Fréttablaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 4
FRUMSÝNING Laugardaginn 20. maí Opið frá 12 - 17 Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6 270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-17 Heilbrigðismál Tveggja ára stúlku, veikri af hlaupabólu, var í síðust viku ávísað röngum skammti af ofnæmis­ lyfinu Atarax. Læknir frá Læknavakt­ inni ávísaði fyrir mistök ofnæmis­ lyfinu í töfluformi í stað mixtúru. Lyfjaskammtur sem hefði annars verið gagnlegur varð þannig mögu­ lega banvænn. Skammtastærðin var margföld á við þá sem ætlunin var að ávísa. Læknirinn fór línuvillt í gerð rafræna lyfseðilsins. Móðir stúlkunnar, Sigríður Áka­ dóttir, leysti út lyfið í Lyfju í Lágmúla. Þar sást vakthafandi lyfjafræðingi yfir mistök læknisins og afhenti lyfið. Sam­ kvæmt upplýsingum frá Lyfju Lágmúla voru það mistök að afhenda lyfið. Margoft gerist það að lyfjafræðingar afhendi ekki lyf sem er rangt ávísað. Þegar Sigríður kom heim með lyfið gaf hún dóttur sinni fyrsta ráð­ lagða skammtinn af lyfinu, sex töflur. Morguninn eftir gaf hún dóttur sinni næsta ráðlagða skammt, fjórar töflur. Hún varð vör við breytingu á líðan dóttur sinnar sem var með afar háan hita. Henni hafði hins vegar verið sagt að búast við óbreyttri líðan næsta sólarhringinn. Lyfið gæti tekið lengri tíma að virka. Hún svaf næstum allan sólarhringinn og fékk aftur ráðlagðan skammt sex töflur það kvöldið, eða þriðjudagskvöld í síðustu viku. Þegar þarna var komið var dóttir Sigríðar búin að fá 16 töfl­ ur, 450 mg af lyfinu Atarax. Banvænum skammti ávísað Móðir stúlkunnar vill að atvikið verði til þess að ferlar verði endurskoðaðir þegar kemur að lyfjaávísunum til barna. Tveggja ára stúlku var ávísað röngum og ban- vænum skammti af ofnæmislyfinu Atarax. Móðir stúlkunnar vonar að atvikið auki árvekni í ávísunum lyfja til barna og vill að fyrirvarar verði settir í tölvukerfi lyfjaávísana. þjónusta „Þessi starfsmaður mun ekki bera út fyrir Póstinn framar,“ segir Brynjar Smári Rúnarsson, for­ stöðumaður markaðsdeildar Pósts­ ins, um mál bréfbera sem uppvís varð að því að bera ekki út allar þær sendingar sem honum bar. Íbúar á Seltjarnarnesi og út­ burðar hverfum með póstnúmerin 107 og 108 í Reykjavík hafa undan­ farna daga sumir fengið í hendurnar gamlan póst sem að einhverju leyti átti jafnvel að bera út í janúar þótt megnið sé nýlegra. Með fylgir afsök­ unarbeiðni frá Póstinum og sú skýr­ ing að starfsmaður fyrirtækisins hafi brugðist skyldum sínum. „Það komu ábendingar til okkar og í kjölfarið fannst töluvert magn af póstsendingum og bréfum í bíl um helgina,“ útskýrir Brynjar hvern­ ig málið uppgötvaðist. Langmest af póstinum sem fannst var svokallaður fjölpóstur. Málið komst ekki upp fyrr þar sem Póstin­ um höfðu ekki borist athugasemdir frá viðtakendum sem söknuðu bréfa að sögn Brynjars. Hann biðlar til viðskiptavina um að koma með ábendingar telji þeir útburði ábótavant. Það sé áhrifaríkasta leiðin til að fylgjast með því að hlut­ irnir gangi eðlilega fyrir sig. Aðspurður segir Brynjar um að ræða starfsmann sem hafi áður unnið hjá Póstinum og hafið þar störf að nýju í haust. Hann vill ekki gefa upp hvaða skýringar viðkomandi gaf á hegðun sinni. „En allar skýr­ ingar eru algerlega óásættan legar í þessari stöðu,“ ítrekar hann og upp­ lýsir að starfsmaðurinn hafi verið kærður til lögreglu eins og venja sé í sambærilegum tilvikum. Að sögn Brynjars ættu síðustu bréfin úr týnda póstinum að skila sér til viðtakenda í dag. Pósturinn telji að engar sendingar hafi glatast. „En við getum auðvitað ekki verið hundrað prósent viss því þessi póst­ ur er í eðli sínu órekjanlegur.“ – gar Enginn saknaði bréfa sem hyskinn póstburðarmaður geymdi í bíl Allar skýringar eru algerlega óásættanlegar í þessari stöðu. Brynjar Smári Rúnarsson, for- stöðumaður markaðsdeildar Póstsins Ég ber engan kala til neins vegna þessa, þetta eru mannleg mistök. Sigríður Ákadóttir, móðir litlu stúlkunnar lögreglan Í apríl voru skráð 144 brot þar sem ökumaður var grun­ aður um akstur undir áhrifum ávana­ og fíkniefna og 105 brot þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur samkvæmt afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Ekki hafa verið skráð jafn mörg brot vegna aksturs undir áhrifum ávana­ og fíkniefna eftir að ný lög tóku gildi árið 2006 sem höfðu í för með sér að verklag lögreglu breyttist í þessum málum. Að sama skapi þarf að leita aftur til nóvember 2008 til að finna fleiri ölvunarakstursbrot en skráð voru í apríl síðastliðnum. Þessi mikla fjölgun brota er afrakst­ ur sérstaks átaks sem farið var í á varðsvæði lögreglustöðvar 1, sem nær frá Seltjarnarnesi að Laugar­ dalnum segir í tilkynningu. Lögreglunni á höfuðborgarsvæð­ inu bárust 655 tilkynningar um hegningarlagabrot í apríl. Af hegn­ ingarlagabrotum fækkaði þjófn­ uðum, ofbeldisbrotum gagnvart lög­ reglumönnum og kynferðisbrotum miðað við meðalfjölda síðustu sex mánuði á undan. Fíkniefnabrotum og umferðarlagabrotum fjölgaði hins vegar nokkuð. – sg Aldrei fleiri grunaðir um akstur undir áhrifum Í apríl voru 144 ölvunarakstursbrot. Fréttablaðið/Eyþór Á þessum tímapunkti höfðu Sig­ ríður og móðir hennar þungar áhyggjur af líðan stúlkunnar og lásu fylgiseðilinn. Í honum stóð að lyfið væri ekki ætlað börnum og enn fremur að hámarksskammtur væri 20 mg á sólarhring. Sigríður og móðir hennar keyrðu með hraði með stúlkuna á bráða­ móttöku barna við Hringbraut. Þar var tekið á móti þeim og strax tekið til við að minnka eitrunaráhrif lyfsins á líkamann. Stúlkan dvaldi í fjóra daga á spítal­ anum og var fylgst vel með hjartslætti hennar og öndun. Líkur voru á hjarta­ stoppi og öndunarbilun. Það er talið hafa orðið stúlkunni til lífs að Sigríður og mamma hennar fóru með hana á spítalann á þessum tímapunkti. Hún er komin heim til sín en er undir eftir­ liti. Ganga þarf úr skugga um að eng­ inn skaði hafi orðið af ofskömmtun lyfsins á lifur, nýru og blóðhag. „Ég ber engan kala til neins vegna þessa,“ segir Sigríður. „Þetta eru mannleg mistök en ég vona að atvikið verði til þess að ferlið í lyfjaávísunum verði endurskoðað. Það þarf að reyna að koma í veg fyrir með öllum ráðum að svona mistök geti orðið, segir Sig­ ríður. „Það sem ég er að vonast til er að þetta gerist aldrei aftur. Ég vona að læknarnir lesi betur yfir sínar beiðnir í apótekið. Og að lyfjafræðingar gæti vel að því hverju er ávísað. Líka vil ég að fólk sem tekur við lyfjum lesi fylgiseðil­ inn. Ég vil aukna meðvitund og meiri ábyrgð á öllum stöðum. Fólk ætti að spyrja og kynna sér lyfjagjöfina betur.“ Gunnlaugur Sigurjónsson, heim­ ilis læknir og stjórnarformaður Lækna vaktarinnar, segir mikilvægt að gæta vel að lyfjaávísunum til barna. „Það sem gerðist er, eins og Sigríður sagði frá, að læknirinn valdi rangt form lyfsins. Hann skrifaði þannig út þrettánfaldan skammt af lyfinu. Áður voru vandamálin tengd því að lyfja­ fræðingar skildu ekki skrift lækna á lyfseðlum. Í dag er hættan sú að menn fari línuvillt. En ég legg mikla áherslu á það að læknar verða að gæta vel að því hvað þeir senda,“ segir Gunn­ laugur sem segir atvikið hljóta að verða til þess að ferlarnir verði endur­ skoðaðir. „Það þarf að skoða hvort það sé hægt að forrita inn einhverja öryggisventla þegar um er að ræða lyfjaávísanir til barna. Við verðum að reyna að koma í veg fyrir mistök af þessu tagi með öllum ráðum. Þótt svona mistök séu afar fátíð, þá geta þau hent. Það sem gerðist svo var að lyfjafræðingi í apótekinu sást einnig yfir ranga skammtastærð, þeir eiga eins og læknar að gæta að öryggi í lyfja afgreiðslu.“ kristjanabjorg@frettabladid.is 1 8 . m a í 2 0 1 7 F i m m t u D a g u r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð 1 8 -0 5 -2 0 1 7 0 5 :0 0 F B 0 7 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C E 2 -1 B D 8 1 C E 2 -1 A 9 C 1 C E 2 -1 9 6 0 1 C E 2 -1 8 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.