja og
Svala klæddust jakkanum úr línunni
í Kænugarði þegar þær undirbjuggu
og kynntu atriði sín fyrir Eurovision.
„Þetta er ferlega skemmtilegt auð-
vitað, þetta er í fyrsta sinn sem ég geri
föt sem fara í framleiðslu svo það er
hvetjandi að fá jákvæð viðbrögð og
finna það að fólk vill klæðast föt-
unum.“
Það kom Hrafnhildi á óvart að sjá
að Anja hafði nælt sér í jakka. „Ég
hitti Svölu af tilviljun í Los Angeles
nýlega og við vorum bara á spjalli
og hún sá jakkann og heillaðist af
honum, svo ég bauðst til að senda
henni föt úr línunni sem hana lang-
aði að nota í Kiev, en ég bjóst ekk-
ert endilega við að það yrði svona
áberandi. Hins vegar kom það mér
algerlega í opna skjöldu að sjá Önju
Nissen í jakkanum líka! Hann nátt-
úrulega var til sölu í & Other Stor ies
ekki fyrir svo löngu og hún eða stíl-
istinn hennar hefur fundið hann,“
útskýrir Hrafnhildur.
Jakkinn seldist upp á fyrsta degi
„Þessi jakki seldist upp á fyrsta degi
og hann var gerður í takmörkuðu
upplagi svo líkurnar á þessu voru
ekki miklar. Við Svala höfðum frekar
gaman af þessu „tískuslysi“,“ segir
Hrafnhildur og hlær. „Mér fannst þær
báðar flottar í flíkinni og fallegt hvað
Svala tók þessu vel og hafði húmor
fyrir því að lenda í þessu, það eru
ekki allir sem myndu gera það. Þetta
sýnir okkur hversu falleg manneskja
Svala er.“
Hrafnhildur segir sölu línunnar
sem hún hannaði fyrir & Other
Stories hafa gengið vonum framar.
„Já, línan hefur gengið rosalega vel
skilst mér en einungis níu stærstu
búðirnar þeirra seldu vörurnar sem
eru „special edition“ svo nú fer hver
að verða síðastur. En jakkinn seldist
upp á fyrsta degi bæði í búðum og á
netinu,“ segir Hrafnhildur.
Eins og áður sagði er þetta í fyrsta
sinn sem Hrafnhildur leggur fyrir sig
fatahönnun og þetta nýja verkefni
lagðist vel í hana. Spurð út í hvort
hún ætli að leggja frekari fatahönnun
fyrir sig segir hún: „Það lítur út fyrir
að maður geti ekki annað. Ég er til í
að halda áfram ef ég fæ gott teymi til
að vinna með mér. Það hefur gengið
vel í myndlistinni og hún á hug minn
allan akkúrat núna, en það væri
lúxus að geta unnið í hönnun með
fram myndlist því uppsprettan er
sú sama,“ útskýrir Hrafnhildur og
bætir við að línan sem hún hann-
aði fyrir & Other Stories sé inn-
blásin af myndlist hennar.
„& Other Stories fyrirtækið,
sem er dótturfyrirtæki H&M,
hafði samband við mig út af
myndlistarverkunum mínum og
bað mig að hanna föt og fylgi-
hluti sem væru algerlega byggð
á þeim. Ég notaði ljósmyndir
af verkunum mínum til að búa
til mynstur og fleira svo þetta er allt
samhangandi.“
Aðspurð hvort hún sé Eurovision-
aðdáandi segir Hrafnhildur: „Ég dáist
að menningarfyrirbærinu Eurovisi-
on og finnst ferlega skemmtilegt að
fylgjast með ef ég er á Íslandi. Ég bý í
Ameríku en vinsældir keppninnar ná
barasta ekki þangað. Að sjálfsögðu
ætla ég að horfa á keppnina í ár, Svala
er frábær og á eftir að rúlla þessu upp
eins og hverri annarri pappírsrúllu,
snillingur sem hún er!“
gudnyhronn@365.is
Höfðu húmor fyrir „tískuslysinu“
Svala Björgvinsdóttir og Anja Nissen klæddust nýverið báðar hönnun eftir Hrafnhildi Arnardóttur við undirbún-
ing fyrir Eurovision. Hrafnhildur segir skemmtilegt að fá þessi jákvæðu viðbrögð við frumraun sinni í fatahönnun.
Svala Björgvinsdóttir tók sig vel út í jakkanum sem er úr smiðju Hrafnhildar
Arnardóttur. MYND/ANDreS PuttiNg
Jakkinn um-
ræddi sem
seldist upp á
mettíma.
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 12 - 19
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 12 - 19
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 12 - 19
SUNNUDAGUR 7. MAÍ 12 - 18
OPIÐ ALLA HELGINA
www.handverkoghonnun.isHANDVERK OG HÖNNUN #handverkoghonnun
Í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR
4.– 7. MAÍ
Hrafnhildur Arnardóttir vinnur undir
listamannsnafninu Shoplifter.
MYND/eLÍSABet DAVÍÐSDÓttir
6 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R74 L í f i ð ∙ f R É T T a B L a ð i ð
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
1
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
C
F
-8
6
9
0
1
C
C
F
-8
5
5
4
1
C
C
F
-8
4
1
8
1
C
C
F
-8
2
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K